Félög
27.9.2007
Startmót Sjóvá hjá B.A.
Nú er hafið vetrastarfið hjá Bridgefélagi Akureyrar í nýju og fínu húsnæði í Lions salnum í Skipagötu.
27.9.2007
GRAND HÓTEL BÖTLER BR
Góð aðsókn hjá BR. 36 pör mættu í þriggja kvölda GRAND HÓTEL BÖTLER sem hófst þann 25. 09. Þó má bæta við 2 pörum til viðbótar fyrir næsta þriðjudag. Áhugasamir hafi samband við Ómar í síma 8691275.
Vegleg verðlaun í boði Grand Hótel!
Bridgefélag Reykjavíkur
GRAND HÓTEL BÖTLER
Þriðjudaginn 25. september hefst 3ja kvölda bötlertvímenningur sem hefur verið eitt allra vinsælsta mót BR síðustu ár.
Spilamennska hefst kl. 19:00 í Síðumúla 37 alla þriðjudaga.
Skráning á www.bridge.is/br og á staðnum
Vegleg verðlaun í boði Grand Hótel!
Skor kvöldsins fyrstu 2 kvöldin -2x kvöldverður fyrir tvo
Sigurvegarar mótsins - 2x kvöldverður fyrir tvo + 2x gisting fyrir tvo með morgunverði
25.9.2007
Bf. Hafnarfjarðar: Eiríkur og Sigurjón unnu fyrsta kvöldið
Eiríkur Kristófersson og Sigurjón Harðarson unnu fyrsta spilakvöld Bf. Hafnarfjarðar. Þeir voru einu stigi fyrir ofan Hörpu Fold og Brynju. Efstu pör er hægt að sjá á heimasíðu BH:
Næsta keppni BH er 3ja kvölda A.Hansen tvímenningur. Spilaður verður Barómeter með glæsilegum verðlaunum frá A.Hansen.
21.9.2007
Aðalfundur Bridgefélags Selfoss 28. september nk.
Boðað er til aðalfundar hjá Bridgefélagi Selfoss þann 28. október nk. kl. 20:00 í Tryggvaskála. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, verðlaunaafhending fyrir síðasta vetur ásamt léttri spilamennsku. Fyrsta reglulega spilakvöld vetrarins verður síðan fimmtudagskvöldið 4. október, og verður byrjað á eins kvölds tvímenning.
21.9.2007
GRAND HÓTEL BÖTLER BR HEFST NÆSTA ÞRIÐJUDAG
Bridgefélag Reykjavíkur
GRAND HÓTEL BÖTLER
Þriðjudaginn 25. september hefst 3ja kvölda bötlertvímenningur sem hefur verið eitt allra vinsælsta mót BR síðustu ár.
Spilamennska hefst kl. 19:00 í Síðumúla 37 alla þriðjudaga.
Skráning á www.bridge.is/br og á staðnum
Vegleg verðlaun í boði Grand Hótel!
Skor kvöldsins fyrstu 2 kvöldin -2x kvöldverður fyrir tvo
Sigurvegarar mótsins - 2x kvöldverður fyrir tvo + 2x gisting fyrir tvo með morgunverði
20.9.2007
Miðvikudagsklúbburinn: Gunnlaugur og Hermann efstir! Fengu glæsilegar ostakörfur í verðlaun!
Gunnlaugur Sævarsson og Hermann Friðriksson unnu fyrsta spilakvöld félagsins og fengu stórar og glæsilegar ostakörfur í verðlaun. Miðvikudagsklúbburinn spilar öll miðvikudagskvöld og byrjar spilamennskan kl. 19:00. Allir spilarar eru velkomnir og er sérstaklega tekið vel á móti byrjendum og óvönum.
18.9.2007
Haustmonradmeistarar BR
Guðrún Jóhannesdóttir og Haraldur Ingason héldu velli og sigruðu í haustvímenningi BR.
Lokastaðan
1. Guðrún Jóhannesdóttir.-Haraldur Ingason 55.10%
2. Gunnlaugur Karlsson-Kjartan Ingvarsson 54.65%
3. Hermann Friðriksson-Hlynur Angantýs/Jón Ingþórs 53,95%
4. Kjartan Ásmundsson-Hlynur Garðarsson/Stefán Jóhannsson 53,90%
5. Páll Valdimarsson-Sverrir Kristinsson 53,30%
6. Hjördís Sigurjónsdóttir-Ragnheiður Nielsen 52,95%

3.sæti: Hermann Friðriksson(Jón Ingþórs og Hlyn Antantýs vantar á myndina)
1. sæti: Haraldur Ingason - Guðrún Jóhannesdóttir
2. sæti: Kjartan Ingvarsson - Gunnlaugur Karlsson
11.9.2007
BR að byrja í kvöld !!
Í kvöld hefst spilamennska hjá BR eftir sumarfríið !
Þriðjudagana 11. og 18. september fara fram monrad tvímenningar, besta samanlagða skor telur til verðlauna. Spilað í Síðumúla 37 alla þriðjudaga kl. 19:00.
Spilurum (og sveitum) verður í fyrsta skipti boðið upp á árskort sem viðbót við 10 skipta kortin. Árskortin á 18.000 kr eða um 650 kr fyrir hvert skipti, 9.000 kr fyrir yngri spilara og eldri borgara. Best að panta árskortin á fyrsta spilakvöldinu til að þau nýtist sem best.
Minnt er á veglega einmenningskeppni í lok vetrar þar sem 24 bronsstigahæstu spilarar fá keppnisrétt. Nú eru komnir sjálfsalar fyrir kaffi, gos og sælgæti svo vissara að muna eftir smámynt.
Dagskrá, úrslit ofl. á heimasíðu BR: bridge.is/br
Góða skemmtun við græna borðið í vetur!!
Stjórn BR
Haustdagskrána má sjá hér
2.9.2007
Halldór Þorvaldsson fyrstur í 300 bronsstig í Sumarbridge
Halldór Þorvaldsson hefur 42 stiga forystu á Hermann Friðriksson í bronsstigakeppni Sumarbridge. Halldór hefur unnið sér inn 300 bronsstig, en næstur honum er Hermann með 258. í 3. sæti er hæsti kvenmaðurinn, Erla Sigurjónsdóttir með 220 bronsstig.
Hæstu prósenstukor Sumarbridge
Lokamót Sumarbridge fer fram laugardaginn 15. september. Spilaður verður Monrad Barómeter og spilað verður um silfurstig.














