Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Félög

29.12.2008

Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar

20.12.2008

Bridgehátíð Vesturlands í Borgarnesi

Bridgehátíð Vesturlands verður að venju haldin á Hótel Borgarnesi fyrstu helgina á nýju ári, þ.e. 3-4 janúar. Á laugardeginum verður sveitakeppni, 8 spila leikir, 8 umferðir eftir monrad. Á sunnudeginum verður monrad-tvímenningur, 4 spil í umferð, 12 umferðir. Dagskrá verður þannig:

Laugardagur:       Spilamennska hefst  kl. 10.00, spilaðir 3 leikir, kl. 13.15 matarhlé í 30 mín. og  síðan 5 leikir.

Sunnudagur:        Spilamennska hefst 10.30, 5 umferðir, kl. 13.15 matarhlé og síðan sjö umferðir.

Þáttökugjöld:       Sveitakeppni: 10.000,- pr. sveit      Tvímenningur: 2.500,- á mann

Skráning á staðnum, bara mæta tímanlega.

Hótel Borgarnes verður með góð tilboð á gistingu og mat eins og venjulega, s. 437-1119

 

17.12.2008

KEA hangikjöt er best

Það segja allavega matgæðingar Bridgefélags Akureyrar en síðasta spilakvöld fyrir jól var KEA-hangikjötstvímenningur þar sem það var í boði auk magáls.

17.12.2008

Jólabingó

Fimmtudaginn 18.dsember verður BR með jólabingó í Síðumúlanum og hefst kl. 19:00
Mikið fjör fyrir alla fjölskylduna, bæði yngstu og elstu.

    Bingóspjald                            Bingó

17.12.2008

Bf. Fjarðarbyggðar

28.desember verður haldið Jólamót Bf. Fjarðarbyggðar og hefst mótið kl. 12:00, stundvíslega
Spilastaður: Reyðarfjörður 
Uppl. gefur Sigurður í síma 660 3610

17.12.2008

Jólamót BR 30.desember

            til minningar um Jónas P. Erlingsson

spilað verður í Síðumúlanum og hefst stundvíslega kl. 17:00
Tekið er við skráningum á skrifstofu BSÍ í síma 587-9360, á keppnisstjori@bridgefelag.is eða hér

16.12.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar, næst spilað 12 jan.

Ein umferð var spiluð í aðalsveitakeppninni í gærkvöld og jókst spennan á toppnum enn frekar. Staðan eftir 5 umferðir er þessi:

1. 10-11                                         91

2. Elding                                         90

3-4 Erla og Miðvikudagskl.             84

5. Einar Sigurðsson                        76

6. Guðlaugur Bessason                  74

7. Sigurjón Harðarson                   73

8. Vinir                                           71

9. Skeggi                                       66

10. EPLI                                        63

11. Hrund                                     60

12. Hulda Hjálmarsdóttir              58

Á eftir var spilaður léttur jólatvímenningur á átta borðum  þar sem spilarar voru dregnir saman í pör. Efstir í N-S urðu Hafþór Kristjánsson og Guðlaugur Bessason með 103, en í A-V voru Björn Arnarson og Haukur Árnason  efstir með 98.

Nú tekur við jólafrí og er næsti spiladagur þann 12. janúar á nýju ári.

GLEÐILEG JÓL

12.12.2008

Jólatvímenningur í Kópavogi

Bridgefélag Kópavogs
Siðasta keppni fyrir jól verður jólatvímenningur 18.desember.

11.12.2008

Akureyri með sveit í alþjóðlegri deildakeppni

Bridgefélag Akureyrar hefur í vetur tekið þátt í alþjóðlegri deildakeppni sem fram fer á BridgeBase.

11.12.2008

Akureyrarmeistarar í tvímenningi fundnir

Með góðum lokaspretti náðu Gylfi og Helgi að endurheimta toppsætið.

9.12.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar Einn leikur næsta mánudag

Nú eru búnar fjórar umferðir í aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar og munar aðeins einu stigi á tveimur efstu sveitunum og síðan koma nokkrar í humátt þar á eftir. Staðan eftir 4 umferðir:

1. 10-11                                                              79

2. Erla Sigurjónsdóttir                                         78

3-4 Elding og Miðvikudagsklúbburinn                  72

5. Guðlaugur Bessason                                      64

6-8 Sigurjón Harðarson,Vinir og Skeggi             53

9. Einar Sigurðsson                                            52

10. EPLI                                                             48

11. Hrund                                                          45

12. Hulda Hjálmarsdóttir                                   41

Næsta mánudag, 15 des. verður spilaður einn leikur í aðalsveitakeppninni og síðan léttur jólatvímenningur á eftir.

Jólamóti Brridgefélags Hafnarfjarðar hefur verið flýtt um einn dag og verður sunnudaginn 28 des.

 

8.12.2008

Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2009 - Skráning

4 sveitir hafa skráð sig í Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2009.

Skráningin verður uppfærð á netinu eins fljótt og auðið er.

Heimasíða Reykjavíkurmótsins í sveitakeppni 2009

4.12.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Unnar Atli og Björn unnu 20 para tvímenning!

Unnar Atli Guðmundsson og Björn Árnason unnu 20 para einskvölds tvímenning með +41 stig. Þeir voru 0,8 stigum á undan Sigurður Kristjánssyni og Eiríki Sigurðssyni. Sigurvegararnir fengu glæsilegar ostakörfur í verðlaun

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

2.12.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar, 10-11 byrja vel

Aðalsveitakeppni félagsins hófst í gærkvöldi  með þátttöku tólf sveita og er það met aðsókn í vetur. Sveit 10-11 byrjaði best og er með 42 stig eftir tvær umferðir. Staðan er annars þessi:

1. 10-11                                 42

2. Erla Sigurjónsdóttir            37

3. Elding                                 34

4. Miðvikudagsklúbburinn      33

5-6 Einar Sigurðsson              32

5-6 Skeggi                              32

7. Guðlaugur Bessason          31

8. Vinir                                   28

9. Hulda Hjálmarsdóttir         25

10-11 Sigurjón Harðarson    24

10-11 EPLI                           24

12. Hrund                            16

28.11.2008

Briddsfélag Selfoss hraðsveitakeppni

Hraðsveitakeppni 2008

Fimmtudaginn 27. nóvember hófst hraðsveitakeppni Briddsfélags Selfoss með þátttöku 8 sveita. Fyrirkomulagið er þannig að spilur er tvöföld umferð á tveimur kvöldum og voru menn dregnir saman í sveitir.

27.11.2008

Akureyrarmót í tvímenning

Mótið er í fullum gangi en meðlimir úr sveit Gylfa Páls eru heitir eins og er með tvö kvöld enn eftir.
 

26.11.2008

Cavendish tvímenningur BR - 1. kvöld af 3

Lokið er fyrsta kvöldi af þremur í Cavendish tvímenningi BR en þetta keppnisform er hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár (imps across the field).

Reynsluboltarnir Ásmundur Pálsson og Guðmundur Páll Arnarsson hafa góða forystu en ennþá er nóg eftir af mótinu svo næstu pör þurfa ekki að örvænta.
Efstu pör:
1. 1164 Ásmundur Pálsson - Guðmundur Páll Arnarson
2.  847 Hlynur Garðarsson - Kjartan Ásmundsson
3.  547 Hjálmar S Pálsson - Hallgrímur Hallgrímsson
4.  503 Björgvin Már Kristinsson - Guðmundur Snorrason
5.  475 Helgi Sigurðsson - Helgi Jónsson

Öll úrslit og spil má sjá á bridge.is/br

25.11.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar. Sveit Drafnar vann

Á síðara kvöldi í hraðsveitakeppninni náði Sveit Drafnar Guðmundsdóttur risaskori, 696 stig og dugði það til sigurs samanlagt. Næst komu Guðni Ágústsson, 630 st. og Harpa Fold með 587 stig. Vegna mistaka við Exel-samlagningu kom röng lokastaða hér í morgun en rétt lokastaða er þessi:

1. Dröfn Guðmundsdóttir                1277

2. Guðni Ágústsson                         1255

3. Hulda Hjálmarsdóttir                   1197

4. Harpa Fold Ingólfsdóttir             1146

5. Erla Sigurjónsdóttir                     1126

6. Guðlaugur Bessason                   1107

7. Óli Björn Gunnarsson                  1093

8. Sigurjón Harðarson                    1086

9. Einar Sigurðsson                         1081

Næsta mánudag hefst aðalsveitakeppni Bridgefélagsins og verða spilaðar tvær umferðir á kvöldi. Spilað verður 01 og 08 des og síðan haldið áfram eftir áramót. Hægt er að skrá sveitir hjá Erlu s. 659-3013 og Þórði s. 862-1794 eða mæta tímanlega næsta mánudag. Spilað er í Hraunseli, Flatahrauni 3, kl. 19.00

20.11.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Inda Hrönn og Grímur Freyr unnu kvöldið með 67% skor!

Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Freyr Kristinsson unnu 19 para tvímenning með 67% skori. Þau voru með vel yfur 70% skor allt kvöldið þar til í síðustu umferð. Þau fengu glæsilegar ostakörfur frá Ostabúðinnni í verðlaun.

Öll úrslit og spil hjá Miðvikudagsklúbbnum

19.11.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Tveggja kvölda hraðsveitakeppni hófst mánudaginn 17 nóvember og mættu níu sveitir til leiks. Staðan er þessi eftir fyrra kvöldið:

1. Guðni Ágústsson                           625

2. Hulda Hjálmarsdóttir                     621

3. Óli Björn Gunnarsson                    596

4. Dröfn Guðmundsdóttir                  581

5. Sigurjón Harðarson                      573

6. Erla Sigurjónsdóttir                      560

7. Harpa Fold Ingólfsdóttir              559

8. Guðlaugur Bessason                    538

9. Einar Sigurðsson                          531

Aðalsveitakeppni félagsins hefst 1 des n.k. og er hægt að skrá sveitir hjá Erlu s.659-3013 og Þórði s. 862-1794

18.11.2008

Akureyrarmót í tvímenningi

Þá er fyrsta kvöldinu af fjórum lokið hjá Bridgefélagi Akureyrar en spilað er á 8 borðum. Fjögur pör fóru best af stað og náðu öll yfir 60% skor en þeir feðgar Gissur og Gissur leiða mótið. Nú er bara að sjá hvort að þau nái að halda því næst.

13.11.2008

Hraðsveitakeppni Byrs lokið

Fyrir síðasta kvöldið voru þrjár sveitir nánast jafnar á toppnum...

13.11.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur og Magnús unnu 20 para tvímenning!

Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson skoruðu rúmlega 60% og unnu 20 para tvímenning. Mikið af pörum mættu til leiks og voru að æfa fyrir Parasveitakeppnina sem verður seinna í mánuðinum.

Öll úrslit í Miðvikudagsklúbbnum

11.11.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Mánudaginn 10 nóvember var spilaður tvímenningur á sjö borðum. Þrjú ný pör hafa mætt síðustu tvö spilakvöld sem er mjög ánægjulegt. Helstu úrslit urðu þessi.

1. Eðvarð Hallgrímsson - Leifur Aðalsteinsson                      186,3

2. Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson          182,8

3. Indriði H Guðmundsson - Pálmi Steinþórsson                   178,2

4. Kristín :Þórarinsdóttir - Haukur Arnar Árnason                174,7

5. hrund Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason                             168,8 

Næsa mánudag hefst tveggja kvölda hraðsveitakeppni og eru ný andlit sem og gömul ávallt velkomin. Spilað er að Flatahrauni 3 á mánudögum kl. 19,00 

6.11.2008

Hraðsveitakeppni Byrs æsispennandi

Nú þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið í Hraðsveitakeppni Byrs hjá Bridgefélagi Akureyrar, má vart greina á milli efstu sveita.

4.11.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Mánudaginn 03 nóvember var spilaður mtichell-tvímenningur á sex borðum sem verður að teljast gott miðað við að all nokkur pör spila nú í sólinni "þar syðra". Helstu úrslit:

N-S. 1. Sigurður Sigurjónsson - Guðlaugur Bessason                    127

        2. Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson                     119

        3. Sigurjón Harðarson - Kristín Þórarinsdóttir                        107

A-V. 1. Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson            122

        2. Óli Björn Gunnarsson - Valdimar Elíasson                          116

        3. Hrund Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason                              106

Næsta mánudag verður aftur tvímenningur en síðan hefst tveggja kvölda hraðsveitakeppni þann 17 nóvember.

 

31.10.2008

Bf. Fjarðarbyggðar

Staðan í aðaltvímenningi félagsins eftir 4ða kvöld af 5 er eftirfarandi:
1. Óttar Ármannsson - Jónas Ólafsson/Pálmi.....................+ 92
2. Magnús Ásgríms/Pálmi  -  Sigurþór/Sigurður....................+ 85
3. Guttormur Kristmanns. - Jón Bjarki/Ágúst......................+ 82
4. Sveinn Herjólfsson    -  Þorsteinn Bergs.........................+77
5. Sigurður Freysson  -  Þorbergur/Ævar..........................+71

28.10.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu A HANSEN tvímenninginn sem lauk í gærkvöldi og hlutu að launum veglega matarúttekt hjá veitingastaðnum A HANSEN. Þeir náðu 63,9% skori á lokakvöldinu en Friðþjófur Einarsson og Guðbrandur Sigurbergsson gerðu enn betur með 65,6% sem dugði í anað sætið í heildina. Annars urðu úrslit þessi:

1. Guðlaugur Bessason - Sigurður Sigurjónsson             670,4 = 55,1%

2. Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson     661,4 = 54,4%

3. Erla Sigurjónsdóttir - Sigfús Þórðarson                      656,7 = 54,0%

4. Eðvarð Hallgrímsson - Björn Friðriks/Trausti Finnbogas. 651,3 = 53,6%

5. Ingvar Ingvarsson - Skeggi Ragnarsson                         633,4 = 52,1%

28.10.2008

Swiss monrad sveitakeppni BR

Sveit Júlíusar Sigurjónssonar sigraði með góðum endaspretti með 162 stig.  Í sveitinni spiluðu Júlíus, Ómar Olgeirsson, Páll Valdimarsson, og Friðjón Þórhallsson. Í öðru sæti varð sveit All in, sem leiddi mótið lengi vel og í þriðja sæti sveit Ice save.

Sjá úrslit og stöðu hér

23.10.2008

Bf. Siglufjarðar 70 ára

Bridgefélag Siglufjarðar heldur veglegt afmælismót á Siglufirði dagana 1. og 2. nóvember n.k.
Hér má sjá dagskrá mótsins.

22.10.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Ingólfur og Hermann efstir meðal jafningja!!

Ingólfur Hlynsson og Hermann Friðriksson unnu sér inn glæsilegar ostakörfur. Þeir unnu 20 para tvímenning og munaði aðeins 4 stigum á 4. sæti og því efsta.

Hægt er að sjá öll úrslit og spila á úrslitasíðu Miðvikudagsklúbbsins

22.10.2008

Lokastaða í Greifamóti

Hjá Bridgefélagi Akureyrar er nýlokið þriggja kvölda Greifamóti sem var impatvímenningur.

22.10.2008

Bf. Fjarðarbyggðar

Staðan í Aðaltvímenningi felagsins eftir 3 kvöld af 5
1. Óttar ÁRmannsson - Jónas Ólafsson/Pálmi              93 stig
2. Sveinn Herjólfsson - Þorsteinn Bergsson                  84 stig
3. Sigurður Freysson -  Þorbergur /Ævar Árm              82 stig
4. Guttormur Kristm. -  Jón Bjarki/ Ágúst                      78 stig

21.10.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Nú er lokið tveimur kvöldum af þremur í A HANSEN tvímenningnum hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar og er keppnin æsispennandi og verður svo væntanlega allt til loka. Eðvarð Hallgrímssyni tókst að halda toppsætinu áfram, nú með nýjum makker: Birni Friðrikssyni. Staða efstu para:

1. Eðvarð Hallgrímsson - Björn Friðriksson/Trausti Finnbogas 465 eða 55,9%

2. Halldór Einarsson - Guðni Ingvarsson/Högni Friðþjófsson   460,4 eða 55,3%

3. Heimir Tryggvason - Árni Már Björnsson                              457,4 eða 55,0%

4-5 Dröfn Guðmundsdóttir - Hrund Einarsdóttir                       451,0 eða 54,2%

4-5 Ingvar Ingvarsson - Skeggi Ragnarsson                            451,0 eða 54,2%

21.10.2008

Austurlandsmót í hraðsveitakeppni

Austurlandsmót í hraðsveitakeppni var haldið sunnudaginn 19.október á Seyðisfirði með þátttöku 8 sveita.
í fyrsta sæti varð sveita Árna með 975 stig og í henni spiluðu þeir, Árni Guðmundsson, Jóhann Þorsteinsson, Ásgeir Metúsalemsson og Kristján Kristjánsson
2. sveit Suðurfjarða með 954 stig, Ríkharður Jónasson, Magnús Valgeirsson, Ævar Ármannsson og Jónas Ólafsson.
3. sveit Lúvísu með 912 stig, Lúvísa Kristinsdóttir, Sigurður Þórarinsson, Jóhanna Gísladóttir og Sigurður Hólm Freysson.

17.10.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðrún og Sigrún unnu sér inn ostakörfur!!

Guðrún Jörgensen og Sigrún Pétursdóttir unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 65,3% skor! Næst voru Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson með 59,7%.

Öll miðvikudagskvöld eru spilaðir einskvölds tvímenningar hjá Miðvikudagsklúbbnum. Spilamennska byrjar kl. 19:00 og eru ALLIR spilarar jafnt vanir sem óvanir velkomnir. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

17.10.2008

Briddsfélag Selfoss og nágrennis

Garðar Garðarsson og Guðmundur Þór Gunnarsson sigruðu 2. kvöldið í Suðurgarðsmótinu hjá Briddsfélagi Selfoss.

16.10.2008

Sviftingar í Greifamóti

Nú er tveimur kvöldum lokið af þremur í impatvímenningi Greifans hjá Bridgefélagi Akureyrar

15.10.2008

Bf. Fjarðarbyggðar-Aðaltvímenningur

Annað kvöldið af fimm í Aðaltvímenningi félagsins var spilað í gær þann 14.október og eru þá efstir eftir tvö kvöld þeir:
1. Sigurðrur Freysson - Þorbergur Hauksson         með 78 stig
2. Sveinn Herjólfsson - Þorsteinn Bergsson            með 58 stig
3. Guttormur Kristmannsson -Jón Bjarki/Ágúst       með 57 stig
Keppnin heldur síðan áfram þann 21.október

14.10.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Síðastliðinn mánudag hófst A HANSEN tvímenningurinn sem er þriggja kvölda barómeter. Nítján pör mættu til leiks og er keppnin æsispennandi en aðeins eru búnar sex umferðir af nítján. Staða efstu para er þessi:

1. Eðvarð Hallgrímsson - Trausti Finnbogason     233 eða 60,7%

2. Heimir Tryggvason - Árni Már Björnsson         228 eða 59,4%

3. Ólafur Danívalsson - Gunnar Birgisson           225,4 eða 58,7%

Minnt skal á að það er bindandi mæting í þessari keppni og ekki hægt að bæta inn nýjum pörum næstu tvö kvöld.

10.10.2008

Briddsfélag Selfoss

Kristján Már Gunnarsson og Vilhálmur Pállson hafa nauma forystu eftir 1. kvöld Suðurgarðstvímennings Briddsfélags Selfoss.

9.10.2008

Greifamót B.A. fer vel af stað

Spilað er á 7 borðum í þessum impatvímenningi sem gaf færi á sveiflum eins og oft áður

8.10.2008

Miðvikudagsklúbburinn

Einhver tímabundin kreppa virðist vera í briddsspilurum því þann áttunda október var aðeins spilað á 6 borðum. Vonandi fer að rætast úr hjá spilurum sem og öllum öðrum. Helstu úrslit urðu annars þessi.

!. Arnar Geir Hinriksson - Guðmundur Þór Gunnarsson      158          

2. Erla Sigurjónsdóttir - Sigfús Þórðarson                          148

3. Alda Guðnadóttir - Hrafnhildur Skúladóttir                     143

4. Gróa Guðnadóttir - Harpa Fold Ingólfsdóttir                  139            

5. Halldór Þorvaldsson-Magnús Sverrisson                        135

                                                   

 

 

8.10.2008

Bs. Austurlands

Bs. Austurlands hélt parakeppni sunnudaginn 5.okt. s.l.
7 pör mættu leiks og sigurvegarar þessa móts voru þau
Þuríður Ingólfsdóttir og Pálmi Kristmannsson      með  11 stig
2.sæti Guðný Kjartansdóttir og Sigurður Stefánsson   8 stig
3.sæti Petra Björnsdóttir og Reynir Magnússon           1 stig

8.10.2008

Bf. Fjarðarbyggðar

Aðaltvímenningur félagsins höfst 7.okt. 2008 með þátttöku 14.para áætlað er að keppnin taki 5 kvöld. Efstir eftir 1sta kvöldið eru:
1. Sigurður H. Freysson og Þorbergur Hauksson          52 stig
2. Guttormur Kristmannsson og Jón Bjarki                    38 stig
3. Jónas Ólafsson og Óttar Ármannsson                      24 stig
4. Sveinn Herjólfsson og Þorsteinn Bergsson               20 stig

7.10.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Mánudaginn 6. okt. var spilaður mitchell á sjö borðum og munaði hársbreidd að um tvöfaldan kvennasigur yrði að ræða en í síðustu umferð tókst Friðþjófi og Guðbrandi að skjótast í efsta sætið. Helstu úrslit:

N-S 1. Hulda Hjálmarsdóttir - Guðný Guðjónsdóttir                191

       2. Hermann Friðriksson - Hjálmar Pálsson                        179

       3. Sigurjón Harðarson - Haukur A Árnason                      178

A-V 1. Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson        196

       2. Kristín Þórarinsdóttir - Helga Bergmann                        190

       3. Dröfn Guðmundsdóttir - Hrund Einarsdóttir                  175

Næsta mánudag hefst A HANSEN-tvímenningurinn. Spilaður verður þriggja kvölda BARÓMETER og eru þeir sem ekki eru þegar skráðir beðnir að hafa samband við Erlu s. 659-3013 eða Þórð s. 862-1794 fyrir kl. 18.00 næsta mánudag.

2.10.2008

Miðvikudagsklúbburinn

Miðvikudaginn 1 október var aðeins spilað á sjö borðum og vildu menn helst kenna um fjarveru Liverpool og Chelsea  aðdáenda. Annars voru allir í góða skapinu og urðu helstu úrslit þessi:

1.  Halldór Þorvadsson -  Hulda Hjálmarsdóttir                +41

2. Soffía Daníelsdóttir - Hermann Friðriksson                   +24

3. Alfreð Kristjánsson - Jón Alfreðsson                            +23

4-5 Sigurður Kristjánsson - Eiríkur Sigurðsson                  +16

4-5 Halldóra Magnúsdóttir - Jóhanna Sigurjónsdóttir       +16

Sigurverarnir fengu ostakörfur í verðlaun og Alda Guðnadóttir og Hrafnhildur Skúladóttir voru dregnar út og fengu ostabakka.  

Eftir að úrslit höfðu verið kynnt var keppnisstjóra bent á að ein geimtala hafði verið skráð í vitlausa átt í síðustu umferð og var það leiðrétt sem þýddi að keppendur í öðru og þriðja sæti höfðu sætaskipti.  Spilarar eru áminntir um að skrá rétt í posana og sá sem 'kvittar OK' á að lesa á skjáinn áður en samþykkir skorið.

 

1.10.2008

Startmóti Sjóvá lokið hjá B.A.

Vetrarstarf Bridgefélags Akureyrar er farið í gang og hófst það með tveggja kvölda tvímenningi sem lauk síðastliðinn þriðjudag.

30.9.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Mánudaginn 29 september var spilaður mitchell-tvímeninngur á átta borðum, sjö umferðir, 4 spil á milli para. Helstu úrslit urðu eftirfarandi:

N-S: 1. Sigurjón Harðarson-Haukur Árnason                            209

        2. Óli Björn Gunnarsson-Valdimar Elíasson                        207

        3. Andrés Þórarinsson-Hulda Hjálmarsdóttir                    191

A-V: 1. Dröfn Guðmundsdóttir-Ásgeir Ásbjörnsson                 223

        2. Eðvarð Hallgrímsson-Magnús Sverrisson                     208

        3. Halldór Einarsson-Guðni Ingvarsson                           175

Næsta mánudag er síðasti eins-kvölds tvímenningurinn áður en við byrjum á þriggja kvölda Barómeter svo það er um að gera að fara drífa sig í fjörið í Hafnarfirðinum. Það er spilað í Hraunseli, Flatahrauni 3, á mánudagum kl. 19.00 stundvíslega.  SJÁUMST HRESS!!!!!!!

30.9.2008

Bf. Muninn og Suðurnesja: Sveinn og Guðlaugur skelltu sér á toppinn í síðustu umferð!

Sveinn Rúnar Eiríksson og Guðlaugur Sveinsson voru efstir í eina umferð og svo skemmtilega vildi til (fyrir þá) að það var síðasta umferðin!  Þeir fengu 60,0% skor, 0,8% meira en Gunnar Guðbjörnsson og Kristján Kristjánsson sem voru í 2. sæti.

Öll úrslit

24.9.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Hermann og Ásmundur unnu 1. verðlaun á jöfnu!

Hermann Friðriksson og Ásmundur Örnólfsson og Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Freyr Kristinsson voru efst og jöfn í 19 para tvímenning. Hermann og Ásmundur drógu hærra spil í úrdrætti og fengu ostakörfur frá Ostabúðinni í verðlaun.

Úrslit Miðvikudagsklúbbsins

24.9.2008

Starfsemi Bridgefélags Selfoss að hefjast

Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 28. september í Framsóknarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi. Fundurinn hefst kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf og síðan létt spilamennska á eftir.

Starfsemi vetrarins hefst svo í Tryggvaskála fimmtudaginn 2. október nk. kl. 19:30 með eins kvölds tvímenningi.

23.9.2008

Vetrarstarf B.A. hafið

Starfsemi Bridgefélags Akureyrar þennan veturinn hefst með tveggja kvölda Startmóti Sjóvá.

23.9.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Vetrarstarf Bridgefélags Hafnarfjarðar fer mjög vel af stað.

 

23.9.2008

Hausttvímmenningur í Kópavogi

3ja kvölda hausttvímenningur Bridgfélags Kópavogs hefst á fimmtudaginn; 25.september.

17.9.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Inda Hrönn og Grímur Freyr unnu ostakörfur!

Inda Hrönn og Grímur Freyr voru efst í 18 para tvímenning og fengu í verðlaun glæsilegar ostakörfur frá Osta og Smjörsölunni.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

16.9.2008

Bf. Suðurnesja: Garðar og Gunnlaugur byrja af KRAFTI!

Garðar Garðarsson og Gunnlaugur Sævarsson koma sprækir undan sumri og unnu fyrsta spilakvöld Bridgefélags Suðurnesja og Muninn með 70,3% skori!

Heimasíða Bf. Suðurnesja og Muninn

9.9.2008

Bridgeféla Reykjavíkur Hausttvímenningur

Reynsluboltarnir sigruðu fyrri hluta haustvímennings BR  Sjá hér

9.9.2008

BR að byrja í kvöld 9.september!

Bridgefélag Reykjavíkur hefur starfsemi sína í kvöld þriðjudaginn 9.september. Spilaður verður monrad tvímenningur og einnig næsta þriðjudag, 16.september.
Mun besta samanlagða skor telja til verðlauna. Að vanda verður spilað í Síðumúla 37 og byrjað kl. 19. Sjá dagskrá haustins hér

7.8.2008

Sumarbridge á Akureyri

Góðviðrið sem leikið hefur við landsmenn dregur ekki að marki þróttinn úr briddsurum fyrir norðan sem mætt hafa á þriðjudagskvöldum í Ána, Skipagötu 14, 4. hæð.

7.7.2008

Sumarbridge á Akureyri

Spilaður er tvímenningur á þriðjudagskvöldum í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Allir velkomnir og aðstoðað við myndun para.

Þátttaka hefur verið góð í sumar, spilað á 5 borðum undanfarnar vikur.

Efstu pör 24.6. voru:
1. Björn Þorláksson - Örlygur Örlygsson +27
2. Reynir Helgason - Pétur Guðjónsson +23
3. Gissur Jónasson - Jón Sverrisson +8
4. Páll Þórsson - Frímann Stefánsson +6
Þann 1. júlí urðu þessi pör hlutskörpust:
1. Ingólfur Ingólfsson - Þórhallur Hermannsson +24
2. Pétur Guðjónsson - Una Sveinsdóttir +23
3. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson +18
4. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +13

20.6.2008

BA

Sumarbridge í fullum gangi
 
Undanfarið hefur verið spilað á fimm borðum öll þriðjudagskvöld og skemmtileg barátta farið fram.
 
Þann 10.júní var mjög jafnt:
1.-2.Sigurður Marteinsson - Sveinbjörn Sigurðsson +11
1.-2. Valmar Valjaots - Víðir Jónsson +11
3. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson +8
 
18. júní var heldur meira bil:
 
1. Reynir Helgasson - Frímann Stefánsson +29
2. Örlygur Örlygsson - Páll Þórsson +14
3. Björn Þorláksson - Sigurður Erlingsson +7
 
Í bikarkeppni B.S.Í. hefur ein Akureyrarsveit þegar dottið út þegar BYR tapaði gegn Eykt 64-104 en nú er sveit Víðis, Pottormarnir að leika gegn sveit bróður hans frá Sandgerði og vonandi gera þeir betur en BYR og komast áfram.

11.6.2008

16.júnímót Bridgefélag Menntaskólans að Laugarvatni

16.júnímót Bridgefélags ML var vel sótt, 32 mættu til leiks og spiluð var sveitakeppni á eftir með þátttöku 10 sveita sem er sennilega met, a.m.k. á þessari öld! Efstu 3 pör fengu verðlaun ásamt efsta pari úr ML. Einnig voru veitt sérstök Kjartansverðlaun. Sverrir Þórisson og Hermann Friðriksson sigruðu en efstu Laugvetningar voru Matthías Páll Imsland framkvæmdastjóri Iceland Express og Ómar Olgeirsson. Kjartan Ásmundsson stóð sig best af Kjörtunum.

 

Efstu pör urðu:

1. 66,2% Sverrir Þórisson - Hermann Friðriksson

2. 62,1% Ásgeir Ásbjörnsson - Dröfn Guðmundsdóttir

3. 57,3% Guðrún Jóhannesdóttir - Arngunnur Jónsdóttir

4. 56,7% Matthías Páll Imsland - Ómar Olgeirsson

5. 56,5% Inda Hrönn Björnsdóttir - Grímur Kristinsson

6. 56,1% Jón Sigurðsson - Kristmundur Einarsson

 

16.júnímót ML
1.sæti: Sverrir Þórisson - Hermann Friðriksson.
Efstu Laugvetningar: Matthías Páll Imsland-Ómar Olgeirsson
Kjartansverðlaun:Kjartan Ásmundsson (að hringja í konuna og monta sig? :-))

 

4.6.2008

Sumarbridge á Akureyri

Sumarbridge er spilað á þriðjudagskvöldum í Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð og hefst kl. 19:30.  Opið hús, allt spilafólk hvatt til að láta sjá sig. Mæting hefur verið góð. Þriðjudaginn 3. júní spiluðu 10 pör og efst urðu:
1. Frímann Stefánsson - Sigurður Erlingsson        +41
2. Gissur Jónasson - Jón Sverrisson                +38
3. Hermann Huijbens - Stefán Vilhjálmsson        +11
4. Ragnheiður Haraldsdóttir - Ólína Sigurjónsdóttir +10

Umsjónarmaður sumarbridge er Frímann Stefánsson, s. 867 8744.

Mánudaginn 9. júní fer fram á sama stað leikur í bikarkeppni Bridgesambands Íslands. Þar etja kappi heimamenn í sveit Byrs (Frímann og Reynir, Pétur og Björn) og landsliðsmennirnir í sveit Eyktar (Jón og Þorlákur, Sverrir og Aðalsteinn). Þetta verður nokkurs konar lokaæfing landsliðsins fyrir Evrópumótið sem hefst 14. júní! Leikurinn hefst kl. 14:30 og lýkur um kl. 20. Áhorfendur eru boðnir velkomnir.

28.5.2008

Sumarbridge 2008: Baldur og Einar efstir af 26 pörum!!

Einar Oddsson og Baldur Bjartmarsson unnu 26 para tvímenning með 62,4% skor. Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson jr voru næstir með 61,6%.

Heimasíða Sumarbridge

28.5.2008

BA-Norðurlandsmótið

Norðurlandsmót í tvímenningi 2008

 

Norðurlandsmótið var spilað 1. maí í góðu yfirlæti í Félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal með þátttöku 16 para.

Keppnin var jöfn og æsispennandi. Þegar upp var staðið reyndust þrjú pör efst og jöfn með +38. Röðin réðist því af innbyrðis viðureignum. Norðurlandsmeistarar í tvímenningi 2008 urðu Jóhannes Tr. Jónsson og Kristján Þorsteinsson, Bridgefélagi Dalvíkur og Ólafsfjarðar, sem unnið höfðu hin pörin bæði. Í öðru sæti lentu Guðmundur Halldórsson og Pétur Gíslason, Bridgefélagi Húsavíkur, en Frímann Stefánsson og Reynir Helgason, Bridgefélagi Akureyrar urðu þriðju. Þær mæðgur frá B.A., Ólína Sigurjónsdóttir og Ragnheiður Haraldsdóttur, hrepptu fjórða sætið (+24) og Dalvíkingarnir Grzegorz Maniakowski og Jacek Dawidowicz  það fimmta (+20).

14.5.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur og Baldur voru á 1. borði allt kvöldið!!

Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson unnu 22 para tvímenning með glæsilegt skor, 61,1%. Þeir fengu að launum 2 ostakörfur. Soffía Daníelsdóttir og Alda Guðnadóttir voru í 2. sæti með 59,6% og fengu eðalkonfekt að launum. Í 3. sæti voru Guðrún J'ohannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir með 59,1%.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

14.5.2008

Fjarðarbyggð - sumarbridge í sumar

Bridgefélag Fjarðarbyggðar ætlar að spila alla þriðjudaga í sumar á Reyðarfirði
Spilamennska hefst kl. 19:30 og spilað verður í húsi verkalýsfélags Reyðarfjarðar.
Fyrsta spilakvöld sumarsins er 20.maí
Uppl. gefa Sigurður í síma 6603610 og Ríkharður í síma 8981126
Hvetjum Austfirðinga til að vera dugleg að mæta í sumarskapi !

7.5.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu 30 para tvímenning!

Guðlaugur Bessason og Sigurður  Sigurjónsson unnu einskvölds tvímenning með þátttöku 30 para. Þeir félagar voru með 62,1%. Í öðru sæti voru Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson með 60,1%.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

7.5.2008

Einmenningur BR og Iceland Express

                                                           Iceland Express

Einmenningsmeistari BR 2008 er Ísak Örn Sigurðsson. Í öðru sæti varð Sverrir Þórisson og Hlynur Garðarsson í því þriðja. Vegleg gjafabréf frá Iceland Express í verðlaun.

Sjá lokastöðu.

 

5.5.2008

Vorkvöld í Bridgefélagi Kópavogs

Síðasta spilakvöld vetrarins hjá BK verður eins kvölds tvímenningur fimmtudaginn 8. maí. Þá fer fram verðlaunafhending fyrir helztu keppnir vetrarins og eru allir velkomnir.

Skv.  venju er aðalfundinum frestað fram á haust  !!

29.4.2008

Afmælismót Árborgar 10.maí

Afmælismót Árborgar 10.maí

  

Afmælismót Árborgar fer fram 10.maí í Sólvallaskóli á Selfossi og hefst spilamennska kl. 11. Vegleg verðlaun og boðið verður upp á kaffi ofl. Spilaður verður hefðbundinn tvímenningur og áætlað að mótið klárist fyrir kvöldmat. Keppnisgjald 5000 kr á parið.

 

Skráning er hafin hér og hjá Garðari Garðarssyni í síma 844-5209.

 

Tilvalin æfing fyrir þá sem er að fara á kjördæmamótið helgina eftir !

23.4.2008

Björn Þorláksson Akureyrarmeistari

Akureyrarmótinu í einmenning er nú lokið hjá BA. Spilað var þrjú kvöld og tvö bestu giltu til úrslita. Mótið var jafnframt firmakeppni BA og þá réð hæsta kvöldskor. Bridgefélag Akureyrar færir fyrirtækjunum sem þátt tóku bestu þakkir fyrir veittan stuðning.
Björn Þorláksson lagði grunninn að góðum sigri með því að ná 65% skor fyrsta kvöldið og fékk 61,5% að meðaltali tvö kvöld. Næst í röðinni urðu:
2. Una Sveinsdóttir 58,3%
3. Helgi Steinsson 57,3%
4. Jón Sverrisson 56,6%
5. Sigfús Aðalsteinsson 54,8%
6.-7. Bragi Jóhannsson og
Gylfi Pálsson        52,9%

Efst í firmakeppninni urðu þessi fyrirtæki:
1. N4        Spilari Björn Þorláksson 65,0%
2. Villaprent sp. Una Sveinsdóttir 63,2%
3. Vífilfell sp. Sigfús Hreiðarsson 59,7%
4. Hótel Reykjahlíð sp. Pétur Gíslason 58,3%

Að lokum er minnt á Norðurlandsmót í tvímenningi sem spilað verður í Félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal fimmtudaginn 1. maí. Þetta mót hefur notið vinsælda undanfarin ár og verður svo vonandi áfram. Góð aðstaða er á Rimum og léttur hádegisverður innifalinn í keppnisgjöldum. Nánari upplýsingar gefur Hákon Sigmundsson, s. 864 6161.

23.4.2008

Spennandi Alfreðsmót

Una Sveinsdóttir og Jón Sverrisson skoruðu mest eða 32 impa annað kvöldið í minningarmótinu um Alfreð Pálsson hjá BA. Spilaður er impa-tvímenningur og pör einnig dregin saman í sveitir. Í 2.-3. sæti með 27 impa voru Grettir Frímannsson - Pétur Guðjónsson og Valmar Väljaots - Hans Viggó Reisenhus.
Röð efstu para eftir tvö kvöld af þremur er þessi:
1. Grettir Frímannsson - Pétur Guðjónsson      69 IMP
2. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason        65 IMP
3. Grétar Örlygsson - Haukur J. - Hilmar Jak.   51 IMP
4. Björn Þorláksson - Hörður Blöndal                28 IMP
5. Una Sveinsdóttir - Jón Sverrisson                16 IMP

 Efstu sveitir eru:
1. Pétur - Grettir, Pétur Gíslason - Sigurður Erlingsson                      53 IMP
2. Gissur Jónasson - Gissur Gissurarson, Grétar - Haukur - Hilmar     34 IMP

18.4.2008

Aðalsveitakeppni BR lokið

Aðalsveitakeppni BR lauk með sigri Grant Thornton annað árið í röð.

Efstu sveitir urðu:

1. Grant Thornton 155
2. Eykt                   148
3. Breki jarðverk    139
4. Prentmet            135
5. Mót X                  133

Næstu tvö spilakvöld BR verða eins kvölds tvímenningar en þetta eru þriðjudagskvöldin fyrir og eftir úrslitin á Íslandsmótinu í sveitakeppni. Veglegur einmenningur 24 efstu í bronsstigum verður svo haldinn þriðjudaginn 6.maí. Ennþá möguleiki að komast upp fyrir strikið!!

Grant
Grant Thornton aðalsveitakeppnismeistarar BR 2008
Ef grannt er skoðað má einnig sjá Unu Árnadóttur lukkudís á myndinni.

 

17.4.2008

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Mánudaginn 14.apríl lauk 3ja kvölda hraðsveitakeppni með sigri sveitar Huldu Hjálmarsdóttur
2.sæti Guðlaugur Bessason
3.sæti Edvard Hallgrímsson

Lokakeppni félagsins á þessum spilavetri er 2ja kvöld tvímenningur sem byrjar 21.apríl. kl. 19:30 að venju
Aðalfundur félagsins er 2.maí á A.Hansen  hefst hann kl. 20:00 félagsmenn eru hvattir til að koma:

17.4.2008

Suðurnes

Mánudaginn 21.apríl hefst 3ja kvölda tvímenningur og eru 2 betri kvöldin sem ráða, og verða verðlaun fyrir efstu 3 sætin. 1.sæti 15.000, 2.sæti 10.000, 3.sæti 5.000
Stjórnir félaganna hvetja alla nýja sem og eldri félaga til að fjölmenna núna í þessa keppni.  Alltaf er heitt á könnunni og konfekt með. Spilað er alla mánudaga í Félagsheimilinu að Mánagrund og hefst spilamennska á slaginu 19:15

16.4.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Ísak og Gabríel í BANAstuði!!

Ísak Örn Sigurðsson og Gabríel Gíslason unnu 23 para tvímenning með 69,8% skori. Þeir fengu gjafabréf á Veitingahúsið Lauga-Ás að launum. 2. sætið fór í hlut Halldórs Svanbergssonar og Kristins Kristinssonar sem fengu ostakörfur.

Úrslit Spilakvölda Miðvikudagsklúbbsins

9.4.2008

Íslandsmeistararnir efstir

Nýbakaðir Íslandsmeistarar í tvímenningi, Frímann Stefánsson og Reynir Helgason, tóku forystuna hjá B.A. fyrsta kvöldið í Alfreðsmótinu, minningarmóti um Alfreð Pálsson. Spilaður er impa-tvímenningur og pör einnig dregin saman í sveitir. Röð efstu para er þessi:
1. Frímann og Reynir                                47 IMP
2. Pétur Guðjónsson - Grettir Frímannsson        42 IMP
3. Haukur Jónsson - Grétar Örlygsson                33 IMP
4. Björn Þorláksson - Hörður Blöndal                 4 IMP

Efstu sveitir eru:
1. Frímann - Reynir, Ragnheiður Haraldsdóttir - Ólína Sigurjónsdóttir 41 IMP
2. Pétur - Grettir, Pétur Gíslason - Sigurður Erlingsson                     37 IMP

Alfreðsmótinu verður fram haldið 22.4. en næsta þriðjudag, 15.4., verður lokakvöldið í einmennings- og firmakeppni félagsins.
Um næstu helgi verða undanúrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni spiluð í Reykjavík. Við óskum norðlensku sveitunum þar góðs gengis við græna borðið

3.4.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Halldór og Magnús nældu sér í konfekt og kaffi

Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson unnu 22 para tvímenning með 63,4% skor. Þeir fengur konfektkassa og kaffi frá O.J.Kaaber. 2. sætið fór í hlut Guðlaugs Sveinssonar og Jörundar Þórðarsonar með 59,3% og þeir fengu konfekt frá O.J.Kaaber.

Öll úrslit Miðvikudagsklúbbsins

26.3.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Gunnar B jörn og Örvar nældu sér í 2 ostakörfur!

Gunnar Björn Helgason og Örvar Óskarsson unnu 19 para tvímenning með 57,3% skor. Næstir voru Guðlaugur Sveinsson og Páll Þór Bergsson með 55,7% og 3ja sætið fengu Eggert Bergsson og Björn Árnason með 55,6%.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

Úrslit kvöldsins

25.3.2008

3ja kvölda tvímenningur að hefjast í Kópavogi

Fimmtudaginn 27. mars næst komandi hefst þriggja kvölda tvímenningur
hjá Bridgefélagi Kópavogs.  Inn í hann miðjan kemur nýliðakvöld þegar
nemar úr MK koma í heimsókn.

25.3.2008

Aðalsveitakeppni BR byrjar í kvöld, 25.mars

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur hefst í kvöld, fjögurra kvölda mót.
Spilamennska hefst kl. 19 í Síðumúla 37.
Tilvalin æfing fyrir undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni sem fer fram 11.-13.apríl.
Nú er málið að taka upp símann og finna sér sveitarfélaga fyrir kvöldið.
 
Minnt er á að 24 bronsstigahæstu menn vetrarins hjá BR komast í veglegan einmenning í vor. Staða 30 efstu er svona 25.mars
 
1 Kjartan Ásmundsson 221
2 Jón Baldursson 218
3 Þorlákur Jónsson 218
4 Aðalsteinn Jörgensen 208
5 Sverrir Ármannsson 193
6 Kjartan Ingvarsson 191
7 Hlynur Garðarsson 191
8 Gunnlaugur Karlsson 180
9 Daníel Már Sigurðsson 155
10 Páll Valdimarsson 144
11 Hermann Friðriksson 142
12 Runólfur Jónsson 127
13 Ómar Olgeirsson 121
14 Sverrir Þórisson 121
15 Bjarni Einarsson 116
16 Sigurbjörn Haraldsson 116
17 Stefán Stefánsson 113
18 Halldór Svanbergsson 110
19 Hrólfur Hjaltason 110
20 Oddur Hjaltason 110
21 Kristján Blöndal 105
22 Jón Ingþórsson 99
23 Páll Þórsson 98
24 Guðmundur Sv. Hermannsson 91
25 Helgi Jóhannsson 91
26 Kristinn Kristinsson 90
27 Ómar Freyr Ómarsson 89
28 Aron Þorfinnsson 84
29 Guðlaugur Sveinsson 80
30 Halldór Þorvaldsson 80

18.3.2008

Aðaltvímenningi BR lokið

Tvímenningsmeistarar BR veturinn 2007 - 2008 eru þeir Hlynur Garðarsson og Kjartan Ásmundsson. Í öðru sæti eru Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson og í þriðja sæti, Páll Bergsson og Arnar Geir Hinriksson.

Sjá lokastöðu.

12.3.2008

Sveit Gylfa efst í Halldórsmóti

Halldórsmótið, minningarmót um Halldór Helgason, einn af frumkvöðlum Bridgefélags Akureyrar hófst þriðjudaginn 11. mars. Mótið er þriggja kvölda sveitakeppni með board-a-match fyrirkomulagi, þ.e. blöndu af tvímennings- og impaútreikningi. Þetta keppnisform með stuttum leikjum býður uppá miklar sviftingar og ekkert skorti á það fyrsta kvöldið. Sveit Gylfa Pálssonar vann fjóra leiki af fimm og hlaut 85 stig (meðalskor 60). Í 2.-3. sæti með 65 stig eru sveit Stefáns Vilhjálmssonar, sem tókst að lækka flugið hjá Gylfa og félögum, og sveit Unu Sveinsdóttur.

Sunnudagskvöldið 16.3. verður spilaður eins kvölds tvímenningur í Skipagötu 14, 4. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!

11.3.2008

Aðaltvímenningur BR kvöld 3

 

Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson eru í fyrsta sæti eftir 3 kvöld af 4.

Sjá stöðu

11.3.2008

Norðurland-Eystra

Frímann og Reynir svæðameistarar í tvímenning á Norðurlandi -eystra með  73 stig
2. sæti Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson með                                      63 stig
3. sæti Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson                                                           16 stig
4. sæti Pétur Gíslason og Þórólfur Jónasson                                                    14 stig

10.3.2008

Sveit Breka jarðverks varð efst á Suðurlandsmótinu í sveitakeppni

Sveit Breka jarðverks varð efst á Suðurlandsmótinu í sveitakeppni sem haldið var 8. og 9. mars sl. Í öðru sæti varð sveit Tryggingamiðstöðvarinnar, sem vann jafnframt sér inn Suðurlandsmeistaratitilinn í sveitakeppni 2008, þar sem sveit Breka jarðverks var aðeins að 1/5 hluta skipuð spilurum úr sunnlenskum bridgefélögum. Í þriðja sæti varð sveit Mjólkursamsölunnar ehf. Fjórða sveitin sem vann sér inn rétt til að spila á Íslandsmótinu í sveitakeppni 2008 var sveit Landsbankans Hvolsvelli.

Efstir í butlerútreikningi urðu:
1. Vilhjálmur Þór Pálsson, Tryggingamiðstöðinni   1,58
2. Ragnar Magnússon, Breka jarðverki                1,27
3. Páll Valdimarsson, Breka jarðverki                    1,00

Nánar má finna um úrslitin á þessari síðu

8.3.2008

Reykjavíkurmótinu í tvímenningi lokið

Friðjón Þórhallsson og Sigfús Örn Árnason unnu Reykjavíkurmótið í tvímenningi með nokkrum yfirburðum.

sjá stöðu

Rvkmót-tví-2008
3.sæti: Sveinn R. Þorvaldsson-Gísli Steingrímsson,1.sæti: Friðjón Þórhallsson-Sigfús Örn Árnason, 2.sæti: Sverrir Þórisson-Páll Þórsson

5.3.2008

Heilsuhornstvímenningur B.A.

Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson unnu Heilsuhornstvímenning Bridgefélags Akureyrar með yfirburðum, hlutu +51. Hart var barist um næstu sæti en endanleg röð var þessi:
2. Valmar Väljaots - Hans Viggó Reisenhus +17
3. Hermann Huijbens - Haukur Jónsson - Stefán Vilhjálmsson +16
4. Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal +14
5. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +13
Heilsuhornið á Glerártorgi veitti verðlaun í formi vöruúttektar fyrir þrjú efstu sætin.

Næst á dagskrá hjá B.A. er Halldórsmótið, þriggja kvölda sveitakeppni með board-a-match fyrirkomulagi. Víðir Jónsson, keppnisstjóri, tekur við skráningum í síma 897 7628. Aðstoðað verður við myndun sveita.

5.3.2008

Reykjanesmót í tvímenning

Reykjanesmót í tvímenning verður haldið þann 8.mars kl. 11:00
Spilað verður í Félagsheimili Mána, Suðurnesjum 
Keppnisgjöld eru kr. 4.000 á parið - Allir velkomnir !

Skráning er hjá Erlu í síma 659-3013 og Lofti í síma 897-0881

5.3.2008

Aðaltvímenningur BR - kvöld 2

Daníel Már Sigurðsson og Aron Njáll Þorfinnsson skoruðu grimmt í kvöld (65,3%) og leiða mótið með 63,8 %, í öðru sæti eru Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson með 63,3 %.

Sjá stöðu

3.3.2008

Suðurlandsmótið í sveitakeppni 8. - 9. mars

Suðurlandsmótið í sveitakeppni verður haldið 8. og 9. mars, í golfskálanum á Svarfhólsvelli, rétt fyrir utan Selfoss. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 6. mars, og hægt er að skrá sig hjá Ólafi í síma 898 2880 eða tölvupósti ost@ms.is og Garðari í síma 844 5209. Sjá nánar um mótið með því að smella hér að neðan.

3.3.2008

BA

Heilsuhornstvímenningur B.A.

Eftir fyrra kvöldið í Heilsuhornstvímenningi Bridgefélags Akureyrar er staða efstu para þessi:

1. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +28

2. Haukur Jónsson - Hermann Huijbens +22

3. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +20

4. Valmar Väljaots - Hans Viggó Reisenhus +14

Svæðismót Norðurlands eystra í tvímenningi verður spilað laugardaginn 8. mars í Lionssalnum, Skipagötu 14,4.hæð, Akureyri. Mótið er öllum opið og 3/4 hluti para öðlast rétt til að spila í úrslitum Íslandsmótsins í tvímenning sem fram fer í Reykjavík helgina 29.-30. mars. Nánari upplýsingar veitir Stefán Vilhjálmsson, sími 898 4475.

26.2.2008

Aðaltvímenningur BR

Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson skoruðu grimmt fyrsta kvöldið af 4 í aðaltvímenning BR sem hófs í kvöld og leiða þeir listann með 67,9% skor, Guðmundur Snorrason og Aron Njáll Þorfinnsson eru í öðru sæti með 62,4%

Sjá stöðu

21.2.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Erla og Sigfús með 67,3% skor

Erla Sigurjónsdóttir og Sigfús Þórðarson voru heldur betur á skotskónum og náðu meira en 2/3 af mögulegum stigum. Hulda Hjálmarsdóttir og Andrés Þórarinsson komust næst því að hæga á þeim og Inda Hrönn Björnsdóttir og Árni Björn Birgisson enduðu í 3ja sæti. Öll þessi pör fengu verðlaun því Inda og Árni voru dregin út og fengu handahófsverðlaunin.

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

Munið að næsta Miðvikudag byrjar Madeira leikur Miðvikudagsklúbbsins!!

20.2.2008

Björn í stuði

Á fyrsta spilakvöldinu af þremur í Akureyrarmótinu í einmenning náði Björn Þorláksson langbesta skori eða 65,0%. Næstur var Stefán Sveinbjörnsson með 55,6% og í 3.-5. sæti með 53,3% skor urðu Helgi Steinsson, Sigfús Aðalsteinsson og Una Sveinsdóttir. Samanlagður árangur tveggja kvölda gildir í mótinu. Næsta einmenningskvöld er 23. mars en næst á dagskrá B.A. er tveggja kvölda Heilsuhornstvímenningur. Heilsuhornið á Glerártorgi veitir verðlaun í formi vöruúttektar. Spilamennska hefst í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð kl. 19:30 og spilarar eru beðnir að mæta tímanlega þann 26.2. til skráningar.
Stjórn B.A. minnir á sunnudagsbridge á sama stað kl. 19:30. Spilaður er eins kvölds tvímenningur og allir hjartanlega velkomnir.

20.2.2008

Aðaltvímenningur BR hefst næsta þriðjudag, 26.feb

Bridgefélag Reykjavíkur

AÐALTVÍMENNINGUR 2008

 Þriðjudaginn 26. febrúar hefst 4 kvölda aðaltvímenningur BR. Tilvalið að koma sér í gott tvímenningsform fyrir Íslandsmótið í tvímenning sem verður eftir rúman mánuð.

Spilamennska hefst kl. 19:00 í Síðumúla 37 alla þriðjudaga.

Skráning hér, á www.bridge.is/br og á staðnum.

 

19.2.2008

BR - 19. feb.

Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson unnu öruggan sigur í einskvölda tvímenningi BR sem fram fór í kvöld.

12.2.2008

BR 12. feb

Einskvöldatvímenningur BR
Sigurvegarar kvöldsins voru þeir Kristinn Ólafsson og Erlendur Jónsson

5.2.2008

Janúarbötler BR lokið

Hlynur Garðarsson og Kjartan Ásmundsson sigruðu í þriggja kvölda bötlermóti sem kláraðist í kvöld.  Í öðru sæti innan við einum impa á eftir voru þeir Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson.
Sjá úrslit hér

30.1.2008

Janúarbötler BR

Þegar tvö kvöld eru búin af þrem eru þér Hlynur Garðarsson og Kjartan Ásmundsson með tveggja impa forystu á Jón Baldursson og Þorlák Jónsson.  Jón og Láki skoruð mest allra í kvöld 60 impa.

Sjá stöðu í mótinu

28.1.2008

Bridgefélag Akureyrar

Sveit Sparisjóðs Norðlendinga efst í Akureyrarmóti.

Akureyrarmótið í sveitakeppni stendur nú sem hæst. hjá Bridgefélagi Akureyrar.  Að loknum tveimur kvöldum af fimm er staðan þessi:
1. Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 118 stig
2. Sveit Gylfa Pálssonar 109 stig
3. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 93 stig
4. Sveit Gissurar Jónassonar 91 stig

Sunnudagsbridge hefst aftur hjá B.A. 3. febrúar eftir nokkurt hlé. Spilaður verður léttur eins kvölds tvímenningur, allir bridsspilarar velkomnir. Spilamennska hefst kl. 19:30 og spilastaður okkar er Lionssalurinn Áin, Skipagötu 14, 4. hæð. Heitt á könnunni og góð stemmning.


Svæðismót Norðurlands eystra

Svæðismót Norðurlands eystra í sveitakeppni var haldið 19.-20. janúar. Þrátt fyrir rysjótt veður á Norðausturlandi þessa helgi brutust Þingeyingar á mótsstað á Akureyri og spilað var af fullum þrótti. Sex sveitir tóku þátt í mótinu að þessu sinni og fimm komust áfram í undanúrslitin. Ein sveitin keppti sem gestir og því má með sanni segja að baráttan um að komast áfram hafi oft verið harðari!
Röð efstu sveita:
1. Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 199 stig
2. Sveit Gylfa Pálssonar 175 stig
3. Sveit Guðmundar Halldórssonar 142 stig
Sú síðasttalda spilaði sem gestasveit. Sveit Olís, Dalvík, sv. Stefáns Vilhjálmssonar og sv. Ragnheiðar Haraldsdóttur hlutu því einnig rétt til áframhaldandi þáttöku í Íslandsmótinu 11.-13. apríl.

25.1.2008

Suðurlandsmótið í tvímenningi

Suðurlandsmótið í tvímenningi var haldið á Heimalandi undir Eyjafjöllum
19. janúar sl. 15 pör mættu til leiks og unnu 11 efstu sér inn rétt til
að spila á Íslandsmótinu í tvímenningi í marslok nk.

Efstu pör urðu þessi:

Garðar Garðarsson – Gunnar Þórðarson 101
Björn Snorrason – Guðjón Einarsson 37
Sigurður Vilhjálmsson – Gísli Þórarinss. 26
Sigurður Skagfjörð – Torfi Jónsson 24
Þröstur Árnason – Ríkharður Sverrisson 18
Helgi Hermannss. – Brynjólfur Gestss. 15
Vilhjálmur Þór. Pálss. – Þórður Sigurðss. 11

24.1.2008

Miðvikudagsklúbburinn: Ingvar og Brynjar efstir í UNICEF góðgerðarkvöldi

Ingvar Hilmarsson og Brynjar Jónsson urðu efstir með 62,7% í Alheims-góðgerðar bridgekvöldi hjá Miðvikudagsklúbbnum og heiminum. Inda Hrönn og Svala Pálsdóttir voru í 2. með 61,0%.

Staðan á Heimsvísu

Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins

22.1.2008

Janúarbötler BR

Í kvöld hófst þriggja kvölda bötler með þátttöku 32 para hjá BR.
Guðmundur Sveinn Hermannsson og Helgi Jóhannsson leiða eftir 10 umferðir af 31.

 

22.1.2008

Alheimstvímenningur-UNICEF

Miðvikudaginn 23.janúar verður Mivikudagsklúbburinn og BSÍ með Evróputvímenning og rennur allur ágóði til UNICEF. Hvetjum við spilara til að mæta og styrkja þetta góða málefni.

Hér munu úrslitin birtast

Ingvar Hilmarsson go Brynjar Jónsson voru í 3. sæti á heimsvísu þegar úrslit Miðvikudagsklúbbsins fóru inn!

19.1.2008

Reykjavíkumótinu í sveitkakeppni lokið

Sveit Enorma ; Sigfús Örn Árnason, Friðjón Þórhallsson, Hermann Lárusson, Þröstur Ingimarsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr. og Jón Ingþórsson) unnu mótið nokkuð örugglega. Í öðru sæti varð sveit Eyktar og Þrír Frakkar í því þriðja.

Sjá heimasíðu mótsins

16.1.2008

Bridgefélag Reykjavíkur að fara af stað

Nú klárast Reykjavíkurmótið á laugardag, 19.janúar og fyrsta spilakvöld BR á nýju ári verður þriðjudaginn 22.janúar. Fyrsta mótið er 3ja kvölda bötlertvímenningur en þetta keppnisform hefur verið afar vinsælt í BR undanfarin ár. Að vanda er spilað í Síðumúla 37 og byrjað kl. 19.
Tilvalið að koma sér í góða æfingu fyrir Bridgehátíð sem verður eftir tæpan mánuð.
Nánar á bridge.is/br

16.1.2008

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni stendur nú sem hæst. Lokið er 11 umferðum af 15 og staða efstu sveita er eftirfarandi:

1 . Enorma                                224
2. Grant Thornton                    211
3. Sölufélag garðyrkjumanna   199
4. Eykt                                      195
5. Gylfi Baldursson                    187
6. Þrír Frakkar                           184
7. Aron                                      176
8. Björn Eysteinsson                 174

Mótið klárast á laugardaginn og eru áhorfendur hvattir til að fylgjast með spennandi lokabaráttu í Síðumúla 37. Nánar hér

12.1.2008

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni

Spilaðar verða 7 umferðir í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni um helgina og verður staðan uppfærð eftir hverja umferð á heimasíðu mótsins.

11.1.2008

Reykjanesmótið í sveitakeppni 2008

Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið 19 og 20.janúar n.k. á heimavelli Bridgefélag Hafnarfjarðar að Flatahrauni 3, Hf.

10.1.2008

BA

Björn og Sigurður bestir í nýárstvímenningi B.A.

Starfsemi Bridgefélags Akureyrar á nýju ári hófst með nýárstvímenningi 8. janúar. Hlutskarpastir urðu þeir Björn þorláksson og Sigurður Erlingsson með +25 stig. Í öðru sæti voru Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson + 17 stig og í því þriðja Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson með +8.
Þriðjudaginn 15. janúar hefst fimm kvölda Akureyrarmót í sveitakeppni. Skráning hjá Víði Jónssyni, s. 897 7628 og Stefáni Vilhjálmssyni s. 898 4475. Aðstoðað verður við myndun sveita.
Einnig er minnt á svæðismót Norðurlands eystra í sveitakeppni 19.-20.1. 2008. Upplýsingar og skráning: Stefán V., s. 898 4475

9.1.2008

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni

SR Group leiðir eftir tvær umferðir í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni

Sjá heimasíðu mótsins

2.1.2008

Miðvikudagsklúbburinn

Miðvikudagsklúbburinn sendir spilirum um land allt bestu óskir um gleðilegt nýtt ár
Stafseminn hefst miðvikudaginn 9.janúar 2008


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag


Bf. Hafnarfjarðar, Flatahrauni 3, hefst kl. 19:00
B. Dalvíkur og Ólafsfj. Mímisbrunni, hefst kl.19:30
Bridgedeild Sjálfsbjargar, Hátúni 12, kl. 19:00

Skoða alla daga


Olís

Slóð:

Félög

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS