Félög
20.12.2008
Bridgehátíð Vesturlands í Borgarnesi
Bridgehátíð Vesturlands verður að venju haldin á Hótel Borgarnesi fyrstu helgina á nýju ári, þ.e. 3-4 janúar. Á laugardeginum verður sveitakeppni, 8 spila leikir, 8 umferðir eftir monrad. Á sunnudeginum verður monrad-tvímenningur, 4 spil í umferð, 12 umferðir. Dagskrá verður þannig:
Laugardagur: Spilamennska hefst kl. 10.00, spilaðir 3 leikir, kl. 13.15 matarhlé í 30 mín. og síðan 5 leikir.
Sunnudagur: Spilamennska hefst 10.30, 5 umferðir, kl. 13.15 matarhlé og síðan sjö umferðir.
Þáttökugjöld: Sveitakeppni: 10.000,- pr. sveit Tvímenningur: 2.500,- á mann
Skráning á staðnum, bara mæta tímanlega.
Hótel Borgarnes verður með góð tilboð á gistingu og mat eins og venjulega, s. 437-1119
17.12.2008
KEA hangikjöt er best
Það segja allavega matgæðingar Bridgefélags Akureyrar en síðasta spilakvöld fyrir jól var KEA-hangikjötstvímenningur þar sem það var í boði auk magáls.
17.12.2008
Jólabingó
Fimmtudaginn 18.dsember verður BR með jólabingó í Síðumúlanum og hefst kl. 19:00
Mikið fjör fyrir alla fjölskylduna, bæði yngstu og elstu.

17.12.2008
Bf. Fjarðarbyggðar
28.desember verður haldið Jólamót Bf. Fjarðarbyggðar og hefst mótið kl. 12:00, stundvíslega
Spilastaður: Reyðarfjörður
Uppl. gefur Sigurður í síma 660 3610
17.12.2008
Jólamót BR 30.desember
til minningar um Jónas P. Erlingsson
spilað verður í Síðumúlanum og hefst stundvíslega kl. 17:00
Tekið er við skráningum á skrifstofu BSÍ í síma 587-9360, á keppnisstjori@bridgefelag.is eða hér
16.12.2008
Bridgefélag Hafnarfjarðar, næst spilað 12 jan.
Ein umferð var spiluð í aðalsveitakeppninni í gærkvöld og jókst spennan á toppnum enn frekar. Staðan eftir 5 umferðir er þessi:
1. 10-11 91
2. Elding 90
3-4 Erla og Miðvikudagskl. 84
5. Einar Sigurðsson 76
6. Guðlaugur Bessason 74
7. Sigurjón Harðarson 73
8. Vinir 71
9. Skeggi 66
10. EPLI 63
11. Hrund 60
12. Hulda Hjálmarsdóttir 58
Á eftir var spilaður léttur jólatvímenningur á átta borðum þar sem spilarar voru dregnir saman í pör. Efstir í N-S urðu Hafþór Kristjánsson og Guðlaugur Bessason með 103, en í A-V voru Björn Arnarson og Haukur Árnason efstir með 98.
Nú tekur við jólafrí og er næsti spiladagur þann 12. janúar á nýju ári.
GLEÐILEG JÓL
12.12.2008
Jólatvímenningur í Kópavogi
Bridgefélag Kópavogs
Siðasta keppni fyrir jól verður jólatvímenningur 18.desember.
11.12.2008
Akureyri með sveit í alþjóðlegri deildakeppni
11.12.2008
Akureyrarmeistarar í tvímenningi fundnir
Með góðum lokaspretti náðu Gylfi og Helgi að endurheimta toppsætið.
9.12.2008
Bridgefélag Hafnarfjarðar Einn leikur næsta mánudag
Nú eru búnar fjórar umferðir í aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar og munar aðeins einu stigi á tveimur efstu sveitunum og síðan koma nokkrar í humátt þar á eftir. Staðan eftir 4 umferðir:
1. 10-11 79
2. Erla Sigurjónsdóttir 78
3-4 Elding og Miðvikudagsklúbburinn 72
5. Guðlaugur Bessason 64
6-8 Sigurjón Harðarson,Vinir og Skeggi 53
9. Einar Sigurðsson 52
10. EPLI 48
11. Hrund 45
12. Hulda Hjálmarsdóttir 41
Næsta mánudag, 15 des. verður spilaður einn leikur í aðalsveitakeppninni og síðan léttur jólatvímenningur á eftir.
Jólamóti Brridgefélags Hafnarfjarðar hefur verið flýtt um einn dag og verður sunnudaginn 28 des.
8.12.2008
Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2009 - Skráning
4 sveitir hafa skráð sig í Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2009.
Skráningin verður uppfærð á netinu eins fljótt og auðið er.
4.12.2008
Miðvikudagsklúbburinn: Unnar Atli og Björn unnu 20 para tvímenning!
Unnar Atli Guðmundsson og Björn Árnason unnu 20 para einskvölds tvímenning með +41 stig. Þeir voru 0,8 stigum á undan Sigurður Kristjánssyni og Eiríki Sigurðssyni. Sigurvegararnir fengu glæsilegar ostakörfur í verðlaun
2.12.2008
Bridgefélag Hafnarfjarðar, 10-11 byrja vel
Aðalsveitakeppni félagsins hófst í gærkvöldi með þátttöku tólf sveita og er það met aðsókn í vetur. Sveit 10-11 byrjaði best og er með 42 stig eftir tvær umferðir. Staðan er annars þessi:
1. 10-11 42
2. Erla Sigurjónsdóttir 37
3. Elding 34
4. Miðvikudagsklúbburinn 33
5-6 Einar Sigurðsson 32
5-6 Skeggi 32
7. Guðlaugur Bessason 31
8. Vinir 28
9. Hulda Hjálmarsdóttir 25
10-11 Sigurjón Harðarson 24
10-11 EPLI 24
12. Hrund 16














