Félög
28.5.2008
Sumarbridge 2008: Baldur og Einar efstir af 26 pörum!!
Einar Oddsson og Baldur Bjartmarsson unnu 26 para tvímenning með 62,4% skor. Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson jr voru næstir með 61,6%.
28.5.2008
BA-Norðurlandsmótið
Norðurlandsmót í tvímenningi 2008
Norðurlandsmótið var spilað 1. maí í góðu yfirlæti í Félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal með þátttöku 16 para.
Keppnin var jöfn og æsispennandi. Þegar upp var staðið reyndust þrjú pör efst og jöfn með +38. Röðin réðist því af innbyrðis viðureignum. Norðurlandsmeistarar í tvímenningi 2008 urðu Jóhannes Tr. Jónsson og Kristján Þorsteinsson, Bridgefélagi Dalvíkur og Ólafsfjarðar, sem unnið höfðu hin pörin bæði. Í öðru sæti lentu Guðmundur Halldórsson og Pétur Gíslason, Bridgefélagi Húsavíkur, en Frímann Stefánsson og Reynir Helgason, Bridgefélagi Akureyrar urðu þriðju. Þær mæðgur frá B.A., Ólína Sigurjónsdóttir og Ragnheiður Haraldsdóttur, hrepptu fjórða sætið (+24) og Dalvíkingarnir Grzegorz Maniakowski og Jacek Dawidowicz það fimmta (+20).
14.5.2008
Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur og Baldur voru á 1. borði allt kvöldið!!
Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson unnu 22 para tvímenning með glæsilegt skor, 61,1%. Þeir fengu að launum 2 ostakörfur. Soffía Daníelsdóttir og Alda Guðnadóttir voru í 2. sæti með 59,6% og fengu eðalkonfekt að launum. Í 3. sæti voru Guðrún J'ohannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir með 59,1%.
14.5.2008
Fjarðarbyggð - sumarbridge í sumar
Bridgefélag Fjarðarbyggðar ætlar að spila alla þriðjudaga í sumar á Reyðarfirði
Spilamennska hefst kl. 19:30 og spilað verður í húsi verkalýsfélags Reyðarfjarðar.
Fyrsta spilakvöld sumarsins er 20.maí
Uppl. gefa Sigurður í síma 6603610 og Ríkharður í síma 8981126
Hvetjum Austfirðinga til að vera dugleg að mæta í sumarskapi !
7.5.2008
Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu 30 para tvímenning!
Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu einskvölds tvímenning með þátttöku 30 para. Þeir félagar voru með 62,1%. Í öðru sæti voru Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson með 60,1%.
7.5.2008
Einmenningur BR og Iceland Express

Einmenningsmeistari BR 2008 er Ísak Örn Sigurðsson. Í öðru sæti varð Sverrir Þórisson og Hlynur Garðarsson í því þriðja. Vegleg gjafabréf frá Iceland Express í verðlaun.
5.5.2008
Vorkvöld í Bridgefélagi Kópavogs
Síðasta spilakvöld vetrarins hjá BK verður eins kvölds tvímenningur fimmtudaginn 8. maí. Þá fer fram verðlaunafhending fyrir helztu keppnir vetrarins og eru allir velkomnir.
Skv. venju er aðalfundinum frestað fram á haust !!










