Félög
30.9.2008
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 29 september var spilaður mitchell-tvímeninngur á átta borðum, sjö umferðir, 4 spil á milli para. Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
N-S: 1. Sigurjón Harðarson-Haukur Árnason 209
2. Óli Björn Gunnarsson-Valdimar Elíasson 207
3. Andrés Þórarinsson-Hulda Hjálmarsdóttir 191
A-V: 1. Dröfn Guðmundsdóttir-Ásgeir Ásbjörnsson 223
2. Eðvarð Hallgrímsson-Magnús Sverrisson 208
3. Halldór Einarsson-Guðni Ingvarsson 175
Næsta mánudag er síðasti eins-kvölds tvímenningurinn áður en við byrjum á þriggja kvölda Barómeter svo það er um að gera að fara drífa sig í fjörið í Hafnarfirðinum. Það er spilað í Hraunseli, Flatahrauni 3, á mánudagum kl. 19.00 stundvíslega. SJÁUMST HRESS!!!!!!!
30.9.2008
Bf. Muninn og Suðurnesja: Sveinn og Guðlaugur skelltu sér á toppinn í síðustu umferð!
Sveinn Rúnar Eiríksson og Guðlaugur Sveinsson voru efstir í eina umferð og svo skemmtilega vildi til (fyrir þá) að það var síðasta umferðin! Þeir fengu 60,0% skor, 0,8% meira en Gunnar Guðbjörnsson og Kristján Kristjánsson sem voru í 2. sæti.
24.9.2008
Miðvikudagsklúbburinn: Hermann og Ásmundur unnu 1. verðlaun á jöfnu!
Hermann Friðriksson og Ásmundur Örnólfsson og Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Freyr Kristinsson voru efst og jöfn í 19 para tvímenning. Hermann og Ásmundur drógu hærra spil í úrdrætti og fengu ostakörfur frá Ostabúðinni í verðlaun.
24.9.2008
Starfsemi Bridgefélags Selfoss að hefjast
Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 28. september í Framsóknarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi. Fundurinn hefst kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf og síðan létt spilamennska á eftir.
Starfsemi vetrarins hefst svo í Tryggvaskála fimmtudaginn 2. október nk. kl. 19:30 með eins kvölds tvímenningi.
23.9.2008
Vetrarstarf B.A. hafið
Starfsemi Bridgefélags Akureyrar þennan veturinn hefst með tveggja kvölda Startmóti Sjóvá.
23.9.2008
Hausttvímmenningur í Kópavogi
3ja kvölda hausttvímenningur Bridgfélags Kópavogs hefst á fimmtudaginn; 25.september.
17.9.2008
Miðvikudagsklúbburinn: Inda Hrönn og Grímur Freyr unnu ostakörfur!
Inda Hrönn og Grímur Freyr voru efst í 18 para tvímenning og fengu í verðlaun glæsilegar ostakörfur frá Osta og Smjörsölunni.
16.9.2008
Bf. Suðurnesja: Garðar og Gunnlaugur byrja af KRAFTI!
Garðar Garðarsson og Gunnlaugur Sævarsson koma sprækir undan sumri og unnu fyrsta spilakvöld Bridgefélags Suðurnesja og Muninn með 70,3% skori!
9.9.2008
Bridgeféla Reykjavíkur Hausttvímenningur
Reynsluboltarnir sigruðu fyrri hluta haustvímennings BR Sjá hér
9.9.2008
BR að byrja í kvöld 9.september!
Bridgefélag Reykjavíkur hefur starfsemi sína í kvöld þriðjudaginn 9.september. Spilaður verður monrad tvímenningur og einnig næsta þriðjudag, 16.september.
Mun besta samanlagða skor telja til verðlauna. Að vanda verður spilað í Síðumúla 37 og byrjað kl. 19. Sjá dagskrá haustins hér
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bf. Hafnarfjarðar, Flatahrauni 3, hefst kl. 19:00
B. Dalvíkur og Ólafsfj. Mímisbrunni, hefst kl.19:30
Bridgedeild Sjálfsbjargar, Hátúni 12, kl. 19:00














