Félög
27.11.2009
Bridgefélag Selfoss: Önnur umferðin í hraðsveitakeppninni
Önnur umferðin í Hraðsveitakeppninni var spiluð fimmtudaginn 26. nóvember sl. Þeir Gunnar Björn, Ólafur, Sveinn og Torfi leiða enn mótið, nú með 3 impa forskoti. Úrslit og stöðu má fá með því að smella á tenglana hér að neðan.
Mótinu lýkur svo fimmtudaginn 3. desember.
26.11.2009
Miðvikudagsklúbburinn: Haraldur Ingason og Þórir Sigursteinsson unnu með 63,4%
Haraldur Ingason og Þórir Sigursteinsson fengu nýju bridgebókina hans Guðmundar Páls, Íslenskar bridgeþrautir, í verðlaun fyrir að vinna einskvölds tvímenning í Miðvikudagsklúbbnum. Háðu þeir harða baráttu við Gunnar Björn Helgason og Ingólf Pál Matthíasson sem enduðu í 2. sæti með 62,1%.
25.11.2009
Cavendish tvímenningur BR
Hlynur Angantýsson og Ragnar Hermannsson leiða mótið eftir fyrsta kvöld af þremur með 619 stig
Sjá nánar á heimasíðu BR
23.11.2009
Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr fyrsta kvöldi hraðsveitakeppninnar
Keppni hófst í hraðsveitakeppni félagsins 19. nóvember sl. Í mótinu taka sex sveitir þátt, og verður mótið spilað á þremur kvöldum. Efstir í mótinu eftir fyrsta kvöldið eru Ólafur, Gunnar Björn, Torfi og Sveinn með 64 impa í plús. Með einum impa minna eru Brynjólfur, Helgi, Gísli og Magnús með 63 impa í plús. Úrslit fyrsta kvöldisins urðu annars þessi:
Önnur umferðin verður spiluð 26. nóvember nk.
19.11.2009
Bridgefélag Rangæinga
18.11.2009
Miðvikudagsklúbburinn: Sigtryggur og Gísli með 68,5% skor!!
Sigtryggur Sigurðsson og Gísli Steingrímsson unnu 25 para mót með glæsilegu skori, 68,5% skor. Þeir fengu að launum nýútgefnu bókina, Íslenskar bridge þrautir eftir Guðmund Pál. Stefán Freyr og Sigurður Páll voru dregnir út og fengu gos og pylsu að eigin vali hjá Bæjarins Bestu.
17.11.2009
Hraðsveitakeppni BR 2009
Grant thornton sigraði hraðsveitakeppnina á endasprettinum
15.11.2009
Briddsfélag Selfoss
Þriggja kvölda butler tvímenningi félagsins lauk síðastliðið fimmtudagskvöld með sigri þeirra Björns Snorrasonar og Vilhjálms Pálssonar. Lokastöðuna má sjá hér.
Næsta mót félagsins er hraðsveitakeppni. Pörum verður raðað í sveitir í upphafi.
12.11.2009
Bridgefélag Rangæinga
Samvinnumótið – 06.11.09 og 1 kvöld í „BUTLER- 5 kvöld- 4 bestu“
Föstudaginn 6. Nóvember var haldið Samvinnumótið þar sem Rangæingar og Selfyssingar öttu kappi. Að þessu sinni voru það hlutskipti Selfyssinga að leggja land undir fót og heimsækja nágranna sína í austri. Skemmst er frá því að segja að Gunnar og Sigfinnur báru sigur úr bítum með skor uppá 63,66% en nánari úrslit er hægt að sjá hér.
Síðastliðinn þriðjudag þ.e. 10.11.09 fór fram fyrsta kvöld í 5 kvölda Butler þar sem 4 bestu skor telja. Bræðurnir Örn og Svavar komu, sáu og sigruðu og augljóst að Svavar hefur verið í góðu yfirlæti og hvíld í Svíþjóð og hefur engu gleymt. Hægt er að sjá nánari hér.
11.11.2009
Miðvikudagsklúbburinn: Stigið!! og Sigtryggur og Gísli unnu!!
Sigtryggur Sigurðsson og Gísli Steingrímsson unnu 25 para tvímenning með 63,2% skori. Næstir voru Garðar Valur Jónsson og Björn Arnarson með 61,8% og í 3ja sæti voru Gabríel Gíslason og Sigurður Steingrímsson með 61,0%.
10.11.2009
Hraðsveitakeppni BR 2009
Sveit G. Bald er með góða forystu eftir 2 kvöld af þremur.
Efstu sveitir eru.
1 G. Bald..................1167
2 Grant Thornton...........1105
3 Símon Símonarson.........1098
Sjá nánar á heimasíðu BR
10.11.2009
Bridgefélag Kópavogs
Spilað er í Gjábakka, Fannborg 8 og hefst spilamennska kl. 19.oo.
10.11.2009
Bridgefélag Hafnarfjarðar - Harpa Fold og Danni tjokkó langefst
Efstu pör
1. 66,3% Harpa Fold Ingólfsdóttir og Daníel Már Sigurðsson
2. 56,5% Ólafur Jóhannsson - Pétur Sigurðsson
3-4. 56,2% Sigurður Sigurjónsson - Eðvarð Hallgrímsson
3-4. 56,2% Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson
Öll úrslit og spil má sjá á heimasíðu B.Hafn
Næsta keppni félagsins er þriggja kvölda Mitchell tvímenningur. Spilað á mánudögum kl. 19 í Flatarhrauni 3.
9.11.2009
Bridgefélag Selfoss
Annað kvöld af þremur í butlertvímenning var spilað síðastliðið fimmtudagskvöld. Eftr kvöldið eru þeir Björn og Vilhjálmur með góða forystu. Stöðuna má sjá hér.
Mótinu líkur svo næstkomandi fimmtudag og má búast við æsispennandi keppni. Spilamennska hefst að venju kl 19:30 í Tryggvaskála.
5.11.2009
Bridgefélag Rangæinga
Síðasta þriðjudag fór fram haustbarómeter hjá Rangæingum. Hart var barist og mjótt á munum. En að lokum stóðu Guðmundur og Óskar uppi sem sigurvegarar með prósentuskor uppá 57,69%, með sama skor en lakari árangur í innbyrðis „orrustu“ urðu Torfi og Ævar. Hægt er að skoða úrslitin nánar hér.
5.11.2009
Miðvikudagsklúbburinn
20 pör mættu til leiks í miðvikudagsklúbbnum 4.nóvember. Unnar Atli Guðmundsson og Björn Árnason tóku snemma forystuna og héldu henni til loka. Öll úrslit og spil má sjá hér
4.11.2009
Bridgefélag Reykjavíkur - Hraðsveitakeppni
2.11.2009
Bridgefélag Hafnarfjarðar - María og Sverrir öruggir sigurvegarar
1. 64,3% María Haraldsdóttir - Sverrir Þórisson
2. 60,7% Einar Sigurðsson - Högni Friðþjófsson
3. 55,2% Hermann Friðriksson - Jón Guðmar Jónsson
4. 54,0% Atli Hjartarson - Hafþór Kristjánsson
5. 53,8% Sveinn Ragnarsson - Runólfur Guðmundsson
Öll úrslit og spil á heimasíðu Bridgefélags Hafnarfjarðar á bridge.is














