Félög
30.9.2009
Startmóti BA lokiđ
Ţá er fyrsta móti af vetrardagskrá Bridgefélags Akureyrar lokið en þar lauk tveggja kvölda startmóti.
29.9.2009
Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur
29.9.2009
A-Hansen mót Bridgefélags Hafnfj.
1. 64,8% Guðbrandur Sigurbergsson - Friðþjófur Einarsson
2. 61,9% Harpa Fold Ingólfsdóttir - Brynja Dýrborgardóttir
3. 59,6% Sigurjón Harðarson - Haukur Árnason
Sjá nánar á heimasíðu Bridgefélags Hafnarfjarðar á bridge.is
27.9.2009
Briddsfélag Selfoss og nágrennis
Næstkomandi fimmtudag hefst spilamennska hjá briddsfélagi Selfoss. Spilaður verður einskvöldstvímenningur. Spilað verður í Tryggvaskála og hefst spilamennska stundvíslega kl 19:30
Hægt er að skrá sig hér http://bokun.netberg.is/bridgeselfoss/
24.9.2009
Miđvikudagsklúbburinn: Hafliđi Baldursson og Unnar Atli Guđmundsson međ 63.4%
Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 18 para tvímenning með góðu skori, 63.4%. Þeir fengu gjafabréf á Just Food to go að Laugarásvegi 1. Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson urðu í 2. sæti og Björn Arnarsson og Garðar Valur Jónsson nældu sér i 3. sæti.
22.9.2009
Vetrarstarf B.A. hafiđ
Starf Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið með tveggja kvölda Starttvímenningi.
22.9.2009
Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur
Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur með 52 stig. Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson eru næstir með 36 stig. Heildarstaðan er hér.
21.9.2009
Sigurjón Harđarson og Haukur Árnason sigruđu í Hafnarfirđi
23 pör spiluðu eins kvölds tvímenning í Hafnarfirði mánudaginn 21.september. Hlutskarpastir urðu Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason en fast á hæla þeirra komu Einar Sigurðsson og Högni Friðþjófsson sem eru loksins búnir að setja golfsettin inn í geymslu. Í þriðja sæti urðu Erla Sigurjónsdóttir og Óli Björn Gunnarsson. Öll úrslit og spil má sjá á heimasíðu B.Hafnarfj.
Næsta mánudag hefst þriggja kvölda A-Hansen tvímenningur.
17.9.2009
Bridgefélag Selfoss - Ađalfundur og spilamennska 25. sept.
Nú styttist í að félagið hefji hauststarfsemi, en að venju hefst hún á aðalfundi, sem verður haldinn föstudaginn 25. september 2009 í Tryggvaskála kl. 20:00. Dagskrá hefðbundin aðalfundarstöf og síðan létt spilamennska.
Reglubundin spilamennska hefst síðan fimmtudaginn 1. október með eins kvölds tvímenningi.
17.9.2009
Bridgemót á Vestfjörđum
Sterkar bridskonur í heimsókn
Átta sterkar bridskonur frá höfuðborgarsvæðinu komu til Suðureyrar í dag til að spila við heimamenn. Árum saman hafa konurnar farið erlendis til að spila en ákváðu að heimsækja Vestfirði í ár. Á föstudagskvöld verða þær meðal keppenda á opnu móti í tvímenningi sem fram fer á Þingeyri. Mótið hefst kl. 19:30 og eru bridsspilarar hvattir til að mæta. Á laugardag verður síðan haldið lokað mót á veitingahúsinu Talisman á Suðureyri. Þar munu konurnar heyja einvígi við Vestfirðinga.
16.9.2009
Miđvikudagsklúbburinn: Birkir Jónsson og Jóhann Stefánsson sterkastir á endasprettinum!
Birkir Jón Jónsson og Jóhann Stefánsson unnu 22 para tvímenning með 61,6% skor. Þeir skutust á toppinn í síðustu umferð og unnu sér inn 2 gjafabréf á Food to go að Laugarásvegi 1.
15.9.2009
Bridgefélag Hafnarfjarđar
22 pör mættu til leik í eins kvölds tvímenning hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar mánudaginn 14.september. Efstu pör urðu:
1. 57,7% Hrund Einarsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir
2. 57,5% Guðbrandur Sigurbergsson - Friðþjófur Einarsson
3. 57,3% Halldór Þorvaldsson - Magnús Sverrisson
Næsta mánudagskvöld verður eins kvölds tvímenningur en mánudaginn 28.september hefst þriggja kvölda A-Hansen tvímenningur. Spilað í Flatarhrauni 3 og hefst spilamennska kl. 19. Sjá nánar á heimasíðu B. Hafn. á bridge.is
14.9.2009
Bf. Muninn
Spilamennska hefst að venju kl. 19:15.
Allir velkomnir
14.9.2009
Bridgedeild Breiđfirđinga - hefst 20.sept.
Vetrastarfið er að hefjast og eins og verið hefur verður spilað á sunnudögum kl.19:00
Fyrsta spilakvöldið er sunnudaginn 20.sept. Þá verður spilaður einskvölds tvímenningur:
Spilastjóri verður Ólafur Lárusson. Spilagjald er kr. 600 og er kaffi innifalið.
Allir ávallt velkomnir
11.9.2009
Bf. Kópavogs - hefst 17.september
Uppl. gefur Loftur í s. 897-0881
9.9.2009
Miđvikudagsklúbburinn: Gunnar Ingi Birgisson og Kristján B. Snorra efstir!
Gunnar Ingi Birgisson og Kristján B. Snorrason unnu 16 para tvímenning með 58,2% skor.
Ţeir fengu að launum gjafabréf á Just food to go að Laugarásvegi 1.
8.9.2009
Miđvikudagsklúbburinn: Vetrarstariđ byrjar 9. september!
Vetrarstarfsemi Miðvikudagsklúbbsins byrjar 9. september.
Spilað verður öll miðvikudagskvöld í vetur og hefst spilamennska kl. 19:00.
Allir spilarar eru velkomnir og er reynt að hjálpa til við myndun para fyrir staka spilara.
8.9.2009
Bridgefélag Reykjavíkur - Spilamennska hefst 8.september
Bridgefélag Reykjavíkur
Ţriðjudagskvöld
Dagskrá haustið 2009
Bridgefélag Reykjavíkur mun spila á þriðjudögum í vetur í Síðumúla 37 og hefst spilamennska kl. 19:00. Dagskrá haustins lítur þannig út: 8.9, 15.9 Monrad eins kvölds tvímenningar, Besta samanlagða skor telur til verðlauna22.9, 29.9,6.10 Bötlertvímenningur
13.10, 20.10, 27.10 Swiss monrad sveitakeppni
3.11, 10.11, 17.11 Hraðsveitakeppni
24.11, 1.12, 8.12 Cavendish tvímenningur(imps across the field)
15.12 Jólasveinatvímenningur
30.12 Jólamót BR - hefst kl. 17:00 Eins og síðasta ár verður 24 bronsstigahæstu spilurum vetrarins boðið í einmenning þar sem veitt verða vegleg verðlaun og boðið upp á veitingar. Verður án efa hörð keppni að komast í mótið!
Spilarar í BR geta keypt árskort og 10 miða kort.Keppnisstjóri í vetur verður Vigfús Pálsson. Góða skemmtun við græna borðið!
4.9.2009
Bridgefélag Hafnarfjarđar
Fyrsta spilakvöld hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar var mánudagskvöldið 7.september. 16 pör mættu til leiks. Efstu pör urðu
1-2 59.7% Guðrún Jóhannesdóttir - Soffía Daníelsdóttir
1-2 59.7% Halldór Þorvaldsson - Magnús Sverrisson
3 57.7% Erla Sigurjónsdóttir - Óli Björn Gunnarsson
Öll úrslit hér
Næstu tvö mánudagskvöld verða einnig spilaðir eins kvölds tvímenningar
Bridgefélag Hafnarfjarðar spilar á mánudögum kl. 19:00 í Hampiðjuhúsinu, Flatahrauni 3. (Hraunsel)
Upplýsingar veitir Erla í síma 659-3013.
Spilamennska hefst mánudaginn 7. september en fyrstu 3 spilakvöldin verða eins kvölds monrad tvímenningar. Keppnisstjóri verður Ómar Olgeirsson
1.9.2009
Sumarbridge: Kristín Elínborg og Sigurjón međ 64%!
Kristín Elínborg Þórarinsdóttir og Sigurjón Harðarson unnu 30 para tvímenning með 64% skor. Næstir voru Vilhjálmur Sigurðsson JR og Björn Arnarson og í 3ja sæti Guðmundur Páll Arnarson og Ásmundur Pálsson.
Viđburđadagatal
Flýtileiđir
Hverjir spila í dag
Bf. Hafnarfjarðar, Flatahrauni 3, hefst kl. 19:00
B. Dalvíkur og Ólafsfj. Mímisbrunni, hefst kl.19:30
Bridgedeild Sjálfsbjargar, Hátúni 12, kl. 19:00














