Félög
30.12.2010
Minningarmót Gylfa Baldurssonar
Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H Einarsson unnu mótið á síðasta spili í síðustu setu.
- Aðalsteinn Jörtensen og Bjarni Einarsson = 1431,8
- Kristján Blöndal og Sigurður Vilhjálmsson = 1398,7
- Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson = 1388,0
Sjá nánar á heimasíðu BR
29.12.2010
Minningarmót Gylfa Baldurssonar/jólamót BR 30.desember
Minningarmót Gylfa Baldurssonar/jólamót Bridgefélags Reykjavíkur

Verður haldið fimmtudaginn 30. desember 2010
í Síðumúla 37, Reykjavík
hefst kl. 17:00 stundvíslega.
Spilaður verður Monrad Barometer - 44 spil.
Vegleg verðlaun ásamt flugeldum!
Keppnisgjald 3.500kr. á mann
Vissara að skrá sig tímanlega því þátttaka takmörkuð við 56 pör
Skráning hér hjá BSÍ í síma 587-9360 og á bridge@bridge.is
29.12.2010
Hrólfur Hjaltason og Kristján Blöndal unnu Jólamót Bf. Hafnarfjarđar
Hrólfur Hjaltason og Kristján Blöndal voru efstir af 81 pörum sem tóku þátt í Jólamóti Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir voru með 61.7% skor. Í öðru sæti voru feðgarnir Karl Sigurhjartarson og Snorri Karlsson með 59,1% og í þriðja sæti voru Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni Einarsson með 59,0%.
Veitt voru verðlaun fyrir efstu 5 sætin auk þess sem veitt voru fjöldi aukaverðlauna.
23.12.2010
Áramótatvímenningur 29.des hjá Muninn!
Ţann 29. desember n.k. munum við spila eins kvölds tvímenning á suðurnesjum. Það er eini klúbburinn sem mun spila milli jóla og nýárs. Allir velkomnir og það verður heitt á könnunni. Í verðlaun verða flugeldar af ýmsum stærðum og gerðum.
22. desember var haldið seinna kvöldið í jólatvímenningi og sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Gunnlaugur Sævarsson með yfirburðum. Smá hnökrar urðu við upphaf kvölds svo gefa þurfti nokkur spil svo spilagjöfin er ekki alveg rétt í nokkrum spilum enn flest öll eru rétt. Úrslit og spil sérðu hér.
23.12.2010
Bridgefélag Rangćinga
Jólabarómeter (Landsbankabarómeter)
Ţað er ekki hægt að segja annað um okkur Rangæinga en að gestrisnin sé ávalt höfð í fyrirrúmi. Síðastliðið þriðjudagskvöld varð engin undantekning frá reglunni. Meira að segja meistarar fyrri áratuga (hér er átt við Torfa og Sigga) tóku þátt í að leyfa þeim virtu gestum, sem sýndu félagsmönnum þann heiður að eyða með þeim einni kvöldstund, að vera eins ofarlega og mögulegt var. Án þess þó að beita brögðum auðvitað. Úrslitin urðu þau að Helgi og Billi (gestir) urðu í 1. sæti og Össi og Kalli (gestir) urðu í því 3. Eitthvað sáu meistarar okkar eftir öllu saman og nældu því í 2. sætið þegar líða tók að lokum. Úrslit má sjá hér.
21.12.2010
Bridgefélag Rangćinga
Nú hefur aðal-butlerinn runnið sitt skeið á enda. Merkustu og ánægjulegustu tíðindi þessa árs urðu þau að nýliðarnir okkar nældu allir í bronsstig. Frábær árangur hjá þeim og til hamingju með það strákar! Úrslit í Buttlernum liggja nú fyrir og þrátt fyrir spennandi keppni framan af náðu Torfi og Sigurður að landa nokkuð öruggum sigri og sína enn og aftur að þeir eru í annarri deild en hinir félagar klúbbsins. Í meistarakeppninni er hörð barátta á milli manna og líklegt að meistari verði krýndur þetta spila-ár þar sem Torfi leiðir naumlega með jafn mörg stig og Sigurður. Nánari úrslit má sjá hér.
17.12.2010
Helgi Grétar jólameistari Briddsfélags Selfoss
Helgi Grétar Helgason sigraði jólaeinmenning Briddsfélags Selfoss að þessu sinni. Hlaut hann að launum ljúfengt hangikjötslæri frá Krás Kjötvinnslu. Á eftir honum komu þeir Guðmundur Þór í öðru og Össur í því þriðja.
Ţetta var síðasta mót félagsins á þessu ári. Spilamennska hefst aftur FÖSTUDAGINN 7. JANÚAR með HSK móti í tvímenning. Það er silfurstigamót og hefst spilamennska kl 18:00
Gleðileg jól og farsælt komandi briddsár
17.12.2010
Björn og Ţórđur unnu Jólatvímenning BK
Björn Jónsson og Þórður Jónsson unnu Jólatvímenning Bridgefélags Kópavogs þetta árið. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Spilamennska hefst að nýju fimmtudaginn 6. janúar á nýju ári.
Gleðileg jól og farsælt komandi bridgeár
16.12.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Erla og Guđni efst međ 64,9%
Erla Sigurjónsdóttir og Guðni Ingvarsson unnu einskvöldstvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum miðvikudaginn 15. desember. Þau fengu 64.9% og voru töluvert á undan 2. sætinu sem féll í skautið á Guðnýu Guðjónsdóttur og Hrafnhildi Skúladóttur. Í 3ja sæti voru síðan þau Halldóra Magnúsdóttir og Þórir Sigursteinsson.
Miðvikudagsklúbburinn og Bridgefélagið Muninn spiluðu sömu spilin og þegar öll úrslit voru sett saman þá voru Erla og Guðni efst með 63,8%. Í 2. sæti voru Garðar Þór Garðarsson og Þorgeir Ver Halldórsson með 59.9%.
Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins
Miðvikudaginn 22. desember verður jólakvöld félagsins. Þá verður spilaður einskvölds tvímenningur með fjölda af aukaverðlaunum í tilefni jólanna.
15.12.2010
KEA - jólamótiđ á Akureyri
KEAHOTEL jólamótið
í tvímenningi verður haldið á Hótel KEA fimmtudaginn 30. des. nk.
Spilamennska hefst kl. 17, spilaður verður Monrad Barómeter.
Keppnisgjald er 2500 kr. á mann og kaffi innifalið.
Mótslok áætluð um kl. 23.
Súpa og brauð kl. 19:30: 1200 kr.
Skráning við komu, mætum því tímanlega.
Vegleg flugeldaverðlaun.
Allir bridgespilarar velkomnir.
Góða skemmtun!
Stjórn B.A
Upplýs. veita: Frímann s. 867 8744 og Stefán s. 898 4475
14.12.2010
Ađalsveitakeppni B. Hafnarfjarđar
Sveit GSE fór á kostum á öðru kvöldi aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar og vann báða sína leiki 25-0! Elstu menn muna ekki hvenær þetta gerðist síðast!
Sveitin hefur nú góða forystu eftir 4 leiki en nóg er eftir af mótinu og margar sveitir sem vilja sigra þá eftir þetta! Næsta mánudag verður spilaður jólatvímenningur og aðalsveitakeppnin heldur svo áfram 10.janúar þar sem sveit Miðvikudagsklúbbsins er í yfirsetu í fyrsta leik.
Minnt er á jólamótið 28. desember!
11.12.2010
Úrslit úr Minningarmótinu um Kristján Örn!
41 par skráði sig til leiks í Minningarmótið um Kristján Örn Kristjánsson. Hann hefði orðið 58 ára i dag ef hann hefði lifað. Frábært mót í alla staði og viljum við þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á suðurnesin í dag.
Sigurvegarar mótsins er þeir Ómar Olgeirsson og Sveinn Rúnar Eiríksson.
10.12.2010
Briddsfélag Selfoss Jólaeinmenningur
Helgi G. Helgason er eftstur í jólaeinmenning Briddsfélags Selfoss þegar fyrra kvöldinu af tveimur er lokið. Staðan á toppnum er nokkuð jöfn. Seinna kvöldið verður næstkomandi fimmtudag sem er jafnfram síðasta spila kvöld þessa árs hjá Briddsfélagi Selfoss.
10.12.2010
Eđvarđ og félagar Kópavogsmeistarar
8.12.2010
Guđný og Hrafnhildur unnu sameiginlegt kvöld hjá Miđvikudagsklúbbnum og Muninn!
Guðný Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir unnu sameiginlegt spilakvöld hjá Miðvikudagsklúbbnum og Muninn. Bæði félög spiluðu sömu spil og voru þau síðan samreiknuð í lok spilakvölds.
Guðný og Hrafnhildur voru jafnframt efstar af 30 pörum í Miðvikudagsklúbbnum.
7.12.2010
Hallgrímur Hallgrímsson og Hjálmar S Pálsson burstuđu Cavendish tvímenningin
Hallgrímur Hallgrímsson og Hjálmar S Pálsson burstuðu tvímenninginn með 2285 stig. Aðrir voru með miklu minna
- Hallgrímur Hlllgrímsson - Hjálmar S Pálsson = 2285
- Ragnar Magnússon - Páll Valdimarsson = 1492
- Hlynur Angantýsson - Stefán Jónsson = 1246
Sjá nánar á heimasíðu BR
7.12.2010
Bf.Hafnarfjarđar: 19 sveitir mćttu til leiks í Ađalsveitakeppnina!
Hvorki meira né minna en 19 sveitir mættu til leiks í Aðalsveitakeppni BH sem byrjaði mánudaginn 6. desember.
Sveit Jóns Guðmar Jónssonar er efst með 49 stig af 50 mögulegum. Næstar eru sveitir Guðlaugs Bessasonar með 46 stig og sveit Halldórs Svanbergssonar með 42 stig.
Öll úrslit, spil og butler er að finna á úrslitasíðu BH
5.12.2010
Ađalsveitarkeppni Bridgefélag Hafnarfjarđar
Aðalsveitakeppni Bridgefélag Hafnarfjarðar hefst á mánudaginn 6.des
Ef vantar aðstoð við að mynda sveitir þá endilegar talið við Sigurjón 8980970
3.12.2010
Samstarf hjá Miđvikudagsklúbbnum og Muninn
Næstkomandi miðvikudag ætla Miðvikudagsklúbburinn og Bridgefélögin á Suðurnesjum að halda Eins kvölds tvímenning sem aldrei svo vitað sé verið haldinn áður. Félögin ætla að halda sameiginlegt mót þar sem sömu spil verða spiluð á báðum stöðum og úrslit af suðurnesjum send strax og leik líkur til Reykjavíkur og þau sett inn í eitt sameiginleg mót. Þetta hefur aldrei verið gert á Íslandi svo vitað sé svo ég hvet alla bæði í reykjavík og á Suðurnesjum að mæta næsta miðvikudag og taka þátt í þessu skemmtilega kvöldi.
3.12.2010
Hrađsveitakeppni lokiđ á suđurnesjum
Seinna kvöldið í hraðsveitakeppninni lauk á miðvikudagskvöldið. Sigurvegarar keppninnar eru þeir Bjarki Dagsson, Dagur Ingimundarson, Karl G. Karlsson, Úlfar Kristinsson og Vignir Sigursveinsson með 37 stig.
Enn öll úrslit má sjá hér
3.12.2010
Ţröstur og Ríkharđur Sigfúsarmeistarar
Ţröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson sigruðu Sigfúsartvímenning Briddsfélags Selfoss með nokkrum yfirburðum eftir að hafa leitt mótið lengst af. Í öðrusæti urður gömlu refirnir Bryjólfur Gestsson og Helgi Hermannsson í þriðjasæti urðu svo Guðmundur Sæmundsson og Höskuldur Gunnarsson.
Næsta mót félagsins er jólaeinmenningur sem er tveggjakvölda einmenningur. Hægt er að skrá sig hér í einmenninginn.
3.12.2010
Sveit Eđvarđs ţarf sjö stig til ađ sigra í Kópavogi
30.11.2010
Hallgrímur og Hjálmar leiđa Cavendish tvímenning BR eftir 2 kvöld
og eru með um 500 stiga forskot á næsta par. En auðvelt er að tapa þessari forystu í einni setu.
Sjá nánar á heimasíður BR
27.11.2010
Reykjavíkurmeistarar í tvímenning 2010
Reykjavíkurmeistarar í tvímenningi 2010 eru Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson
Lokastaðan
Ísak Örn Sigurðsson - Helgi Sigurðsson = 248 stig
Gísli Þórarinsson - Þórður Sigurðsson = 241 stig
Hróflur Hjaltason - Oddur Hjaltason = 240 stig
Sjá öll úrslit hér
26.11.2010
Ţröstur heldur forystu í Sigfúsartvímenningi
Ţegar þremur kvöldum af fjörum er lokið í Sigfúsartvímenningi briddsfélags Selfoss eru þeir Þröstur og Rikharður/Guðjón efstir. En á eftir þeiim kemur nokkuð þéttur pakki. Svo það stefnir í æsispennandi lokakvöld. Lokakvöldið fer svo fram næstkomandi fimmtudagskvöld.
26.11.2010
Reykjavíkurmótiđ í tvímenningi á laugardaginn!
26.11.2010
Líf og fjör í Kópavogi
Nú fer að líða að lokum Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs. Þegar þrjár umferðir eru eftir hafa sveitir Eðvarðs, Vina og Baldurs skorið sig nokkuð frá hinum en fjórtán stigum munar á þriðja og fjórða sætinu. Öll úrslit og butlerútreikning má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
25.11.2010
Hrađsveitakeppni á Suđurnesum
Miðvikudaginn 24.nóv byrjaði tveggja kvölda hraðsveitakeppni á Suðurnesjum. Spilað var á 7 borðum og var fyrirkomulagið þannig að N-S sat fast og E-W færði sig. Spiluð 5 spil milli sveita og 6 umferðir.
Stig eftir kvöld 1 eru á síðunni okkar.
25.11.2010
Bridgefélag Rangćinga
Síðastliðinn þriðjudag urðu nokkur stórtíðindi. Af 15 pörum náðu einungis 4 pör plússkori sem þýðir að lægsta mínusskorið (og þar með 5. sætið) dugar í 7 bronsstig!! Eftir leit í sögubókum hefur jafnoki þessa ekki fundist. Enda skoruðu sigurvegararnir vel og er þeim hér með óskað innilega til hamingju!!!
Svavar og Ólafur unnu með miklum yfirburðum og uppskáru 80 stig eða 2.85 impa á spil. Sem fyrr eru það Torfi/Ægir/Ævar sem leiða þegar slakasta kvöldið er tekið út en breiting varð á þegar öll kvöld eru reiknuð saman en þá eru það gömlu refirnir og meistarar fyrri áratuga Torfi og Siggi sem tróna á toppnum.
En sjón er sögu ríkari nánari úrslit má sjá hér.
23.11.2010
Cavendish Tvímenningur BR 2010
Sveinn Stefánsson og Bergur Reynisson eru með ágætis forystu að loknu fyrista kvöldi af þremur í Cavendish tvímenningi BR 2010. Sjá nánar á heimasíðu BR
19.11.2010
Briddsfélag Selfoss
Annað kvöldið af fjörum í Sigfúsartvímenning briddsfélags Selfoss fór fram síðastliðið fimmtudagskvöld. Breyttist staðan á toppnum aðeins. Mótinu verður framhaldið næstkomandi fimmtudagskvöld.
19.11.2010
Jöfn og skemmtileg keppni í Ađalsveitakeppni BK
18.11.2010
Haust tvímenningi lokiđ á Suđurnesjum
Fjögurra kvölda haust tvímenningi lauk 17.nóv á Suðurnesjum. Sigurvegarar síðasta kvöldsins voru þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen.
Lokastaðan í mótinu er á heimasíðu okkar enn þess má geta að sigurvegarar mótsins eru með meðalskor uppá 63,59% sem er mjög vel af sér vikið.
Næstu 2 miðvikudaga spilum við hraðsveitakeppni og er hugmyndin að skrá fyrirfram í það svo hringið endilega í 892-8062 fyrir skráningu í það mót.
18.11.2010
Bridgefélag Rangćinga
17.11.2010
Miđvikudagsklúbburinn: 141 spilarar hafa spilađ í vetur í klúbbnum!
Miðvikudagsklúbburinn hefur spilað 9 sinnum það sem af er vetri og hafa 141 spilarar tekið þátt í spilamennku. Hægt er að fylgjast með þessu á heimasíðu félagsins auk þess sem hægt er að skoða "lifandi úrslit" á hverju kvöldi fyrir sig.
Miðvikudagsklúbburinn ítrekar að allir spilarar eru velkomnir og er reynt að taka sérstaklega vel á móti spilurum með litla eða enga reynslu.
12.11.2010
Brynjólfur og Helgi efstir eftir 1. kvöld
Ţeir Brynjólfur Gestson og Helgi Hermansson eru efstir eftir 1. kvöldið af fjórum í Sigfúsartvímenning Briddsfélags Selfoss. Næstir á eftir þeim koma þeir Karls Björnsson og Össur Friðgeirsson.
Spilaður er barometer tvöföld umferð með fjórum spilum á milli para í hverri umferð. Mótinu verður framhaldið næstu þrjú fimmtudagskvöld.
12.11.2010
Hörđ keppni í Aalsveitakeppni BK
Sveit Eðvarðs Hallgrímssonar er enn með forystu í aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs en sveitir Þórðar Jóns og Baldurs Bjartmars fylgja Þó fast á eftir. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs
ATH: Í spilagjöf4umf. skal eingöngu skoða spil 17-30 en önnur spil í þeirri gjöf voru ekki spiluð.
11.11.2010
Ingimar Sumarliđason og Sigurđur Davíđsson unnu ţriđja kvöld af fjórum.
Ţriðja kvöld af fjórum í hausttvímenningi á suðunesjum fór fram 10. nóv og stóðu Sigurður Davíðsson og Ingimar Sumarliðason uppi sem sigurvegarar kvöldsins með 60,5% en ekki langt undan komu þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 59,3%. Mikil spenna er í mótinu og ekki nema 1,7% á milli þriggja efstu para. öll spil og stöðu í mótinu má sjá á heimasíðu okkar.
10.11.2010
Síđbúinn butler í sveitakeppni BK.
Butlerinn úr fyrstu tveimur umferðunum er kominn á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
6.11.2010
Kristján og Helgi óstöđvandi!!!
Ţeir kumpánar Kristján Már og Helgi Grétar eru óstöðvandi þessa dagana á Suðurlandi. Þeir sigruðu tvímenning þar sem leiddu saman hesta sína félagar í Briddsfélagi Selfoss og Briddsfélagi Rangæinga. Spilaður var tvímenningur sjö umferðir monrad fjögur spil á milli para. Á eftir þeim Kristjáni og Helga voru Guðmundur og Björn.
Tilþrif kvöldsins átti þó Rangæingurinn Sigurður Skagfjörð við verðlauna afhendinguna þegar hann gengisfelldi þriðjuverðlaun þeirra Þrastar og Ríkharðs á einstaklega laglegan hátt. Minnstu mátti muna að kappinn kæmist upp með verknaðin.
6.11.2010
Kristján og Helgi sigrđuđu Málarbutlerinn
Ţeir félaga Kristján Már og Helgi Grétar sýndu styrk sinn og sigruðu þriggja kvölda butler tvímenning hjá briddsfélagi Selfoss. Á eftir þeim komu þeir Ólafur og Gunnar Björn.
Næsta mót félagsins er fjögurakvölda Sigfúsar tvímenningur. Hvetjum við sem flest til að mæta í hann.
5.11.2010
Sveit Eđvarđs Hallgrímssonar efst í Kópavogi
4.11.2010
Haust tvímenningur á suđurnesjum, tvö kvöld af fjórum lokiđ.
Jóhannes Sigurðsson og Pétur Júlíusson höfðu mikla yfirburði allt kvöldið og unnu nokkuð sannfærandi með 63,8% skor. Í öðru sæti komu þeir Jóhann Benediktsson og Sigurður Albertsson með 58,6% skor. Þetta var annað kvöldið af fjórum enn þrjú kvöld telja. Úrslit og spil úr fyrstu tveimur kvöldunum má sækja hér að neðan.
4.11.2010
Bridgefélag Rangćinga
3.11.2010
Sveitakeppni ađ hefjast í Kópavogi
Á morgun, fimmtudaginn fjórða nóvember hefst aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs. Spilað er í félagsheimili eldri borgara, Gjábakka, Fannborg 8, á bak við Landsbankann sem stendur á brúnni yfir Hafnarfjarðarveginn.
Spilamennska hefst kl. 19:00 og er næganlegt að mæta snemma og skrá sveit eða hringja í Þórð í síma 862-1794. Nýjir félagar velkomnir. Pör sem vantar meðpar í sveit endilega hafið samband einnig.
3.11.2010
Hrađsveitakeppni BR 2010
Hraðsveitakeppni BR 2010. Sveit H.F. Verðbréf er efst með 626 stig. Garðs Apótek kemur næst með 602 stig Sjá nánar á heimasíðu BR
2.11.2010
Jörundur Ţóđarson og Friđjón Ţórhallsson sigruđu nokkuđ örugglega í Hafnarfirđi.
Ţeir Jörundur Þórðarson og Friðjón Þórhallsson skiluðu 63,4% skori í hús og unnu eins kvölds tvímenning nokkuð örugglega. Næstir á eftir þeim komu þeir Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason með 59,2% skor. ´
Öll spil og úrslit á heimasíðu BH.
1.11.2010
Systkin unnu monradtvímenninginn hjá Breiđfirđingum
29.10.2010
Bridgefélag Selfoss: Ólafur og Gunnar Björn taka forystu
Ţeir Ólafur Steinason og Gunnar Björn hafa forystu í Málarabutler Briddsfélags Selfoss þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið. En skammt á hæla þeirra koma Kristján Már og Helgi Grétar og ekki þar langt á eftir Björn og Guðmundur. Þannig að það verður æsispennandi lokabarátta síðasta kvöldið sem spila verður næstkomandi fimmtudag.
Föstudaginn 5. nóvember koma svo félagar okkar í Briddsfélagi Rangæingar í heimsókn og spilaður verður tvímenningur.
29.10.2010
Bridgefélag Rangćinga
Nafnarnir Magnús sigldu sigri sínum nær örugglega í höfn núna síðastliðið þriðjudagskvöld og voru fáir sem gerðu sig líklega til þess að standa í vegi fyrir þeim. Þeir náðu 136 stigum eða 61.82% skori. En það er frábært að geta sagt frá því að nýliðarnir okkar þeir Valtýr og Guðjón voru mjög nálægt því að næla sér í sín fyrstu bronsstig og ljóst að þarna fara um völl meistarar framtíðarinnar! Glæsilegur árangur á strákunum þar sem þeir náðu að „velta“ sér í 6 sætið. En með þessum frábæra árangri settu þeir marga reynda og góða spilara fyrir aftan sig sem bendir til þess að menn þurfi að setja baggaband í strenginn fyrir komandi vetur ef ekkert annað dugar. Nánar um úrslit hér.
28.10.2010
Ţorsteinn Berg og Óskar Sigurđsson unnu Butlerinn í Kópavogi
Ţriggja kvölda butlertvímenningi Bridgefélags Kópavogs er lokið. Óskar Sigurðsson og Þorstein Berg stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni við þá feðga Þórð Jörundsson og Jörund Þórðarson sem gáfu verulega eftir síðasta kvöldið. Annars má sjá öll úrslit á heimasíðu Bridgefélags Kópaogs þar sem heildarúrslitin eru fyrir framan nöfn spilaranna en skor og lokastaða kvöldsins eru fyrir aftan nöfnin, undir liðnum session
Næsta keppni félagsins er sveitakeppni og hefst hún næsta fimmtudag. Þeir sem ekki hafa enn myndað sveit geta snúið sér til Þórðar í síma 862-1794 og thorduring@gmail.com
21.10.2010
Feđgarnir frćknu efstir eftir tvö kvöld í Kópavogi
21.10.2010
Ţriggja kvölda Butlertvímenningi lokiđ međ sigri Karls G. og Gunnlaugar
Ţriggja kvölda Butlertvímenningi lauk með sigri Karls G. Karlssonar og Gunnlaugs Sævarssonar. Svala Pálsdóttir lék eitt kvöld með Gunnlaugi og eru þau þrjú vel að þessu komin.
Næsta miðvikudag byrjar 4ra kvölda hausttvímenningur þar sem þrjú af fjórum kvöldum telja. Allir Velkomnir.
21.10.2010
Málarabutler Briddsfélags Selfoss
Málararbutler Briddsfélags Selfoss hófst síðastliðinn fimmtudag með þátttöku 11 para. Þeir Guðmundur og Björn leiða eftir fyrsta kvöldið. Á hæla þeirra koma svo Þröstur og Ríkharður. Mótinu verður framhaldið næsta fimmtudag.
21.10.2010
Bridgefélags Rangćinga
Hér fæst staðfest að þriðja spilakvöld félagsins leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag. Ekki bárust nein stórtíðindi af þessu kvöldi önnur en þau að meistarar fyrri ára mættu loks og er talið ljóst að áskorun sú sem sett var fram fyrir nokkru hafi eitthvað spilað þar inní. En eins og sést á úrslitunum tóku menn sig saman og hjálpuðust við að byggja upp sjálfstraust þeirra félaga. Þar sem öllum á jú að líða vel! Sigurður og Torfi lönduðu sigri með 131 stig og ágætis %-skori uppá 59.55 og ber því að þakka öllum félagsmönnum fyrir uppbyggilegt andrúmsloft og hinn mikla félagsanda sem svífur ávalt yfir vötnum í Rangárvallasýslu. Nánari úrslit má sjá hér.
20.10.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór unnu 26 para tvímenning
Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning miðvikudaginn 20. október. Baráttan um efsta sætið var jöfn og hörð og enduðu Hulda og Halldór 1 stigi fyrir ofan Esther Jakobsdóttur og Hjördísi Sigurjónsdóttur. Í 3ja sæti voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir.
Öll spil og úrslit er hægt að nálgast á úrslitasíðu Miðvikudagsklúbbsins
19.10.2010
BH: Nammi leiđir eftir fyrsta kvöld af 2 í Hrađsveitakeppninni!
1. kvöld af 2 í Hraðsveitakeppni félagsins var spilað mánudaginn 18. október. 13 sveitir mættu til leiks og sveitin Nammi leiðir eftir 1. kvöldið með 58 impa í plús. Í öðru sæti er sveitin Hrund Einarsdóttir og í þriðja sæti sveitin Veit ekki.
Stöðu, butler og öll spil er að finna á heimasíðu BH
15.10.2010
Garđar og Gunnar sigruđu Suđurgarđstvímenninginn
eir félagar Garðar og Gunnar voru sigurvegarar í Suðurgarðsmóti Briddsfélags Selfoss. Skammt á hæla þeirra komu Guðmundur og Björn. En sigurvegarar kvöldsins voru þeir Kristján Már og Helgi.
Næsta mót félagsins er þriggja kvölda butlertvímenningur. Hvetjum við alla til taka þátt. Hægt er að skrá sig hér.
14.10.2010
Tvö pör jöfn og efst eftir fyrsta Butlerkvöldiđ í Kópavogi
14.10.2010
Garđar Garđarsson og Svavar Jenssen leiđa eftir tvö kvöld:
Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen leiða þriggja kvöld butlertvímenning eftir tvö kvöld. Ekki langt undan eru þau Gunnlaugur Sævarsson og Karl G. Karlsson/Svala Pálsdóttir. Síðasta kvöldið verður þann 20. okt.
13.10.2010
Bridgefélags Rangćinga
Nú réttliðið þriðjudagskvöld var spilað í félagsheimili Bridgefélags Rangæinga. Leikar fóru fram á 6 borðum og enn fengu nokkur pör „f“ í kladdann og fer mönnum að gruna að um einhvern taugatitring sé að ræða hjá núverandi meistara of fleirum sem ekki hafa látið sjá sig. En að þessu sinni stóðu Guðmundur og Óskar efstir á palli með glæsilegt skori uppá 141. Meðalskorið var 110 en spiluð voru 22 spil. Nánari úrslit er hægt að sjá hér.
12.10.2010
Una og Jón leiđa Greifamót
12.10.2010
Sveit Guđlaugs Sveinssonar efst hjá BR
Sveit Guðlaugs Sveinssonar er efst eftir fyrsta kvöld af þremur í Monrad sveitakeppni hjá BR með 61 stig
Sjá nánari úrslit á heimasíðu BR
8.10.2010
Bridgefélag Rangćinga
Síðastliðin þriðjudag, 05.10.10, var fyrsta spilakvöld félagsins haldið með kaffi og forgefnum-spilum. Þó svo að nokkur pör hafi fengið „F“ í kladdann var spilað á 6 borðum og ánægjulegt frá því að segja að 2 nýliðar bættust í hópinn sem kemur til með að lækka meðalaldurinn eitthvað. Eftir kvöldið urðu bræðurnir Torfi og Ævar hlutskarpastir með 134 stig (þrátt fyrir útlit, eins og einhver nefndi). En nánari úrslit má sjá hér.
8.10.2010
Briddsfélag Selfoss og nágrennis
Ţeir félagar Gunnar og Garaðar halda forystu sinni í suðurgarðsmótinu þegar tvö kvöld af þremur eru búin. En það telja tvö bestu kvöldin til úrslita. Skammt á hæla þeirra koma þeir Björn og Guðmundur/Sigfinnur. Mótið klárast næstkomandi fimmtudagskvöld. Menn geta mætt og spilað þó að þeir hafi ekki verið með í mótinu hingað til.
7.10.2010
Baldur Bjartmars og Sigurjón Karlsson sigruđu í Kópavogi
Baldur Bjartmarsson og Sigurjón Karlsson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir þriggja kvölda Hausttvímenning hjá Bridgefélagi Kópavogs. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs
Næsta fimmtudag hefst þriggja kvölda butlertvímenningur og er nóg að mæta tímanlega fyrir kl. 19:00 eða hringja í Þórð í s. 862-1794
7.10.2010
Jóhann Benediktsson og Sigurđur Albertsson byrja vel í ţriggjakvölda butlertvímenning!
Í þriggja kvölda butlertvímenningi standa þeir Jóhann Benediktsson og Sigurður Albertsson vel eftir fyrsta kvöld. Þeir eru með 278 impa. Á hæla þeirra koma þeir Karl G. Karlsson og Gunnlaugur Sævarsson með 235 impa. Spilamennska hefst kl. 19:00 og mun N1 Búðin í Keflavík (Nítró) gefa glæsileg verðlaun fyrir sigurvegara mótsins.
7.10.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Brynjar og Ingvar efstir af 22 pörum
Brynjar Jónsson og Ingvar Hilmarsson kræktu sér í gjafabréf á veitingastaðinn Þrír frakkar hjá Úlfari. Þeir félagar skoruðu rétt rúmlega 60%. Unnar Atli Guðmundsson og Hafliði Baldursson urðu í 2. sæti og í 3ja sæti voru Gísli Steingrímsson og Sigurður Steingrímsson.
5.10.2010
Haustbötler BR 2010
Guðjón Sigurjónsson og Helgi Bogason unnu mótið með miklum yfirburðum. 122 stig. Oddur Hjaltason og Hrólfur Hjaltason voru í öðru sæti með 91 stig.
Sjá nánar á heimasíðu BR
1.10.2010
Bridgefélag Selfoss: Garđar og Gunnar efstir í Suđurgarđsmótinu
Fyrsta kvöldið í Suðurgarðsmótinu 2010 var spilað fimmtudagskvöldið 30. september. Til spilamennsku mættu 12 pör, og var spilaður Reduced Howell, 9 umferðir með 3 spilum á milli para, alls 27 spil. Meðalskor er 135. Efstu pör eru:
|
Röð |
Nafn | Nafn |
Stig |
Prósent |
|
1. |
Garðar Garðarsson | Gunnar Leifur Þórðarson |
173 |
64,1 |
|
2. |
Sigfinnur Snorrason | Björn Snorrason |
163 |
60,4 |
|
3. |
Brynjólfur Gestsson | Helgi Hermannsson |
154 |
57,0 |
|
4. |
Ólafur Steinason | Gunnar Björn Helgason |
146 |
54,1 |
|
5. |
Þröstur Árnason | Ríkharður Sverrisson |
141 |
52,2 |
Áfram verður haldið að spila í mótinu fimmtudagskvöldin 7. og 14. október nk. Tvö bestu kvöldin gilda til úrslita í mótinu.
1.10.2010
Halldór Ţorvalds og Magnús Sverris efstir eftir tvö kvöld í Kópavogi
30.9.2010
Garđar Garđarsson og Svavar Jenssen stóđu uppi sem sigurvegarar.
Í eins kvölds tvímenningi hjá bridgefélagi Suðurnesja/Muninn sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 67.4% skor. Næstir á eftir þeim voru þeir Jóhannes Sigurðsson og Óli Þór Kjartansson með 61.1% skor.
Næsta miðvikudag byrjar þriggja kvölda Butlertvímenningur, og hefst spilamennska kl. 19:00. Bjóðum við alla velkomna að taka þátt í því.
29.9.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Björn og Unnar Atli efstir af 20 pörum!
Björn Friðriksson og Unnar Atli Guðmundsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum miðvikudaginn 29. september. Þeir unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Þrír frakkar hjá Úlfari.
Á heimasíðu félagsins verður hægt að sjá samanlagt skor hjá hverjum spilara eftir spilakvöld vetrarins!!
29.9.2010
Bridgefélag Rangćinga
Næstkomandi þriðjudag (5. október) hefjast að nýju samverustundir meðlima Briddsfélags Rangæinga. Staðurinn er Heimaland og stundin 19:30. Dagskrá vetrar hefur litið dagsins ljós og má sjá hér.
28.9.2010
Startmót Sjóvá hjá B.A.
28.9.2010
Haustbötler BR 2010
27.9.2010
Bf. Hafnarfjarđar: Rúnar og Skúli óstöđvandi á 1. kvöldi A.Hansen tvímenningsins
Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason eru langefstir eftir 1. kvöld af 3 í A.Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir eru með +111 sem jafngildir 68% skor. Næstir eru Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson með +46 og í 3. sæti eru Sverrir Þórisson og María Haraldsdóttir með +43.
26.9.2010
Briddsfélag Selfoss
Vetrarstarf Briddsfélags Selfoss hóft síðastliðið föstudagskvöld, með aðalfundi félagasins. Að loknum fundarstörfum var spilaður stuttur tvímenningur. Hann sigruðu með miklum yfirburðum þeir Þórður Sigurðsson og Gísli Þórarinsson.
Vetrarstarfið hefst svo næstkomandi fimmtudagskvöld með Suðurgarðstvímenningnum. Það er þriggjakvölda keppni þar sem skor tveggja bestu kvöldanna telur.
24.9.2010
Bridgefélag Kópavogs
Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson fóru á kostum fyrsta kvöldið af þremur í howell-tvímenningi hjá Bridgefélagi Kópavogs þegar þeir fengu 71,4% skor og verður þrautin þyngri fyrir næstu pör að ná þeim.
24.9.2010
Jón H. Gíslason og Ćvar Jónasson koma vel undan sumri
Ţeir Jón H. Gíslason og Ævar Jónasson unnu annað kvöldið í röð með 57,1% skor. Fast á hæla þeirra komu Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 56,5% skor.
22.9.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Ţorvaldur og Björn efstir međ 62,7%
Ţorvaldur Pálmason og Björn Árnason unnu 18 para tvímenning með 62,7%. Næstar voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 57,6%.
Ţorvaldur og Björn unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Ţrír frakkar hjá Úlfari
22.9.2010
Startmót Sjóvá hjá B.A.
21.9.2010
Bridgeflag Reykjavkur - 3ja kvlda btlertvmenningur
21.9.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar
Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason sigruðu af öryggi í eins kvölds tvímenningi hjá BH þann 20.sept. Sigurjón Harðarson og Hafþór Kristjánsson komu næstir og Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson í 3.sæti.
Næsta mánudag, 27. september hefst þriggja kvölda A-Hansen tvímenningur, vegleg verðlaun! Sjá heimasíðu BH
19.9.2010
Vetrarstarfiđ hafiđ á suđurnesjum
Vetrarstarfið hófst hjá bridgefélaginu Muninn 15.sept s.l.
8 pör mættu til leiks og var spilaður eins kvölds tvímenningur. Sigurvegarar kvöldsins voru þeir Jón H. og Ævar.
Næsta spilakvöld er 22. sept og vil ég hvetja alla til að mæta og hefst spilamennska kl. 19:00.
15.9.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Garđar Valur og Unnar Atli unnu!
Garðar Valur Jónsson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 20 para tvímenning á fyrsta spilakvöldi Miðvikudagsklúbbsins í vetur. Þeir voru 1 stigi fyrir ofan Ásmund Örnólfsson og Pál Ágúst Jónsson. Garðar og Unnar unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Þrjá frakka hjá Úlfari.
Næstu 3 kvöld verður gjafabréf á Þrjá frakka hjá Úlfari í verðlaun fyrir efsta sætið!
15.9.2010
Vetrarstarf B.A. ađ hefjast
Bridgefélag Akureyrar er að hefja vetrarstarf sitt og kætast margir yfir því.
14.9.2010
Bridgefélag Reykjavíkur - Upphitunartvímenningur
Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson burstuðu fyrsta mót vetrarins með 61,7% skor. Á eftir komu Guðmundur Baldursson og Steinberg Ríkarðsson með 58,3% Sjá nánari úrslit hér
7.9.2010
Sumarbridge: 40 pör mćttu til leiks í Sumarbridge!
Miðvikudaginn 6. september var sett þátttökumet í sumar.40 pör mættu til leiks og var baráttan mikil um efstu sætin. Gunnlaugur Sævarsson og Garðar Garðarsson stóðu að lokum uppi sem sigurvegarar með +113,2 stig sem jafngildir 60,6%. Í öðru sæti voru Dröfn Guðmundsdóttir og Ásgeir Ásbjörnsson með +111,4 stig og í 3.sæti voru Björn Friðriksson og Unnar Atli Guðmundsson með +106,4 stig.
6.9.2010
Bridgefélag Kópavogs: Vetrarstarfiđ hefst 16 september
Vetrarstarf Bridgefélags Kópavogs hefst fimmtudaginn 16 september. Spilað er að á fimmtudögum kl. 19:00 í Gjábakka, Fannborg 8. Dagskrá vetrarins má sjá á heimasíðu félagsins:
31.8.2010
Bridgefélag Reykjavkur - Haustdagskrá
Haustdagskrá BR 2010
Bridgefélag Reykjavíkur
riðjudagskvöld
Dagskrá haustið 2010
Bridgefélag Reykjavíkur mun spila á þriðjudögum í vetur í Síðumúla 37og hefst spilamennska kl. 19:00.
Dagskrá haustins lítur þannig út:
| 14/9/2009 | Monrad eins kvölds upphitunartvímenningur |
| 21/9/2009 | Bötlertvímenningur |
| 28/9/2009 | Bötlertvímenningur |
| 5/10/2009 | Bötlertvímenningur |
| 12/10/2009 | Swiss monrad sveitakeppni. 25-skalinn og danskur monrad í lokaumferðinni |
| 19/10/2009 | Swiss monrad sveitakeppni. 25-skalinn og danskur monrad í lokaumferðinni |
| 26/10/2009 | Swiss monrad sveitakeppni. 25-skalinn og danskur monrad í lokaumferðinni |
| 2/11/2009 | Hraðsveitakeppni |
| 9/11/2009 | Hraðsveitakeppni |
| 16/11/2009 | Hraðsveitakeppni |
| 23/11/2009 | Cavendish tvímenningur(imps across the field) |
| 30/11/2009 | Cavendish tvímenningur(imps across the field) |
| 7/12/2009 | Cavendish tvímenningur(imps across the field) |
| 14/12/2009 | Jólasveinatvímenningur BR |
| 30/12/2009 | Jólamót BR. Byrjar kl. 17:00 |
Spilarar í BR geta keypt árskort og 10 miða kort. Keppnisstjóri í vetur verður Vigfús Pálsson. Góða skemmtun við græna borðið!
31.8.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar - Haustdagskrá
Bridgefélag Hafnarfjarðar Haust 2010
Einskvölda tvímenningur 13/9 20/9
A-Hansen tvímenningur 27/9 4/10 11/10
Hraðsveitakeppni 18/10 25/10
Einskvölda tvímenningur 1/11 8/11
Mitchell tvímenningur 15/11 22/11 29/11
Aðalsveitakeppni 6/12 13/12
Jólatvímenningur 20/12
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar 29/12
Spilað verður að Flatahrauni 3 og hefst spilamennska kl. 19:00
Keppnisstjórar: Sveinn Rúnar Eiríksson/Ómar Olgeirsson
Spilagjald 800kr á mann, hjón 1 gjald
19.8.2010
Sumarbridge: Brynjar og Vilhjálmur efstir međ 64,1% skor!
Brynjar Jónsson og Vilhjálmur Sigurðsson JR voru efstir af 35 pörum með 64,1%. Næstir voru Sverrir G. Kristinsson og Páll Valdimarsson með 61,4% og í þriðja sæti voru Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir með 60,8%.
16.8.2010
Sumarbridge: Ómar og Hjálmar efstir af 26 pörum međ 64,7%
Hjálmar Pálsson og Ómar Jónsson unnu 26 para tvímenning með 64,7%. Næstar voru Guðrún Jóhannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir með 62,2% og þriðju voru Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson með 61,9%.
10.8.2010
Örn Einarsson og Jens Karlsson efstir í Sumarbridge
4.8.2010
Alda og Kristján efst í Sumarbridge
2.8.2010
Hrund og Dröfn efstar á frídag verslunarmanna
Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir sigruðu nokkuð örugglega í Sumarbridge á frídegi verslunarmanna með 60,6% skor.
1. Hrund Einarsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir 60,6%
2. Björn Friðriksson - Sverrir Þórisson 57,1%
3-4 Halldór Úlvar Halldórsson - Kristinn Þórisson 56,9%
3-4 Sveinn Stefánsson - Bregur Reynisson 56,9%
27.7.2010
Sumarbridge: Guđrún og Haraldur efst af 34 pörum!
Guðrún Jóhannesdóttir og Haraldur Ingason voru efst af 34 pörum í Sumarbridge, mánudaginn 26. júlí.
Öll spil og úrslit má finna á Heimasíða Sumarbridge 2010
20.7.2010
Fréttir frá Akureyri
22.6.2010
Sumarbridge á Akureyri
18.6.2010
Guđjón og Ísak efstir af 30 pörum. Sveit Gunnars Björns vann miđnćtur KO!
Guðjón Sigurjónsson og Ísak Örn Sigurðsson unnu 30 para tvímenning miðvikudaginn 16. júní. Þeir voru 13 stigum fyrir ofan Rögnu Briem og Þórönnu Pálsdóttur sem enduðu í 2. sæti.
Sveit Gunnars Björns Helgasonar vann miðnætursveitakeppni með þátttöku 6 sveita.
Með Gunnari spiluðu: Sigurður Páll Steindórsson, Örvar Óskarsson og Ómar Freyr Ómarsson.
16.6.2010
16.júnímót Bridgefélags ML
13.6.2010
Ađalfundur Bridgefélags Reykjavíkur
Bridgefélag Reykjavíkur
Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður mánudaginn 14.júní kl. 17:30 í Síðumúla 37.
Venjuleg aðalfundarstörf, m.a. kosning nýrrar stjórnar.
Allir félagsmenn Bridgefélags Reykjavíkur hvattir til að mæta.
10.6.2010
39 pör í Sumarbridge!!
Frábær mæting var miðvikudaginn 9. júní í Sumarbridge. 39 pör mættu til leiks og spiluðu einskvölds tvímenning. Hlynur Angantýsson og Aron Þorfinnsson sigruðu með 2 stigum meira en Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson. Þessi 2 pör spiluðu við hvort annað í síðustu umferð og var mikil spenna fyrir þá sem fylgdust með stöðunni í rauntíma heima hjá sér.
Á heimasíðu Sumarbridge er hægt að sjá öll úrslit og spil auk þess sem þar er að finna tengil á uppfærða raunstöðu eftir hvern innslátt í BridgeMate.
2.6.2010
Sumarbridge: Björn og Sverrir sigruđu 25 para tvímenning!
Björn Friðriksson og Sverrir Þórisson sigruðu 25 para tvímenning með 57,5% skor. Í 2. sæti voru Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson með 56,2%. Gróa Guðnadóttir og Unnar Atli Guðmundsson voru í 3ja sæti með 56,1%.
28.5.2010
Sumarbridge 2010: Gunnlaugur og Ísak unnu 30 para tvímenning međ 69,1%
30 pör mættu til leiks miðvikudaginn 26. maí. Gunnlaugur Karlsson og Ísak Örn Sigurðsson sigruðu með hæsta skori sumarsins, 69,1%. Í öðru sæti voru Þórður Björnsson og Helgi Bogason með 61,5%.
Sumarbridge er spilað mánudögum og miðvikudögum og byrjar spilamennska kl. 19:00. Alltaf eru spilaðir einskvölds tvímenningar með forgefnum spilum. Allir spilarar eru velkomnir jafnt vanir sem óvanir.
25.5.2010
Gólfmótiđ á Strönd
Sigurvegarar í samanlögðum árangri urðu
Jón Ingþórsson og Kristinn Ólafsson.
Röð efstu para: Jón Ingþórsson - Kristinn Ólafsson 58,2 %
Jón St Ingólfsson - Jens Jensson 54,6%
Guðni Ingvarsson - Trausti Valsson 53.1%
Bernódus Kristinsson - Ingvaldur Gústafsson 52,1%
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson 51,5%
Öllum sem þátt tóku, er þökkuð samveran og stefnt er að næsta móti á nýju vori,
enda ekki ástæða til annars, slík var ánægja þátttakenda."
20.5.2010
Sumarbridge 2010: Örn Einarsson og Bragi Bjarnason efstir af 32 pörum!!
Örn Einarsson og Bragi Bjarnason unnu 32 para monrad Barómeter með 61% skor. Í 2. sæti voru Gunnar Björn Helgason og Örvar Óskarsson með rétt rúmlega 60% skor.
19.5.2010
Sumarbridge 2010: Stađan í rauntíma!!
Sumarbridge 2010 ætlar að bjóða öllum áhugamönnum að fylgjast með stöðunni á hverju kvöldi eftir hvern innslátt í BridgeMate. Ekki verður boðið upp á að sýna spilin fyrr en að spilamennsku lokinni, en staðan verður uppfærð eftir hvern innslátt á hverju spili í BridgeMate.
18.5.2010
Golf-Bridge 22.maí
Golf- Bridge mót.
Golf-Bridge mótið verður haldið í annað sinn laugardaginn 22. maí á Strandarvelli (Hellu).
Leikfyrirkomulag í golfinu er „Betri bolti", þeas. báðir leika til enda og betra skor gildir.
Ræst á öllum teigum kl. 10.oo.
Eftir golfið verður matast og síðan hefst tvímenningur. Sömu pör í golfi og bridge og samanlagður árangur gildir til sigurs.
Keppnisgjald er kr. 11.000 á parið (allt innifalið).
Upplýsingar og skráning hjá Lofti s: 897 0881 (bolsturverk@simnet.is) og hjá GHR s: 487 8208 (ghr@ghr.is)
Í fyrra var gaman, en nú verður það enn betra !
Skráningu lýkur 17. maí.
17.5.2010
Sumarbridge: Gunnar Björn og Ómar efstir međ 61,6%!
Gunnar Björn Helgason og Ómar Olgeirsson unnu mánudagskvöld í Sumarbridge með 61,6% skor. Þeir fá ókeypis næst þegar þeir mæta í Sumarbridge 2010.
14.5.2010
Sumarbridge-Akureyri
Akureyri Bridge Club holds an open duplicate every Tuesday evening all through the summer, from May 14th to Sept. 14th. The venue is at Skipagata 14, 4. floor, playing starts at 19:30. Bridge-playing tourists are warmly welcome. A partner will be made available if needed.
13.5.2010
Bridsfélag Kópavogs lauk tímabilinu 6. maí.
13.5.2010
Sumarbridge: Guđrún og Arngunnur efstar af 20 pörum!
Guðrún Jóhannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir voru efstar með rúmlega 63% skor fyrsta spilakvöld í Sumarbridge 2010. Þær náðu því einnig hæsta skori sumarsins!!
4.5.2010
Einmenningsmeistarar BR 2010
Eru Hrólfur Hjaltason með 63 stig og Guðrún Jóhannesdóttir með 34 stig
Sjá nánar á heimasíðu BR
4.5.2010
Einmenningur í BR í kvöld
Hinn árlegi topp 24 einmenningur verður haldinn í kvöld, sjá stigahæstu spilara hér: http://bridge.is/files/Bronsstig_2009_2010_1574984253.htm
Einnig spila 12 efstu konur sér einmenning. Imps across the field. Búið er að hafa samband við spilara sem náðu inn í mótið.
Veitt verða verðlaun fyrir stigahæsta spilara vetrarsins, stigahæstu konuna og stigahæsta yngri spilarann.
3.5.2010
Fréttabréf frá BSA
Fréttabréf frá Bridgesambandi Austurlands.
Starfsári BSA lauk laugardaginn 1. maí.
Austurlandsmót í sveitakeppni lauk þá á Vopnafirði með þátttöku 6 sveita.
Sveit Suðurfjarðamanna sigraði, en sveitina skipuðu; Björn Hafþór Guðmundsson, Óttar Ármannsson, Ævar Ármannsson, Magnús Valgeirsson og Jónas Ólafsson.
Í öðru sæti urðu Sláturfélag Vopnfirðinga og í 3. sæti sveitin Já Sæll frá Borgarfirði eystra.
Aðalfundur BSA var haldinn við sama tækifæri og var stjórn sambandsins endurkjörin, en hana skipa Jón H Guðmundsson forseti, Óttar Ármannsson gjaldkeri, Magnús Valgeirsson ritari og Þorsteinn Bergsson meðstjórnandi.
Sambandið hefur haldið mörg mót á liðnum vetri, paratvímenning, aðaltvímenning, Einmenningskeppni, jólatvímenning, úrtökumót í sveitakeppni, hraðsveitakeppni, bikarkeppni og loks Austurlandsmót í sveitakeppni.
F h stjórnar.
Jón H Guðmundsson
2.5.2010
Ţórđur og Björn unnu í Kópavogi
27.4.2010
Vorbötler BR
27.4.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar - Vortvímenningur og ađalfundur
Öll úrslit og spil 26.apríl - Gunnlaugur og Garðar héldu sjó seinna kvöldið og unnu nauman sigur eftir harða baráttu gegn Hermanni Friðriks og Halldóri Úlfari Halldórssyni.
Minnt á aðalfund BH á A-Hansen á föstudaginn, 30.aprí. Skráning hjá Sigurjóni í síma 8980970
26.4.2010
Norđurlandsmót í tvimenning
Bridge - bridge - bridge
Norðurlandsmót í tvímenningi
1. maí 2010
Norðurlandsmót í tvímenningi verður haldið í
Safnaðarheimilinu við Dalvíkurkirkju
laugardaginn 1. maí 2010.
Spilamennska hefst kl. 10:30 og mótslok áætluð um kl. 18 - 18:30.
Keppnisgjald er 2500 kr. pr. mann.
Léttur hádegisverður innifalinn og kaffi á könnunni.
Spilað er um silfurstig.
Við hvetjum eindregið til góðrar þátttöku í skemmtilegu móti.
Skráning er hjá Hákoni Sigmundssyni, sími 864 6161 og
Víði Jónssyni, sími 897 7628
Skráning í síðasta lagi kl. 16 föstudaginn 30. apríl 2010.
Bridgesamband Norðurlands eystra
23.4.2010
Bridgefélag Rangćinga
Verðlaunaafhending og lokakvölds-Barómeter.
Að vanda er vetrinum lokað hjá Bridgefélagi Rangæinga með því að félagarnir hittast á miðvikudagskvöldi, fyrir sumardaginn fyrsta, og gera sér glaðan dag. Síðasta miðvikudagskvöld varð engin undantekning á. Menn létu hvorki gos né aðrar yfirlýsingar um náttúruhamfarir halda aftur af sér. Kvöldið hófst með verðlaunaafhendingu en hægt er að sjá úrslit úr keppnum vetrar hér á vefsíðu félagsins og verða þau því ekki endurtekin (öll).
En samt er rétt að.....
20.4.2010
Fyrra kvöld Vorbötler hjá BR
Baldvin Valdimarsson og Hjálmtýr Baldursson sigruðu fyrra kvöld af 2 í vörbötler BR 2010
Sjá nánar stöðuna á heimasíðu BR
20.4.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar - Vortvímenningur
19.4.2010
Stađan eftir tvö kvöld af ţremur hjá BK
18.4.2010
Briddsfélag Selfoss
17.4.2010
Úrslit í Suđurlandsmótinu í tvímenning
Suðurlandsmótið í tvímenning árið 2010 var spilað laugardaginn 17. apríl sl. Spilað var í Tryggvaskála á Selfossi, til leiks mættu 14 pör og spiluðu 4 spil á milli para, alls 52 spil. Keppnisstjóri var Guðmundur Þór Gunnarsson.
Suðurlandsmeistarar í tvímenning árið 2010 urðu Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson með 56,9% skor. Í öðru sæti rétt á eftir þeim urðu Sverrir Þórisson og Björn Friðriksson með 56,6% skor. Í þriðja sæti urðu síðan Garðar Garðarsson og Gunnar L. Þórðarson með 55,4% skor. Lokastöðuna má finna á ţessari síðu. Fyrri hluta af spilum og tíðnitöflum (32 spil) er að finna hér og seinni hlutann (20 spil) er að finna á ţessari síðu.
15.4.2010
Bridgefélag Rangćinga
Síðasta, formlega, spilakvöld vetrar fór fram nú síðastliðinn þriðjudag og að vanta var engin lognmolla yfir því. Svo mikil voru lætin að mönnum virtist sem svo að hækkað hafi í nærliggjandi sprænu um allt að 50 cm. Það er skemmst frá því að segja að orsakir hamagangsins voru þeir nafnar Magnús. Þeir gjörsigruðu barómeterinn og leiddu keppnina alveg frá því að húsið var opnað. Gárungar telja að þakka beri Ólafi Ólafssyni fyrir sýninguna þar sem hann hafði nafnana tvo í einkatímum í marga áratugi og á félagið því honum þakkir skildar fyrir þann eldmóð og þolinmæði sem hann virðist hafa sýnt við kennsluna sem varð til að skila slíkum árangri.
Meistarakeppnina vann Sigurður Skagfjörð með glæsibrag og gjörsigraði makker sinn með 28 stiga mun. Ekki tekur að nefna muninn á næstu menn, þar sem sú tala er varla prenthæf.
Nánari úrslit má sjá hér.
13.4.2010
Ađalsveitakeppni BR 2010 Lokiđ
Sveit Grant Thornton sigraði aðalsveitakeppni BR 2010 með 193 stig. Í sveitinni spiluðu Sveinn Rúnar Eiríksson, Ómar Olgeirsson, Hrólfur Hjaltason og Oddur Hjaltason. Sveit Málningar varð í 2.sæti og Garðsapótek í 3.sæti. Verðlaun verða afhent í topp 24 einmenningnum.
Sjá nánar á heimasíðu BR
13.4.2010
Vesturlandsmót + Opna Borgarfjarđarmótiđ
Vesturlandsmótið í Tvímenning verður haldið að Mótel Venus við Borgarfjarðarbrú laugardaginn 17 apríl kl. 10:00. Spilaður verður Barómeter, allir við alla, ca. 45-63 spil sem fer eftir þátttöku. Mótið er silfurstigamót en ekki er keppt um sæti á Íslandsmóti eins og áður var.
Ţáttökugjald er kr. 7.000,- á parið. INNIFALIÐ: Hádegisverður og kaffi/te allan daginn.
Ţátttaka tilkinnist til Þórðar í s. 862-1794 og thorduring@gmail.com Formenn Bridgefélaganna á Akranesi og í Borgarfirði taka við skráningum í sínum félögum. Skráningu lokað á fimmtudag kl. 22:00
Opna Borgarfjarðarmótið fer fram dagana 19, 26 og 29 apríl. Fyrsta kvöldið er spilað í Logalandi, annað kvöldið í Mótel Venus og endað á Akranesi fimmtudaginn 29 apríl. Mótið er silfurstigamót og verða pör að mæta öll kvöldin eða útvega varapar. ´
Spilagjald er kr. 1.000,- hvert kvöld.
13.4.2010
Hermann Friđriksson einmenningsmeistari B. Hafnafjarđar
12.4.2010
Suđurlandsmótiđ í tvímenning - ítrekun
Suðurlandsmótið í tvímenning 2010
Suðurlandsmótið í tvímenning verður haldið laugardaginn 17. apríl nk. Spilastaður verður í Tryggvaskála á Selfossi, og hefst spilamennska kl. 10:00 og stefnt að því að vera búið ekki seinna en kl. 18:00. Skráning er hafin á ţessari síðu, eða hjá Garðari í síma 844 5209 og Ólafi í síma 898 2880 eða tölvupósti ost@ms.is. Skráningu lýkur fimmtudagskvöldið 15. apríl. Spilað verður um Suðurlandsmeistaratitilinn í tvímenning 2010, og silfurstig verða í boði. Ekki er lengur spilað um þátttöku á Íslandsmóti í tvímenning á svæðamótum.
9.4.2010
Briddsfélag Selfoss
Ţá er lokið fyrra kvöldi af tveimur í einmenningsmeistarakeppni Briddsfélags Selfoss. Gamli refurinn Brynjólfur Gestsson leiðir þegar mótið er hálfnað og skammt á eftir honum er hinn þögli og alvarlegi spilamaður Kristján Már Gunnarsson, voru þeir kumpánar í sérflokki. En þar á eftir koma fræknir feðgar Guðmundur og Gunnar.
Svo minnum við á suðurlandsmótið í tvímenningi sem haldið verður í Tryggvaskála laugardaginn 17. april næstkomandi. Hægt er að skrá sig í það hér
8.4.2010
Bridgefélag Rangćinga
Aðaltvímenningur Rangæinga lauk síðasta þriðjudagskvöld og fullyrða elstu menn að aðaltvímenningurinn hafi aldrei unnist með eins litlum mun og nú varð. Það má segja að úrslitin hafi nánast ráðist á einum Impa og því rétt að hafa í huga að betri er einn Impi á blaði en tveir í orði.
Sigurvegararnir náðu 57.85% þegar 4 af 5 bestu kvöldin eru talin saman en það verða sætaskipti á 1 og 2 sæti ef öll kvöld eru talin saman. Þeir sem enduðu 2. sæti náðu 56.75% heildarskori en 57.60% (4 af 5).
Með sigur af hólmi fóru Sigurður og Torfi, þeir áttu jafnt og gott mót og sigurinn verðskuldaðan. Í öðru sæti urðu Halldór og Kristján, en því miður dugði eldmessan ekki að þessu sinni en full trú er á því að þeir komi fílefldir til leiks að ári. Þessum snillingum er óskað til hamingju með góða spilamennsku og frábæran árangur. Nánari úrslit má sjá hér.
7.4.2010
Ţriggja kvölda vor tvímenningur í Kópavogi
6.4.2010
Ađalsveitakeppni BR 2010 - kvöld 4
Aðeins 1 kvöld er eftir í aðalsveitakeppni BR 2010
Sveit Grant Thornton er með afgerandi forystu, en þó ekki næga.
1 Grant Thornton 163
2-3 Málning 145
2-3 Gylfi Baldursson 145
4 Garðs Apótek 141
6.4.2010
Bridgefélag Rangćinga – Páskamót
1.4.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Emma og Davíđ unnu páskaeggjatvímenninginn!
Emma Axelsdóttir og Davíð Lúðvíksson unnu 16 para tvímenning með 57,2% skor. Erla Sigurjónsdóttir og Guðni Ingvarsson voru í 2. sæti með 56,6%. Þessi pör unnu sér inn páskaegg auk þess sem Sigurður Kristjánsson og Eiríkur Sigurðsson voru dregnir út og fengu páskaegg.
31.3.2010
Páskatvímenningur Bridgefélags Hafnarfjarđar föstudaginn langa
30.3.2010
Ađalsveitakeppni BR 2010
Grant Thornton er með forystu að loknum 6 umferðum með 120 stig.
Sjá nánar á heimasíðu BR
30.3.2010
Halldórsmót B.A.
30.3.2010
Páskamót Sjálfsbjargar: Garđar og Unnar fengu stćrstu eggin!
Garðar Valur Jónsson og Unnar Atli Guðmundsson unnu Páskamót Bridgefélags Sjálfsbjargar með 64,9%. Í öðru sæti voru Árni Hannesson og Oddur Hannesson með 61,3%.
26.3.2010
Briddsfélag Selfoss
Íslandsbankatvímenningi Briddsfélags Selfoss lauk síðastliðin fimmtudag. Efstir og jafni urðu þeir Sigurður Vilhjálmsson og Þórður Sigurðsson, Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson. En langhæðsta skor kvöldsins fengu þeir Kristján M. Gunnarsson og Leif Österby.
Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudag, en eftir tvær vikur hefst meistar einmenningur félagsins og verður hann tvö kvöld, þar sem allir spila við alla.
26.3.2010
Páskamót í Breifirđingabúđ í kvöld
Mótið hefst kl. 19:00, upplýsingar í síma 869-7338
Allir verlkomnir meðan húsrúm leyfir
25.3.2010
Bridgefélag Rangćinga
Spilað undir eldum! Þann 23 síðastliðinn var haldið fjórða og næstsíðasta aðaltvímenningskvöld félagsins. Séra Halldór hélt messu en ólíkt Jóni forðum náði hann ekki að kveða eldana niður en í staðinn færði hann söfnuðinn til hlýðni. Þeir félagar Halldór og Kristján náðu góðum sigri þetta kvöld og voru vel að honum komnir. Kraftur messunnar var þó það mikill að þeir náðu einnig efsta sætinu í heildarkeppninni og hafa nú tæpt prósent í forskot á næstu menn. Nánari úrslit má sjá hér.
Spennan er orðin gríðarleg fyrir síðasta kvöldið það var því ákveðið að hvíla aðaltvímenninginn og taka upp léttan páskabarómeter næsta þriðjudag. Þetta er fyrst og fremst gert til þess að róa menn og minnka líkurnar á íþróttameiðslum.
Gestir eru meira en velkomnir en þeir eru beðnir um að senda póst á spilastjóra og „allt muligt man“ : Sigurdur.S.Ingimarsson„HJÁ“landsbankinn.is og láta vita af þátttöku, sem fyrst.
24.3.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Ingólfur og Hermann unnu páskaegg!
23 pör mættu til leiks miðvikudaginn 24. mars. Ingólfur Hlynsson og Hermann Friðriksson unnu með 62,2% skor og unnu sér inn páskaegg. Eðvarð Hallgrímsson og Björn Árnason urðu í 2. sæti og í 3ja sæti voru Birna Stefnisdóttir og Aðalsteinn Steinþórsson með 58,7%
23.3.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar-bötlertvímenningur
Sjá úrslit og spil hér
19.3.2010
Briddgefélag Selfoss
Síðastliðin fimmtudag hófst tveggjakvölda tvímenningur hjá Briddsfélagi Selfoss. Taka 13 pör þátt í mótinu og efstir eftir fyrra kvöldið eru Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson. Stöðuna má sjá hér. Mótið klárast svo næstkomandi fimmtag.
18.3.2010
Bridgefélag Rangćinga
17.3.2010
Ađalsveitakeppni BR 2010 - ţétt á toppnum
Eftir 2 umferðir af 10 er staðan þétt á toppnum. Sveit Málningar er með fullt hús stiga, 50 stig.
Sjá nánar á heimasíðu BR
16.3.2010
Ađalsveitakeppni BR ađ byrja í kvöld
16.3.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar - Ađaltvímenningur
Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson gáfu ekkert eftir síðasta kvöldið í aðaltvímenning BH og tóku gullið. Í öðru sæti urðu Högni Friðþjófsson og Guðbrandur Sigurbergsson. Í þriðja sæti urðu Gunnar Birgisson og Ólafur Danivalsson en þeir fengu skor kvöldsins. Næsta mánudag hefst tveggja kvölda bötlertvímenningur.
Sjá úrslit og spil hér:
Kvöld 1
Kvöld 2
Kvöld 3
Kvöld 4
14.3.2010
Briddsfélag Selfoss
Aðalsveitakeppni Briddsfélags Selfoss lauk síðastliðin fimmtudag. Sveitakeppninni lauk með sigri Garðars Garðarsonar og félaga. Með Garðari voru Kristján Már, Guðmundur Sæmundsson og Höskuldur Gunnarsson. Næsta mót félagsins verður Íslandsbanka barómeter og verður byrjað á honum næstkomandi fimmtudag.
Hér má sjá lokastöðuna í sveitakeppninni. Aðalsveitakeppni krosstafla.
11.3.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Jón og Eiríkur efstir međ 60,7%
Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson unnu 22 para tvímenning með 60,7% skor. Þeir fengu að launum bridgebók frá Guðmundi Páli.
Öll úrslit og spil er að finna á heimasíðu félagsins:
11.3.2010
Bridgemót Vals
11.3.2010
Bridgefélag Rangćinga
Ţá er afstaðið 2. kvöld í aðaltvímenningi Rangæinga. Eins og áður sagði telja 4 bestu af 5 og því er mótið að verða hálfnað. Töluverð spenna er að myndast þar sem nokkur pör eru nánast jöfn i fyrstu sætunum og leiða forustusauðirnir aðeins með broti úr prósenti. Því er ljóst að lítið má fara úrskeiðis á næstu kvöldum. Nú síðast sannaðist eitt enn máltækið „þeir síðustu verða fyrstir“ því maggarnir komu síðastir en enduðu efstir og unnu ágætan sigur í tvímenningnum. En banka-sláturhússtjórinn leiða heildarkeppnina með naumindum. Nánari úrslit má sjá hér.
4.3.2010
Bridgefélag Rangćinga
Eftir velheppnaða aðalsveitakeppni félagsins voru menn ákafir í að hefjast handa við aðaltvímenninginn þar sem 4 bestu kvöld af 5 telja. Að vanda var góð mæting og spilað á 7 borðum.
Af úrslitum fyrsta kvölds er það að frétta að Siggi og Torfi náðu með herkjum og tolla í efsta sæti með 191 stig eða 61.22% skor, gaman að sjá að þeir séu að ná fornum styrk. Allt bendir því til mikillar spennu næstu fjórar vikurnar. En úrslit má sjá hér.
3.3.2010
Hrađsveitarkeppni í Kópoavogi
Hraðsveitarkeppni hefst hjá Bridsfélagio Kópavogs fimmtudaginn 4 mars.
2.3.2010
Jón og Ţorlákur eru Tvímenningsmeistarar BR 2010
Lokastaðan er...
28.2.2010
Stórsveitin Vesturlandsmeistarar
26.2.2010
Bridgefélag Selfoss
Aðalsveitakeppni félagsins hófs fimmtudaginn 18. febrúar með þátttöku 6 sveita. Spilaðar voru tvær umferði og má sjá stöðuna hér. Síðast liðið fimmtudagskvöld var spilaður einskvöldstvímenningur, þar sem veðrið var eitthvað að trufla einhverja við að mæta. En það mættu 10 pör, hlutskarpastir urðu þeir Guðmundur Þór og Sigfinnur. En lokastöðuna má sjá hér.
Næstkomandi fimmtudag verður svo haldið áfram með aðalsveitakeppnina ef veðurguðrinir lofa.
25.2.2010
Bridgefélag Rangćinga
Síðasta kvöldið í aðalsveitakeppni Bridgefélags Rangæinga fór fram núna á þriðjudaginn. Eins og flestir vita var staðan fyrir kvöldið sú að maggarnir leiddu með 10 stiga mun og var um úrslitaleik að ræða þar sem þeir öttu kappi við þá sveit sem næst kom. Til þess að vinna aðalsveitakeppnina máttu þeir ekki tapa meira en 11-19.
Ţað er skemmst frá því að segja að þeir félagar Magnús, Magnús, Bergur og Sigurjón settu á laggirnar Bridge skóla og var aðgangseyrir hafður 500 krónur. Þarna voru menn settir á skólabekk og kennt hvernig fullorðnir spila Bridge. Það væri vægt til orða tekið ef sagt væri að maggarnir hafi unnið! Um algjöra rasskellingu var að ræða og segjast menn aldrei hafa séð til sólar og velta fyrir sér hvort réttast væri að leggja fyrir sig útsaum, en vonast til þess að kennslan skili einhverju.
Ţað var frábært að sjá spilamennskuna á steinabræðrum og ekki voru maggarnir síðri! Augljóst er að um yfirburða sveit var að ræða og þeir áttu sigurinn sannarlega skilið. Sigtryggur vann ekki.. hann slátraði 25-3. Til hamingju strákar!
Eins og mönnum grunar kannski þá fór tvímenningurinn þannig að Magnús/Magnús sigruðu með töluverðum yfirburðum. Úrslit má sjá hér.
23.2.2010
Ađaltvímenningur BR
Að loknum 3 kvöldum af 4, er staðan í Aðaltvímenningi BR þessi.
Hér er staðan æsispennandi á toppnum.
23.2.2010
Ađaltvímenningur BR 2010
Að loknum 3 kvöldum af 4, er staðan í Aðaltvímenningi BR þessi.
Hér er staðan æsispennandi á toppnum.
22.2.2010
Úrslit Suđurlandsmótsins í sveitakeppni
Suðurlandsmótið í sveitakeppni var spilað helgina 20. – 21. febrúar 2010. Í mótinu tóku 10 sveitir þátt og spiluðu 14 spila leiki allir við alla. Keppnisstjórn var í öruggum höndum Þórðar Ingólfssonar.
Sigurvegarar í mótinu varð sveit Sigurðar Vilhjálmssonar, en með honum spiluðu Ragnar Magnússon, Rúnar Magnússon og Kristján Blöndal. Í öðru sæti, og jafnframt Suðurlandsmeistarar (sveit Sigurðar var ekki með nægilegt hlutfall spilara af svæðinu) varð sveit Tryggingamiðstöðvarinar, en fyrir hana spiluðu Kristján Már Gunnarsson, Helgi Grétar Helgason, Björn Snorrason, Vilhjálmur Þór Pálsson, Ríkharður Sverrisson og Þröstur Árnason. Í þriðja sæti varð síðan sveit N1, en þar spiluðu Brynjar Jónsson, Böðvar Magnússon, Ólafur Lárusson og Skúli Sveinsson. Auk þessara 3 sveita, unnu sveitir Gunnars Björns Helgasonar og Sveitin milli sanda sér inn rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni 19.-21. mars nk. Nánar má finna um úrslitin á ţessari síðu.
21.2.2010
Vesturlandsmótiđ í sveitakeppni um nćstu helgi
Vesturlandsmótið í sveitakeppni fer fram á veitingastaðnum B-57 í Borgarnesi helgina 27-28 febrúar. Spilamennska hefst kl. 10.00 báða dagana og fer lengd leikjanna eftir því hversu margar sveitir mæta til leiks en lágmarks spilafjöldi er 120 spil. Þátttökugjald er kr. 20.000,- á sveit og er innifalinn léttur hádegisverður báða dagana og standandi kaffi báða daga ásamt smá meðlæti síðdegis.
Ţátttaka tilkinnist til Þórðar Ingólfssonar í s. 862-1794 og thorduring@gmail.com í síðasta lagi fimmtudaginn 25 feb. kl. 22.00
21.2.2010
Reykjanesmótiđ í sveitakeppni 2010 - öll spil og úrslit
Öll úrslit og spil úr Reykjanesmótinu í sveitakeppni 2010 eru komin á netið.
18.2.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Guđlaugur Sveinsson og Jón Hákon efstir af 30 pörum!
Guðlaugur Sveinsson og Jón Hákon Jónsson urðu efstir með rúmlega 65% skor í 30 para tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum. Í öðru sæti voru Ásmundur Örnólfsson og Páll Ágúst Jónsson með rúmlega 64%.
18.2.2010
Bridgefélagi Rangćinga
Í lokinn varð 2000 kallinn sem dropi í haf. Lokastaða: 21-9, Sigtryggur vann! Nú hafa magnúsa-steinabræður 10 stiga á næstu sveit en þær tvær munu mætast í hreinum úrlistaleik næstkomandi þriðjudag.
Af tvímenning er það helst að þeir nafnar Magnús urðu hæstir eftir meðferð þeirra á meisturum síðustu ára (jafnvel áratuga). Nánari úrslit má sjá hér.
16.2.2010
Ađalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarđar-Sveit Maríu Haralds sigrađi
Sjá nánar á heimasíðu B. Hafn.
15.2.2010
Barometer BK
Fimmtudaginn 11. Febrúar var spilað annað kvöldið í barometers keppni félagsins.
Bernódus og Ingvaldur tóku rúmlega 66% skor og eru komnir með nauma forystu.
12.2.2010
Bridgefélag Selfoss
Ţá er lokið Sigfúsar móti Briddsfélag Selfoss, efstir urðu þeir Sigfinnur Snorrason og Guðmundur Þór Gunnarsson og skammt á eftir þeim voru Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermansson. Loka stöðuna má sjá hér. Skor kvöldsins má svo sjá hér.
Næsta mót félagsins er aðalsveitkeppni og eru menn beðnir um að skrá sig í pörum. Hægt er að gera það hér.
11.2.2010
Bridgefélagi Rangćinga
10.2.2010
Miđvikudagsklúbburinn: Ásmundur og Páll Ágúst međ 62% skor!
Ásmundur Örnólfsson og Páll Ágúst Jónsson voru efstir af 27 pörum með 61,9% skor. Þeir fengu að launum bókina Íslenskar bridgeþrautir eftir Guðmund Pál Arnarson.
10.2.2010
Suđurlandsmótiđ í sveitakeppni 20. - 21. febrúar nk.
9.2.2010
Akureyrarmeistarar í sveitakeppni 2010
8.2.2010
Ađaltvímenningur BR ađ hefjast
5.2.2010
Briddsfélag Selfoss
Seinni umferði í Sigfúsarmótinu var spiluð síðastliðið fimmtudagskvöld. Staðan á toppnun er æsispennandi, efstir eru Guðmundur og Sigfinnur en fast á hæla þeirra koma reynsluboltarnir Kristján og Helgi og fast þar á eftir Brynjólfur og Helgi. Stöðuna í mótinu má sjá hér. Efstir þriðjakvöldið voru bræðurnir Anton og Pétur Hartmannssynir, skor kvöldsins má sjá hér. Sigfúsarmótinu lýkur svo næstkomandi fimmtudagskvöld. Síðan tekur við aðalsveitakeppni félagsins.
4.2.2010
BSNE-Svćđamót í tvímenning
Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð, Akureyri,
sunnudaginn 14. febrúar 2010.
Mótið er silfurstigamót sem er öllum opið. Það er ekki hluti af Íslandsmótinu í tvímenning eins og áður var.
Spilamennska byrjar kl. 10 og mótslok áætluð um kl. 17:30.
Keppnisgjald er 2000 kr. pr. mann.
Kaffi og te innifalið.
Við hvetjum bridgespilara til að vera með í skemmtilegu móti.
Lágmarksþátttaka er 12 pör.
Ćskilegt að sem flestir skrái sig á spilakvöldi síns Bridgefélags.
Skráning berist Stefáni Vilhjálmssyni, símar 898 4475 og 462 2468. Netfang: stefan.vilhjalmsson@mast.is
Skráning í síðasta lagi kl. 16 miðvikudaginn 10. feb. 2009.
4.2.2010
Bf. Kópavogs
Spilað er í Gjabakka, Fannborg 8 1.hæð
4.2.2010
Bridgefélagi Rangćinga
29.1.2010
Bridgefélag Rangćinga
Ţriðji í aðalsveitakeppni Rangæinga leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag. Með nokkuð öruggum sigri í sínum leik náðu Magnúsar og félagar að halda fyrsta sætinu í sveitakeppninni en hinar sveitirnar fylgja fast á eftir. Bræðurnir Svavar og Örn spiluðu eins og kóngar og rúlluðu upp tvímenningnum í þetta sinn. Þeir nældu sér í 62 stig en þeir sem næsti koma skriðu í 50. Hér má sjá nánari úrslit.
26.1.2010
Bridgefélagi Rangćinga
25.1.2010
Ţriggja kvölda tvímenningi lokiđ hjá BK
23.1.2010
Bridgefélag Selfoss
Guðmundur Þór og Sigfinnur töku forystu eftir annað kvöld Sigfúsarmótsins á Selfossi. Hægt er að sjá stöðuna í mótinu hér.
Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudagskvöld vegna bridgehátíðar.
19.1.2010
Úrslit Reykjavíkurmóts í sveitakeppni 2010
Sveit HF verðbréfa er Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni 2009 með 337 stig
Í sveitinni spiluðu, Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármannsson,Aðalsteinn Jörgensen, Steinar Jónsson og Bjarni Einarsson
sjá nánar hér
19.1.2010
Vordagskrá Bridgefélags Reykjavíkur
Dagskrá vorið 2010
Spilamennska BR á nýju ári byrjar þriðjudaginn 26. janúar. Spilað er í húsnæði BSÍ, Síðumúla 37. Spilamennska byrjar kl. 19:00. Skráning á staðnum.
26. janúar Eins kvölds tvímenningur – ATH! Spilað á Hótel Loftleiðum!
2. febrúar Eins kvölds tvímenningur
9. febrúar Aðaltvímenningur BR. 4 kvölda mót.
16. febrúar Fyrirkomulag fer eftir þátttökufjölda
23. febrúar
2. mars
9. mars Eins kvölds bötlertvímenningur
16. mars Aðalsveitakeppni. 5 kvöld monrad
23. mars 16 spila leikir, tveir leikir á kvöldi.
30. mars
6. apríl
13. apríl
20. apríl Eins kvölds bötlertvímenningur
27. apríl Eins kvölds bötlertvímenningur
Besta samanlagða skor telur til verðlauna, ATH þetta eru kvöldin fyrir og eftir úrslit Íslandsmóts í sveitakeppni.
4. maí(eða 11.maí) Einmenningur – topp 24 í bronsstigum vetrarins!Eins og undanfarin ár verður 24 bronsstigahæstu spilurum vetrarins boðið í einmenning þar sem veitt verða vegleg verðlaun og boðið upp á veitingar. Verður án efa hörð keppni að komast í mótið!Góða skemmtun við spilaborðið!Heimasíða BR: www.bridge.is/br
18.1.2010
Úrslit og stađa eftir tvö kvöld af ţremur í Kópavogi
Fimmtudaginn 14.janúar var spilað annað kvöldið í þriggja kvölda tvímenning Bridgefélags Kópavogs.
Guðmundur Pétursson og Sigurjón Þór Tryggvason tóku hörku skor um kvöldið og söxuðu verulega á efsta parið.
18.1.2010
Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2010 í fullum gangi
sjá nánar á heimasíðu reykjavíkurmótsins hér
Bötlerinn er loksins kominn á netið
15.1.2010
Bridgefélag Rangćinga
Síðastliðinn þriðjudag, 12.01, hófst aðalsveitakeppni félagsins. Raðað var í sveitir eftir leynilegri formúlu meistara og spilastjóra félagsins og segist hann hafa það að markmiðið að sveitirnar verði sem jafnastar. Eftir fyrsta kvöld eru tvær sveitir jafnar í fyrsta sæti, það eru sveitir Sigurðar og Ævars. Butlerinn er einnig reiknaður sérstaklega og eru það Torfi og Sigurður sem leiða þann lista. Aðrir koma þétt á eftir og stefnir allt í að næstu þriðjudagskvöld verði spennandi. Hér má sjá nánari úrslit úr.
15.1.2010
Bridgefélag Selfoss: Brynjólfur og Guđmundur efstir í Sigfúsarmótinu
Fimmtudaginn 14. janúar sl. hófst hjá félaginu 4 kvölda aðaltvímenningur félagsins, Sigfúsarmótið, sem nefnt er svo til heiðurs Sigfúsi Þórðarsyni heitnum sem lést sl. vor. Hann gaf verðlaunin í þetta mót fyrir nokkrum árum síðan. Efstir að loknu fyrsta kvöldinu eru Brynjólfur Gestsson og Guðmundur Theodórsson með 63,0 % skor. Í öðru sæti eru Ólafur Steinason og Gunnar Björn Helgason með 58,6% skor og í þriðja sæti eru Guðmundur Þór Gunnarsson og Sigfinnur Snorrason með 56,8% skor. Nánar má finna um úrslitin á ţessari síðu.
12.1.2010
Vetrarstarfiđ loks ađ hefjast
Mánudagskvöldið 18. janúar næstkomandi kl 20:00 í salnum í Miðhvammi er ætlunin að starta
11.1.2010
Miđvikudagsklúbburinn
Spilað verður næst miðvikuaginn 20.janúar
11.1.2010
Bridgefélag Hafnarfjarđar
10.1.2010
Bridgehátíđ Borgarness úrslit
Mjög góð þátttaka var á Bridgehátíð í Borgarnesi nú umh helgina. 30 sveitir á laugardag og 42 pör á í tvímenning á sunnudag. úrslit í tvímmeningi má sjá hér
Sveitakeppni:
1. Team Skarðshlíð 185 stig
2. Sigtryggur 153 stig
3. Rimi 140 stig
4. ÍBR 139 stig
Tvímenningur:
1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 58,7%
2. Birkir Jónson - Bogi Sigurbjörnsson 58,3%
3. Guðni Hallgrímson - Gísli Ólafsson 57,5%
4. Sigurjón Karlsson - Baldur Bjartmarsson 57,5%
9.1.2010
Ađalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarđar
Eitt kvöld er eftir í aðalsveitakeppninni og hörð barátta verður um annað sætið en María Haraldsdóttir er með fyrsta sætið frátekið. Sveit Guðlaugs Sveinssonar skoraði vel mánudaginn 8. febrúar og er nú í 2.sæti en margar sveitir koma stutt á eftir.
Sjá nánar á heimasíðu B. Hafn
Sveit Maríu Haraldsdóttur hefur nú 30 stiga forystu eftir 9 umferðir í aðalsveitakeppninni. Tölvustoð vann góðan sigur í 9. umferð og skaust í 2.sætið.
Seinni hluta kvölds var spilaður tvímenningur þar sem sigurvegarar fengu keppnisgjald á tvímenning Bridgehátíðar. Guðlaugur Sveinsson og Sveinn Rúnar Eiríksson sigruðu á góðum endaspretti.Sjá nánar á heimasíðu B. Hafn
ATH - Ekki verður spilað mánudaginn eftir Bridgehátíð.
Sveit Maríu Haraldsdóttur vann tvo góða sigra á fjórða kvöldi aðalsveitakeppninnar og hefur nú 23 stiga forystu!
Næsta mánudag, 25.janúar verður spilaður 1 leikur og stuttur tvímenningur seinni hluta kvölds þar sem verður keppnisgjald á tvímenning Bridgehátíðar í verðlaun. Ekki verður spilað mánudaginn eftir Bridgehátíð.
Sveit Maríu Haraldsdóttir bætti stöðu sína á toppnum og hefur nú 10 stiga forystu eftir 6 umferðir af 13. Efstu sveitir:
1. 117 María Haraldsdóttir
2. 107 Tölvustoð
3. 107 Guðlaugur Bessason
4. 102 Högni Friðþjófsson
5. 101 Guðlaugur Sveinsson
8.1.2010
Bridgefélag Selfoss: Úrslit í HSK mótinu í tvímenning 2010
HSK mótið í tvímenning árið 2010 var haldið í Tryggvaskála 7. janúar sl. Þátttaka var góð, eða 20 pör. Spilaður var Monrad Barómeter, 7 umferðir með 4 spilum á milli para.
Sigurvegarar eftir frábæran endasprett urðu þeir Guðjón Einarsson og Kristján Már Gunnarsson með 310 stig. Í öðru sæti urðu Garðar Garðarsson og Gunnar Þórðarson með 292 stig, en þeir rétt misstu af sigri eftir að hafa leitt mótið frá byrjun. Í þriðja sæti urðu síðan Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermannsson. Allir kepptu þeir fyrir Ungmennafélag Selfoss.
Lokastöðuna ásamt úrslit úr hverju spili má finna hér á ţessari síðu og spilagjöfin er á ţessari slóð.
Næsta mót er aðaltvímenningur félagsins sem kallast Sigfúsarmótið, til heiðurs Sigfúsi Þórðarsyni sem lést sl. vor. Sigfús gaf verðlaunagripina sem keppt er um fyrir nokkrum árum síðan. Mótið er 4 kvöld og hefst fimmtudaginn 14. janúar.
7.1.2010
Bridgefélag Rangćinga
TOPP16 - Slátrarabikarinn
Var hinn árlegi TOPP16 einmenning var haldin síðastliðinn þriðjudag 05.01.10. Þar er spilað um slátrarabikarinn, farandbikar sem Sláturhús Hellu hf. gaf til mótsins og var nú spilað um hann í þriðja sinn.
Björn Dúason tók forystuna snemma móts, hélt henni til loka og vann að lokum með 61,11% skori. Hann er því nýr einmenningsmeistari félagsins og óskum við honum til hamingju með það! Nánari úrslit hér.
7.1.2010
Reykjavíkurmót í sveitakeppni: KB ráđgjöf á toppnum eftir 4 umferđir
Sveit KB ráðgjöf er á toppnum eftir 4 umferðir af 17 með 79 stig. Næstar eru sveitirnr Grant Thornton og SFG með 72 stig. Næstu leikir fara fram þriðjudaginn 12. janúar.
6.1.2010
Reykjanesmót í tvímenning
laugardaginn 16.janúar og hefst kl. 11:00
Uppl. gefa Garðar í s. 893 2974, Erla s. 659 3013 og Loftur s. 897 0881
6.1.2010
Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2010: VÍS efstir eftir 2 umferđir
Sveit VÍS er efst með 45 stig af 50 mögulegum eftir 2 umferðir af 17 í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni 2010.
Öll úrslit og butler má finna:
5.1.2010
Bridgefélag Kópavogs
Bridgefélag Kópavogs hefur starfsemi ársins 2010 á þriggja kvölda tvímenningi
4.1.2010
Bridgefélag Rangćinga
Hið árlega jólamót Rangæinga fór fram síðastliðinn laugardag (02.01). Þátttaka var með ágætum en 23 pör mættu til leiks. Skemmst er frá því að segja að þeir Gunnar Björn Helgason og Ómar Olgeirsson fóru með sigur af hólmi nokkuð örugglega en þeir voru 14 stigum fyrir ofan næstu menn. Verðlaun að þessu sinni komu frá Kjarval, SS og verðlaun fyrir þriðja sætið gaf Mjólkursamsalan. Nánar um úrslit má sjá hér.
2.1.2010
Bridgehátíđ í Borgarnesi
Hin árlega Bridgehátíð Vesturlands fer fram á Hótel Borgarnesi helgina 9-10 janúar. Sveitakeppni á laugardeginum, 8 umf. átta spila leikir. Hefst kl. 10.00 stundvíslega (lokið ca. 19.30). Vinsamlegast ganga frá skráningu kvöldið áður s. 437-1119 Hótel Bgn. og 862-1794 Þórður. Keppnisgjald: 10.000,- á sveit
Á sunnudaginn er spilaður tvímenningur, monrad-barómeter og hefst kl. 10.30 og stefnt að mótslokum kl. 18.30. Skráning í sömu símanúmerum eða mæta stundvíslega á spilastað. Keppnisgjald: 5.000,- á parið. Undanfarin ár hefur þátttaka heldur minnkað og myndum við vilja sjá betri mætingu af landsbyggðinni og þar með talið af okkar heimaslóðum, Vesturlandi. Mætum nú öll í nýárs-skapinu á fyrsta helgarmót ársins.
Tilboð á Hótel Borgarnesi: Hádegisverður laugardag, Hátíðarkvöldverður laugardag og hádegisverður sunnudag: Kr. 5.500,- Gisting: 2ja manna herb. 9.000,- nóttin Eins manns herb: 5.500,- nóttin
1.1.2010
Reykjavíkurmótiđ í sveitakeppni 2010
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2010 fer fram dagana 5. - 19. janúar. Spilaðir verða 16 spila leikir nema að þátttaka verði of mikil til að leyfa þann fjölda spila. Spilað verður með forgefnum spilum og verður árangur hvers pars metin í fjölsveitaútreikningi.
Keppnisdagar miðað við 18 sveitir (17 umferðir).
5. janúar umf. 1-2
6. janúar umf. 3-4
12. janúar umf. 5-6
13. janúar umf. 7-8
16. janúar umf. 9-12
17. janúar umf. 13-15
19. janúar umf. 16-17
Ef 20 sveitir skrá sig til leiks þá bætist við fimmtudagurinn 7. janúar. Ef 16 sveitir skrá sig til leiks þá dettur út miðvikudagurinn 13. janúar.
Skráningarfrestur er til 16:00 þriðjudaginn 5. janúar.
Dregið verður í töfluröð kl. 16:15 sama dag.
13 efstu sveitirnar úr Reykjavík öðlast rétt til að spila í undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni 2010.
Keppnisgjald er 28000 kr. á sveit.
Tekið er við skráningu á skrifstofu BSÍ, s. 587-9360.
eða í tölvupóst bridge@bridge.is Skráningu verður að fylgja nöfn 4 spilara í sveitinni.
Viđburđadagatal
Flýtileiđir
Hverjir spila í dag
Bf. Hafnarfjarðar, Flatahrauni 3, hefst kl. 19:00
B. Dalvíkur og Ólafsfj. Mímisbrunni, hefst kl.19:30
Bridgedeild Sjálfsbjargar, Hátúni 12, kl. 19:00














