Félög
30.12.2010
Minningarmót Gylfa Baldurssonar
Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H Einarsson unnu mótið á síðasta spili í síðustu setu.
- Aðalsteinn Jörtensen og Bjarni Einarsson = 1431,8
- Kristján Blöndal og Sigurður Vilhjálmsson = 1398,7
- Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson = 1388,0
Sjá nánar á heimasíðu BR
29.12.2010
Minningarmót Gylfa Baldurssonar/jólamót BR 30.desember
Minningarmót Gylfa Baldurssonar/jólamót Bridgefélags Reykjavíkur

Verður haldið fimmtudaginn 30. desember 2010
í Síðumúla 37, Reykjavík
hefst kl. 17:00 stundvíslega.
Spilaður verður Monrad Barometer - 44 spil.
Vegleg verðlaun ásamt flugeldum!
Keppnisgjald 3.500kr. á mann
Vissara að skrá sig tímanlega því þátttaka takmörkuð við 56 pör
Skráning hér hjá BSÍ í síma 587-9360 og á bridge@bridge.is
29.12.2010
Hrólfur Hjaltason og Kristján Blöndal unnu Jólamót Bf. Hafnarfjarðar
Hrólfur Hjaltason og Kristján Blöndal voru efstir af 81 pörum sem tóku þátt í Jólamóti Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir voru með 61.7% skor. Í öðru sæti voru feðgarnir Karl Sigurhjartarson og Snorri Karlsson með 59,1% og í þriðja sæti voru Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni Einarsson með 59,0%.
Veitt voru verðlaun fyrir efstu 5 sætin auk þess sem veitt voru fjöldi aukaverðlauna.
23.12.2010
Áramótatvímenningur 29.des hjá Muninn!
Þann 29. desember n.k. munum við spila eins kvölds tvímenning á suðurnesjum. Það er eini klúbburinn sem mun spila milli jóla og nýárs. Allir velkomnir og það verður heitt á könnunni. Í verðlaun verða flugeldar af ýmsum stærðum og gerðum.
22. desember var haldið seinna kvöldið í jólatvímenningi og sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Gunnlaugur Sævarsson með yfirburðum. Smá hnökrar urðu við upphaf kvölds svo gefa þurfti nokkur spil svo spilagjöfin er ekki alveg rétt í nokkrum spilum enn flest öll eru rétt. Úrslit og spil sérðu hér.
23.12.2010
Bridgefélag Rangæinga
Jólabarómeter (Landsbankabarómeter)
Það er ekki hægt að segja annað um okkur Rangæinga en að gestrisnin sé ávalt höfð í fyrirrúmi. Síðastliðið þriðjudagskvöld varð engin undantekning frá reglunni. Meira að segja meistarar fyrri áratuga (hér er átt við Torfa og Sigga) tóku þátt í að leyfa þeim virtu gestum, sem sýndu félagsmönnum þann heiður að eyða með þeim einni kvöldstund, að vera eins ofarlega og mögulegt var. Án þess þó að beita brögðum auðvitað. Úrslitin urðu þau að Helgi og Billi (gestir) urðu í 1. sæti og Össi og Kalli (gestir) urðu í því 3. Eitthvað sáu meistarar okkar eftir öllu saman og nældu því í 2. sætið þegar líða tók að lokum. Úrslit má sjá hér.
21.12.2010
Bridgefélag Rangæinga
Nú hefur aðal-butlerinn runnið sitt skeið á enda. Merkustu og ánægjulegustu tíðindi þessa árs urðu þau að nýliðarnir okkar nældu allir í bronsstig. Frábær árangur hjá þeim og til hamingju með það strákar! Úrslit í Buttlernum liggja nú fyrir og þrátt fyrir spennandi keppni framan af náðu Torfi og Sigurður að landa nokkuð öruggum sigri og sína enn og aftur að þeir eru í annarri deild en hinir félagar klúbbsins. Í meistarakeppninni er hörð barátta á milli manna og líklegt að meistari verði krýndur þetta spila-ár þar sem Torfi leiðir naumlega með jafn mörg stig og Sigurður. Nánari úrslit má sjá hér.
17.12.2010
Helgi Grétar jólameistari Briddsfélags Selfoss
Helgi Grétar Helgason sigraði jólaeinmenning Briddsfélags Selfoss að þessu sinni. Hlaut hann að launum ljúfengt hangikjötslæri frá Krás Kjötvinnslu. Á eftir honum komu þeir Guðmundur Þór í öðru og Össur í því þriðja.
Þetta var síðasta mót félagsins á þessu ári. Spilamennska hefst aftur FÖSTUDAGINN 7. JANÚAR með HSK móti í tvímenning. Það er silfurstigamót og hefst spilamennska kl 18:00
Gleðileg jól og farsælt komandi briddsár
17.12.2010
Björn og Þórður unnu Jólatvímenning BK
Björn Jónsson og Þórður Jónsson unnu Jólatvímenning Bridgefélags Kópavogs þetta árið. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Spilamennska hefst að nýju fimmtudaginn 6. janúar á nýju ári.
Gleðileg jól og farsælt komandi bridgeár
16.12.2010
Miðvikudagsklúbburinn: Erla og Guðni efst með 64,9%
Erla Sigurjónsdóttir og Guðni Ingvarsson unnu einskvöldstvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum miðvikudaginn 15. desember. Þau fengu 64.9% og voru töluvert á undan 2. sætinu sem féll í skautið á Guðnýu Guðjónsdóttur og Hrafnhildi Skúladóttur. Í 3ja sæti voru síðan þau Halldóra Magnúsdóttir og Þórir Sigursteinsson.
Miðvikudagsklúbburinn og Bridgefélagið Muninn spiluðu sömu spilin og þegar öll úrslit voru sett saman þá voru Erla og Guðni efst með 63,8%. Í 2. sæti voru Garðar Þór Garðarsson og Þorgeir Ver Halldórsson með 59.9%.
Heimasíða Miðvikudagsklúbbsins
Miðvikudaginn 22. desember verður jólakvöld félagsins. Þá verður spilaður einskvölds tvímenningur með fjölda af aukaverðlaunum í tilefni jólanna.
15.12.2010
KEA - jólamótið á Akureyri
KEAHOTEL jólamótið
í tvímenningi verður haldið á Hótel KEA fimmtudaginn 30. des. nk.
Spilamennska hefst kl. 17, spilaður verður Monrad Barómeter.
Keppnisgjald er 2500 kr. á mann og kaffi innifalið.
Mótslok áætluð um kl. 23.
Súpa og brauð kl. 19:30: 1200 kr.
Skráning við komu, mætum því tímanlega.
Vegleg flugeldaverðlaun.
Allir bridgespilarar velkomnir.
Góða skemmtun!
Stjórn B.A
Upplýs. veita: Frímann s. 867 8744 og Stefán s. 898 4475
14.12.2010
Aðalsveitakeppni B. Hafnarfjarðar
Sveit GSE fór á kostum á öðru kvöldi aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar og vann báða sína leiki 25-0! Elstu menn muna ekki hvenær þetta gerðist síðast!
Sveitin hefur nú góða forystu eftir 4 leiki en nóg er eftir af mótinu og margar sveitir sem vilja sigra þá eftir þetta! Næsta mánudag verður spilaður jólatvímenningur og aðalsveitakeppnin heldur svo áfram 10.janúar þar sem sveit Miðvikudagsklúbbsins er í yfirsetu í fyrsta leik.
Minnt er á jólamótið 28. desember!
11.12.2010
Úrslit úr Minningarmótinu um Kristján Örn!
41 par skráði sig til leiks í Minningarmótið um Kristján Örn Kristjánsson. Hann hefði orðið 58 ára i dag ef hann hefði lifað. Frábært mót í alla staði og viljum við þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á suðurnesin í dag.
Sigurvegarar mótsins er þeir Ómar Olgeirsson og Sveinn Rúnar Eiríksson.
10.12.2010
Briddsfélag Selfoss Jólaeinmenningur
Helgi G. Helgason er eftstur í jólaeinmenning Briddsfélags Selfoss þegar fyrra kvöldinu af tveimur er lokið. Staðan á toppnum er nokkuð jöfn. Seinna kvöldið verður næstkomandi fimmtudag sem er jafnfram síðasta spila kvöld þessa árs hjá Briddsfélagi Selfoss.
10.12.2010
Eðvarð og félagar Kópavogsmeistarar
8.12.2010
Guðný og Hrafnhildur unnu sameiginlegt kvöld hjá Miðvikudagsklúbbnum og Muninn!
Guðný Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir unnu sameiginlegt spilakvöld hjá Miðvikudagsklúbbnum og Muninn. Bæði félög spiluðu sömu spil og voru þau síðan samreiknuð í lok spilakvölds.
Guðný og Hrafnhildur voru jafnframt efstar af 30 pörum í Miðvikudagsklúbbnum.
7.12.2010
Hallgrímur Hallgrímsson og Hjálmar S Pálsson burstuðu Cavendish tvímenningin
Hallgrímur Hallgrímsson og Hjálmar S Pálsson burstuðu tvímenninginn með 2285 stig. Aðrir voru með miklu minna
- Hallgrímur Hlllgrímsson - Hjálmar S Pálsson = 2285
- Ragnar Magnússon - Páll Valdimarsson = 1492
- Hlynur Angantýsson - Stefán Jónsson = 1246
Sjá nánar á heimasíðu BR
7.12.2010
Bf.Hafnarfjarðar: 19 sveitir mættu til leiks í Aðalsveitakeppnina!
Hvorki meira né minna en 19 sveitir mættu til leiks í Aðalsveitakeppni BH sem byrjaði mánudaginn 6. desember.
Sveit Jóns Guðmar Jónssonar er efst með 49 stig af 50 mögulegum. Næstar eru sveitir Guðlaugs Bessasonar með 46 stig og sveit Halldórs Svanbergssonar með 42 stig.
Öll úrslit, spil og butler er að finna á úrslitasíðu BH
5.12.2010
Aðalsveitarkeppni Bridgefélag Hafnarfjarðar
Aðalsveitakeppni Bridgefélag Hafnarfjarðar hefst á mánudaginn 6.des
Ef vantar aðstoð við að mynda sveitir þá endilegar talið við Sigurjón 8980970
3.12.2010
Samstarf hjá Miðvikudagsklúbbnum og Muninn
Næstkomandi miðvikudag ætla Miðvikudagsklúbburinn og Bridgefélögin á Suðurnesjum að halda Eins kvölds tvímenning sem aldrei svo vitað sé verið haldinn áður. Félögin ætla að halda sameiginlegt mót þar sem sömu spil verða spiluð á báðum stöðum og úrslit af suðurnesjum send strax og leik líkur til Reykjavíkur og þau sett inn í eitt sameiginleg mót. Þetta hefur aldrei verið gert á Íslandi svo vitað sé svo ég hvet alla bæði í reykjavík og á Suðurnesjum að mæta næsta miðvikudag og taka þátt í þessu skemmtilega kvöldi.
3.12.2010
Hraðsveitakeppni lokið á suðurnesjum
Seinna kvöldið í hraðsveitakeppninni lauk á miðvikudagskvöldið. Sigurvegarar keppninnar eru þeir Bjarki Dagsson, Dagur Ingimundarson, Karl G. Karlsson, Úlfar Kristinsson og Vignir Sigursveinsson með 37 stig.
Enn öll úrslit má sjá hér
3.12.2010
Þröstur og Ríkharður Sigfúsarmeistarar
Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson sigruðu Sigfúsartvímenning Briddsfélags Selfoss með nokkrum yfirburðum eftir að hafa leitt mótið lengst af. Í öðrusæti urður gömlu refirnir Bryjólfur Gestsson og Helgi Hermannsson í þriðjasæti urðu svo Guðmundur Sæmundsson og Höskuldur Gunnarsson.
Næsta mót félagsins er jólaeinmenningur sem er tveggjakvölda einmenningur. Hægt er að skrá sig hér í einmenninginn.














