Félög
17.5.2012
Bridgefélag Selfoss: Magnús Guđmundsson bronsstigakóngur vorsins 2012
Komin eru inn yfirlit yfir brons- og silfurstig sem skoruð voru hjá félaginu vorið 2012. Bronsstigakóngur vorsins 2012 varð Magnús Guðmundsson með 177 bronsstig. Í öðru sæti varð Gísli Hauksson með 161 bronsstig og í þriðja sæti varð Kristján Már Gunnarsson með 143 bronsstig. Bronsstigakóngur vetrarins (samanlagt haust og vor) varð hins vegar Kristján Már Gunnarsson með 290 bronsstig. Í öðru sæti Magnús Guðmundsson með 214 bronsstig og jafnir í þriðja sæti urðu Björn Snorrason og Guðmundur Þór Gunnarsson með 206 bronsstig.
17.5.2012
Jón Steinar Ingólfsson Bronsstigameistari BK 2011-2012
Jón Steinar Ingólfsson er Bronsstigameistari Bridgefélags Kópavogs veturinn 2011-2012 með 305 stig. Öll bronsstig vetrarins má sjá á heimasíðu félagsins
16.5.2012
Oddur og Árni efstir í Sumarbridge
16.5.2012
AĐALFUNDUR BK FÖSTUDAGINN 18 MAÍ
Aðalfundur Bridgefélags Kópavogs fer fram föstudaginn 18 maí kl. 20:00 á heimili Þorsteins Berg að Fjallalind 7. Almenn aðalfundarstörf.
Stjórnin.
14.5.2012
Sumarbridge: Jón Bjarki og Ţórđur fyrstu sigurvegarar!
Ţórður Sigurðsson og Jón Bjarki Stefánsson unnu fyrsta spilakvöld í Sumarbridge 2012. Þeir enduðu með 58,9% og annað sæti féll í hlut Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar með 57,7%. Halldóra Magnúsdóttir og Soffía Daníelsdóttir urðu í 3ja sæti með 56,5%.
Sumarbridge er spilað mánudags og miðvikudagskvöld og byrjar kl. 19:00. Allir spilarar eru velkomnir og er tekið vel á móti öllum, vönum og óvönum.
11.5.2012
Gulli Bessa og Jón Steinar unnu Vortvímenning BK
Síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs var spilað í gærkvöldi og var það seinna kvöldið í Vortvímenningi. Jón Steinar Ingólfsson og Guðlaugur Bessason náðu besta skori kvöldsins með 57,7% skori sem dugði þeim til sigurs samanlagt. Jón Steinar varð jafnframt Bronsstigameistari vetrarins. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Bridgefélag Kóopavogs þakkar öllum þeim er spilað hafa hjá félaginu í vetur vonast til að sjá sem flesta aftur um miðjan september þegar vetrarstarfið hefst að nýju.
8.5.2012
Haraldur Ingason er Einmenningsmeistari BR 2012
Einmenningur BR 2012
Haraldur Ingason rótburstaði einmenninginn
- Haraldur Ingason = 332
- Ólafur Steinason = 288
- Svala K. Pálsdóttir =287
Sjá nánari úrslit á heimasíðu BR
6.5.2012
Árshátíđ Bridgekvenna 2012
Helga Bergmann og Kristín Þórarinsdóttir sigruðu tvímenninginn af öryggi með 67% skor
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu mótsins
3.5.2012
Loftur og Valdimar efstir í Kópavogi
Síðasta keppni vetrarins hófst nú í kvöld og er það tveggja kvölda vortvímenningur. Loftur Þór Pétursson og Valdimar Sveinsson sigruðu þessa fyrri lotu með 58,5% skori en Gísli Tryggvason og Þorsteinn Berg urðu aðrir með 55,4%. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Síðasta kvöld vetrarins verður næsta fimmtudag og er hægt að bæta inn pörum sem hafa áhuga á að ljúka þessum skemmtilega vetri með okkur.
1.5.2012
Hrannar og Hlynur sigruđu Vortvímenning BR
Eftir jafna og spennandi keppni, sigruðu Hrannar og Hlynur Vortvímenning BR
Sjá nánar á heimasíðu BR
29.4.2012
Ađalfundur BH
28.4.2012
Uppfćrđ bronsstigastađa hjá Bridgefélagi Kópavogs
27.4.2012
Bridgefélag Selfoss
Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermansson sigrðu lokatvímenning Briddsfélags Selfoss. Þetta var síðastamót vetrarins. Þakkar stjórn félagsins öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonumst við til að sjá sem flesta í haust aftur.
27.4.2012
Ţórđur og Jörundur unnu 3ja kvölda Monrad-tvímenning
24.4.2012
Vortvímenningur BR 2012
Að loknum 3 kvöldum af 4 er æsispennandi og jöfn keppni á toppnum.
1. Sigurpáll Ingibergsson - Hlynur Garðarsson = 1360,3 stig
2. Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson = 1346,2 stig
3. Rúnar Einarsson - Skúli Skúlason = 1341,3 stig
Lokakvöldið er svo spilað 1 maí.
Sjá nánar á heimasíðu BR
19.4.2012
Jón Steinar og Guđlaugur í forystu í Kópavogi
17.4.2012
BH: Hulda Hjámarsdóttir einnmenningsmeistari BH
Hulda Hjálmarsdóttir varð einmenninsmeistari BH þegar hún vann einmenningsmót BH mánudaginn 16. apríl Hún endaði með 61,4%. Í öðru sæti varð Hafþór Kristjánsson með 59% og í þriðja sæti varð Jón Guðmar Jónsson með 57.9%.
Næstu 2 kvöld verða spilaðir einskvölds monrad barómeter tvímenningar.
13.4.2012
Opna Borgarfjarđarmótiđ
Opna Borgarfjarðarmótið hófst fimmtudaginn 12. apríl. Spilað var á Akranesi og mætti 21 par til leiks. Eftir fyrstu lotu eru það Karl og Bjarni sem leiða mótið með 67,1%. Aðrir eru Guðmundur og Hallgrímur með 62,3% og þriðju Davíð og Þórarinn með 60,9%
Næsta lota verður spiluð í Logalandi mánudaginn 16. apríl og þriðja og síðasta lotan á Hótel Borgarnes mánudaginn 23. apríl.
Öll úrslit má sjá hér.
13.4.2012
Bridgefélag Selfoss: Stađan í Lokatvímenningnum
Síðasta mót vetrarins hjá Bridgefélagi Selfoss hófst fimmtudaginn 12. apríl sl. Mótið er 2 kvölda tvímenningur sem er einfaldlega nefndur Lokatvímenningurinn. Í mótið mættu 13 pör til leiks og er spiluð einföld umferð allir við alla með 4 spilum á milli para. Efstir að loknu fyrra kvöldinu eru Brynjólfur og Helgi með 31,5 stig í plús. Í öðru sæti eru Össur og Yngvi Karl með 25 í plús og í þriðja sæti eru Magnús og Gísli með 21 í plús. Staðan, spilagjöf og öll úrslit eru á ţessari síðu hér. Seinna kvöldið verður spilað fimmtudaginn 26. apríl, en ekkert er spilað hjá félaginu 19. apríl, Sumardaginn fyrsta.
12.4.2012
Baldur og Halldór efstir í Kópavogi
10.4.2012
Vortvímenningur BR 2012
Fyrsta kvöldi af fjórum í vortvímenningi BR er lokið og staðan er þessi...
1 Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson 505,6 stig
2 Halldóra Magnúsdóttir - Soffía Daníelsdóttir 481,6 stig
3 Hrannar Erlingsson - Hlynur Garðarsson 478,4 stig
Sjá nánar á heimasíðu BR
10.4.2012
Ţriggja kvölda tvímenningur ađ hefjast í Kópavogi
Fimmtudaginn 12 apríl hefst þriggja kvölda tvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs. Spilaður verður Monrad-barómeter þar sem prósentuskor paranna hvert kvöld er lagt saman til að fá sigurvegara samanlagt.
Spilað er í Gjábakka, félagsheimili aldraðra, Fannborg 8, kl. 19:00 stundvíslega.
10.4.2012
4 kvölda tvímenningur ađ hefjast í BR í kvöld
Í kvöld hefst 4 kvölda tvímenningur hjá Bridgefélagi Reykjavíkur! Allir að mæta.
Minnt er á að efstu spilarar í bronsstigum vetrarins komast í lokaeinmenninginn sem verður 8. maí.
Staðan í bronsstigunum er hér - vantar nokkra leiki og uppbótarstig fyrir aðalsveitakeppnina
7.4.2012
BH: Ólöf og Kristján Már unnu Páskamót BH 2012
Ólöf Þorsteinsdóttir og Kristján Már Gunnarsson unnu Páskamót BH. Þau enduðu með 61,5%. Í 2. sæti voru Kjartan Ásmundsson og Sigurjón Helgi Björnsson með 59,4%. 3ja sætið hrepptu Kristján Snorrason og Jörundur Þórðarson með 58,9%.
6.4.2012
BK: Bronsstig vor 2012 komin á heimasíđuna
4.4.2012
Miđvikudagsklúbburinn: Guđrún og Halldóra eru Páskaeggjadrottningar!
Guðrún Jóhannesdóttir og Halldóra Magnúsdóttir unnu páskaeggjatvímenning Miðvikudagsklúbbsins, miðvikudaginn 4. apríl. Þær skoruðu 59,6% og voru rúmj prósenti fyrir ofan Guðlaug Sveinsson og Brynjar Jónsson sem enduðu í 2. sæti. 3. sætið kom í hlut Guðmundar Péturssonar og Jón Hákons Jónssonar.
Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson voru dregin út og fengu sitthvort páskaeggið að launum.
Búið er að uppfæra stöðuna í Madeira leik Miðvikudagsklúbbsins og má sjá hana í hlekknum að ofan.
4.4.2012
Páskamót Bridgefélag Hafnarfjarđar Muna skrá sig tímalega
Þá fer stóra stundin að nálgast PÁSKAMÓT BH 2012
Glæsilegt mót sem verður haldið Föstudaginn langa kl.17:00
Sjá nánar hér
Gott væri að fólk mundi skrá sig tímalega.
4.4.2012
Bridgehátíđ Úthlíđar
Ţann 31. mars fór fram Bridgehátíð Úthlíðar með þátttöku 11 para. Sigurður Skagfjörð og Sigurjón Harðarson sigruðu af öryggi.
4.4.2012
Bridgemót Vals
20 pör tóku þátt í bridgemóti Vals 2012. Örn Einarsson og Óskar Ólafsson báru sigur úr býtum.
Sjá lokastöðuna og öll spil í bridgemóti Vals hér
3.4.2012
BH: Halldór Úlfar og Hermann eru Butlerkóngar BH 2012!
Halldór Úlfar Halldórsson og Hermann Friðriksson unnu 2ja kvölda Butler tvímenning BH. Þeir enduðu með 95,2 impa í plús sem var tæpa 26 impa á undan næsta pari. Páll Þórsson og Stefán Stefánsson/Ómar Olgeirsson enduðu í 2. sæti með 69,5 impa í plús. Þrátt fyrir að vera með 79,5 impa í plús síðasta kvöldið þá náðu þeir ekki að næla sér í 1. sætið. 3. sætið féll í hlut Guðbrands Sigurbergssonar og Friðþjófs Einarssonar.
Dregin voru út 3 páskaegg fyrir fyrstu slemmuna sem sem stóð, fyrsta bút doblaðan staðinn og hæstu töluna eftir að hafa doblað andstæðinginn. Þessi aukaverðlaun féllu í skaut Maríu Haraldsdóttur og Sverris Þórissonar (slemman) , Hulda Hjálmarsdóttir og Unnar Atli Guðmundsson (bútur doblaður) og Kristínar Þórarinsdóttir og Óðinn Þórarinsson (+1400).
1.4.2012
Sólveig og Ingibjörg unnu Páskatvímenning Breiđfirđinga
30.3.2012
Akranestvímenningur 2012
Fimmtudaginn 29. mars lauk Akranestvímenningnum 2012. 13 pör tóku þátt og úrslit má sjá hér.
30.3.2012
Briddsfélag Selfoss
Höskuldur Gunnarsson og Eyþór Jónsson sigruðu Íslandsbankabarometer briddsfélag Selfoss og nágrennis. Næst verður spilað fimmtudaginn 12. apríl og hefst þá síðasta mót vetarains sem er tveggja kvölda tvímenningur.
29.3.2012
Sigurđur og Ragnar unnu Páskatvímenning BK
Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson sigruðu Páskatvímenning Bridgefélags Kópavogs sem spilaður var í gærkvöldi og fengu vegleg páskaegg að launum. Öll úrslit má sjá á heimasíðu BK.
28.3.2012
Einstefna hjá Óla Ţór og Arnóri á Suđurnesjum
Fjórða kvöldið í sveitarokki var í kvöld miðvikudag og halda þeir Óli Þór Kjartansson og Arnór Ragnarsson áfram einstefnu sinni og fengu 77 IMPa í kvöld og eru langefstir með 190,3 IMPa. Næstir á eftir þeim eru þeir bræður Árni og Oddur Hannessynir með 121,5 IMPa.
Ný andlit hafa sést í þessu móti og er það mjög gaman að sjá. Það eru tvö kvöld eftir og gaman verður að sjá hvort þeir félagar halda áfram að strauja í átt að sigri.
28.3.2012
Bridgehátíđ í Úthlíđ
Laugardaginn 31. mars verður tvímenningskeppni í bridge í Úthlíð Biskupstungum. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir áhugasama bridsara til að njóta þessarar göfugu íþróttar í fögru umhverfi og skemmtilegum félagsskap.
Fyrirhuguð dagskrá: -
Frá kl. 11:00, Keppendur mæta, koma sér fyrir og fara yfir sagnkerfin. -
Frá kl. 12:00, Boðið upp á súpu og brauð í Réttinni. -
Kl. 14:00, Keppni í tvímenningi hefst (kaffihlé um kl. 16:30) -
Kl. 19:00, Kvöldmatur (lambalærisveisla með desert) og verðlaunaafhending. -
Eftir kvöldmat: etv. rúbertu útsláttarkeppni og annað skemmtilegt. Barinn opinn. -
Sunnudagur kl. 10:00-11:00, Léttur morgunmatur í Réttinni.
Verðlaun og vinningar fyrir efstu sætin. Verð: - 6000 kr. fyrir mótsgjald og mat. - 10.000 kr. fyrir mótsgjald, mat og gistingu. - Fyrir óspilandi maka kostar 7000 kr. gisting og matur (4000 bara matur). Makar sem ekki spila eru velkomnir. Geta slappað af eða farið í göngutúra og borðað með hópnum um kvöldið.
Gist verður í góðum sumarhúsum þar sem eru heitir pottar og öll aðstaða. Sjá www.uthlid.is Ţeir sem vilja geta mætt á föstudegi. Aukanótt kostar 2000 kr.
Mótsstjóri: Sigurpáll Ingibergsson.
Skráning á uthlid@uthlid.is eða í síma 891 6107 (Þorsteinn). Sendið fullt nafn ykkar og makkers. Og hvort þið þurfið gistingu.Ath. stakir spilarar mega líka skrá sig og við pörum þá saman þegar nær dregur.
Sjá nánar auglýsingu
28.3.2012
Páska-Monrad-barómeter hjá BK annađ kvöld
Fimmtudaginn 29 mars verður eins kvölds Páskatvímenningur með viðeigandi "eggjum" í verðlaun. Spilaður verður Monrad-barómeter, sjö umferðir með fjögur spil í umferð.
Spilað er í Gjábakka, félagsheimili aldraðra, Fannborg 8 og byrjað kl. 19:00
Allir velkomnir.
27.3.2012
Lögfrćđistofa Íslands er enn í forystu ţegar 1 kvöld er eftir af Ađalsveitakeppni BR
Aðalsveitakeppni BR 2012 Staðan eftir 10 umferðir af 12.
- Lögfræðistofu Íslands = 193
- Sölufélag Garðyrkjumanna= 188
- Garðs Apótek = 181
- Málning = 172
Sjá nánar á heimasíðu BR
24.3.2012
Ólafur og Gunnar Björn Suđurlandsmeistarar í tvímenning
Laugardaginn 24. mars var Suðurlandsmótið í tvímenning fyrir árið 2012 haldið að Heimalandi undir Eyjafjöllum. Til leiks í mótið mættu 20 pör, og spiluðu 3 spil á milli para, alls 57 spil. Lokaniðurstaðan varð sú að Ólafur Steinason og Gunnar Björn Helgason urðu Suðurlandsmeistarar með 59,3% skor, í öðru sæti urðu Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson með 58,2% og jafnir í 3. - 4. sæti urðu Guðlaugur Sveinsson og Sveinn Rúnar Eiríksson og þeir Halldór Gunnarsson og Kristján Mikkelsen með 54,9% skor. Þeir Guðlaugur og Sveinn unnu innbyrðis viðureignina við Halldór og Kristján og hlutu því 3. verðlaunin. Öll úrslit og spilin má finna á ţessari síðu.
23.3.2012
Briddsfélag Selfoss
Staðan að loknum tveimur kvöldum af þremur í íslandsbankatvímenning Briddsfélags Selfoss.
23.3.2012
Sveit Gulla Bessa sigrađi Hrađsveitakeppni BK
Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi þegar fjórða og síðasta lotan var spiluð. Sveit Guðlaugs Bessasonar fékk þriðja besta skor kvöldsins og hélt efsta sætinu nokkuð öruggglega en þeir sigruðu með 73 stiga mun. Hörð barátta var hinsvegar um annað sætið og stökk sveit Eiðs Júlíussonar úr sjötta sæti í það annað með besta skori kvöldsins, 622 stig sem gerir 57,6%.
Öll úrslit má sjá á heimasíðu BK
Næsta fimmtudag verður spilaður Páskatvímenningur með páskaeggjum í verðlaun. Allir velkomnir.
21.3.2012
Óli Ţór og Arnór ađ stinga af í Sveitarokki!!
Ţeir Arnór Ragnarsson og Óli Þór Kjartansson er að stinga af í sveitarokki sem er í fullum gangi á Suðurnesjum. Þeir félagar eru komnir með 113,3 IMPa. Bræðurnir Árni og Oddur Hannessynir er í öðru sæti með 76 IMPa.
Sigurvegarar kvöldisins eru þau Grethe Iversen og Ísleifur Gíslason með 69 IMPa í kvöld og er það stórglæsilegt hjá þeim.
21.3.2012
Suđurlandsmótiđ í tvímenning - Mótiđ er fullt
Suðurlandsmótið í tvímenning 2012 verður spilað laugardaginn 24. mars 2012. Spilað verður í félagsheimilinu að Heimalandi undir Eyjafjöllum. Spilamennska hefst kl. 10:00 stundvíslega. Skráningu í mótið er lokið (lauk fimmtudagsmorguninn 22. mars) þar sem einungis er hægt að hafa 20 pör í mótinu af framkvæmdarlegum ástæðum. Eitt par er þegar komið á biðlista.
Skráning fór fram á netinu á þessari síðu. Upplýsingar um mótið gefa Garðar í síma 844 5209 (Garðar) eða Óli í síma 898 2880.
20.3.2012
Sveit Lögfrćđistofu Íslands er međ nauma forystu
Sveit Lögfræðistofu Íslands er með nauma forystu í Aðalsveitakeppni BR 2012 með 150 stig. Rétt á eftir koma sveitir SFG og Chile. Sjá nánar á heimasíðu BR
20.3.2012
BH: Hermann og Jón Guđmar unnu Barómeter BH 2012
Hermann Friðriksson og Jón Guðmar Jónsson unnu Barómeter BH vorið 2012. Næst var 3ja manna par sem samanstóð af Garðari Garðarssyni, Svölu Pálsdóttur og Karli G. Karlssyni. Því miður áttu sér stað mannleg mistök þannig að heildarúrslit verða ekki sett inn á netið fyrr en á morgun (þriðjudaginn 20. mars).
Næsta keppni BH er tveggja kvölda Páska Butler tvímenningur.
Hið árlega páskamót BH fer fram föstudaginn langa. Allar upplýsingar er að finna hér
16.3.2012
Briddsfélag Selfoss
Íslandsbankatvímenningur Briddsfélags Selfoss hófst fimmtudaginn 25.mars með þáttöku 16 para. Mótið fer fjörlega af stað. Eftir fyrsta kvöld af þremur er staðan hnífjöfn á toppnum. Jafnir og efstir eru þeir Leif Österby og Guðmundur Sæmundsson, Gunnar Þórðarson og Garðar Garðarsson.
16.3.2012
Sveit Gulla Bessa enn í forystu hjá BK
Ţriðja kvöldið af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgeféags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Sveit Guðlaugs Bessasonar hélt forystusætinu og hefur 50 stigum meira en næsta sveit en alls eru sjö sveitir með skor yfir miðlung sem er 1620. Öll úrslit og spilagjöf má sjá á heimasíðu BK.
15.3.2012
Annađ kvöldiđ af sveitarokki á Suđurnesjum!!
Annað kvöldið af sveitarokki fór fram 14.mars á Suðurnesjum. Efstir í mótinu er þeir Óli Þór Kjartansson og Arnór Ragnarsson með 87,3 IMPa. Yfir síðasta kvöld voru það Guðni Sigurðsson og Kolbrún Guðveigsdóttir sem unnu kvöldið með 29 IMPa.
13.3.2012
Sveit Lögfrćđistofu Íslands er međ nauma forystu ţegar keppnin er hálfnuđ
Að loknum 6 umferðum af 12 í Aðalsveitakeppni BR 2012, er hnífjafnt á toppnum.
Staðan er...
Lögfræðistofa Íslands = 117
Sölufélag Garðyrkjumanna = 116
Chile = 110
Grant Thornton = 106
Sjá nánari úrslit og stöður á heimasíðu BR
9.3.2012
Sveit Gulla Bessa efst í Hrađsveitakeppni BK
7.3.2012
Sveitarokk (Ađalsveitakeppni) á Suđurnesjum!
Aðalsveitakeppni á Suðurnesjum hófst í kvöld enn við spilum sveitarokk sem er impa tvímenningur. Eftir fyrsta kvöld eru þeir Óli Þór Kjartansson og Arnór Ragnarsson efstir. Hægt er að fylgjast með keppninni á heimasíðu okkar
6.3.2012
Karl og Gunnlaugur Tvímenningusmeistarar á suđurnesjum.
Síðustu 4 kvöld hefur farið fram meistaratvímenningur á Suðunesjum. Þeir Karl G. Karlsson og Gunnlaugur Sævarsson áttu feikna gott síðasta kvöld og sigruðu þetta með yfirburðum. Þess má geta að Karl Hermannson spilaði eitt kvöld við Karl G. Úrslit mótsins má sjá á heimasíðu okkar.
Næstkomandi miðvikudag hefst 4 til 5 kvölda sveitarokk sem er okkar aðalsveitakeppni. Hvetjum alla til að koma og vera með í skemmtilegu móti.
2.3.2012
Briddsfélag Selfoss
Aðalsveitakeppni Briddsfélags Selfoss lauk s.l. fimmtudagskvöld með öruggum sigri sveitar Kristjáns Más. Með honum í sveitinni spiluðu Gísli Þórarinsson, Þórður Sigðursson, Gísli Hauksson og Magnús Guðmundsson. Butlerinn sigraði svo Magnús Guðmundsson.
Ekki verður spilað hjá félaginu næstkomandi fimmtudag (8. mars) vegna íslandsmóts. Næsta mót félagsins hefst því fimmtudaginn 15.mars og er þriggja kvölda tvímenningur.
2.3.2012
Hrađsveitakeppni BK hófst í gćrkvöldi
26.2.2012
Öll úrslit í Ađaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs
Björn Jónsson og Þórður Jónsson eru sigurvegarar í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Þeir enduðu með 1261 stig eða slétt 60%skor úr kvöldunum fjórum.
Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á heimasíðu BK.
26.2.2012
Ađaltvímenningu BH ađ hefjast
Aðaltvímenningu BH hefst á morgun (mánudag). Þetta verður 4 kvölda Barometer allir við alla. Sjáumst hress á morgun
24.2.2012
Briddsfélag Selfoss
Staða og butler í aðalsveitakeppninni eru komin á netið.
22.2.2012
Sveit Karls Sigurhjartarsonar er Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni 2012
Reykjavíkurmeistarar í sveitakeppni 2012 er sveit Karls Sigurhjartarsonar. Í sveitinni spiluðu
Karl Sigurhjartarson
Sævar Þorbjörnsson
Sigurbjörn Haraldsson
Anton Haraldsson
Lokastaðan
Karl Sigurhjartarson 212 stig
Málning hf 201 stig
Lögfræðistofa Íslands 195 stig
Sjá nánar á heimasíðu mótsins
20.2.2012
Einskvölda í kvöld hjá Bridgefélagi Hafnarfjarđar
19.2.2012
Ţórđur Jörundsson: NÍRĆĐUR HEIĐURSFÉLAGI
Sá síungi kappi og bridgespilari Þórður Jörundsson er níræður í dag, 19 febrúar. Af því tilefni var hann gerður að heiðursfélaga Bridgefélags Kópavogs síðastliðinn fimmtudag og færðar gjafir og blóm frá félaginu. Þórður hafði spilað í heimahúsum í góðra vina hópi en fór ekki að spila keppnisbridge fyrr en um sjötugt að starfsævinni lokinni. Hann er enn að og eftirfarandi vísu fékk hann í afmælisgjöf frá Lofti Þór Péturssyni:
Ţórður, hann þvælist í geymin
og þykist þá eig'allan heiminn
svo roðnar hans hörund
ţegar rífst hann við Jörund
ţví hann er svo helvíti gleyminn
17.2.2012
Briddsfélag Selfoss
Ţriðja og fjórða umferð aðalsveitakeppni briddfélags selfoss fór fram fimmtudagskvöldið 17.febrúar. Segja má að staðan á toppnum sé bísna jöfn, þannig að það stefnir í spennandi mót.
16.2.2012
Björn og Ţórđur enn efstir í Kópavogi
Ţriðja kvöldið af fjórum í Aðalvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað nú í kvöld. Heimir Þór Tryggvason og Árni Már Björnsson fengu besta skor kvöldsins með 330 stig eða 66%. Öðru sæti náðu Guðlaugur Bessason og Jón Steinar Ingólfsson með 63% sem fleytti þeim upp í annað sætið samanlagt. Þórður Jónsson og Björn Jónsson eru hinsvegar enn í toppsætinu með 60,5% skor samanlagt og verða að teljast líklegir til sigurs þegar fjórða og síðasta kvöldið fer fram næsta fimmtudag.
Öll úrslit og stöðu má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs
16.2.2012
Meistaratvímennigur í fullum gangi á Suđurnesjum!!
Annað kvöldið af fjórum fór fram í gær í Meistaratvímennig okkar Suðurnesjamanna. Eftir 2 kvöld eru þeir Ingimar og Sigurður efstir.
13.2.2012
Fyrirlestur í BR á morgun fellur niđur
Fyrirlestur um líkindafræði sem átti að vera á morgun þriðjudag frestast um hálfan mánuð. Jón Þorvarðarson mun mæta galvaskur þriðjudaginn 28. febrúar, sama kvöld og aðalsveitakeppni BR hefst.
Kveðja, stjórnin
13.2.2012
Monrad Barometer í Hafnarfirđi á mánudaginn
Næstu 2 mánudaga verður tvímenningur með monrad fyrkomulagi. ATH þetta eru sjálfstæð kvöld.
11.2.2012
Reykjavíkurmót í Sveitakeppni 2012
Er haldið í Síðumúla 37, helgina 11 og 12 febrúar, og þriðjudagana 14 og 21 febrúar. Áhorfendur hvattir til að mæta. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu mótsins.
10.2.2012
Ađalsveitakeppni Briddsfélags Selfoss
Aðalsveitakeppni Briddsfélags selfoss hófst síðastliðið fimmtudagskvöld með þátttöku 8 sveita. Keppnin fer fjörlega af stað og búast má við spennandi keppni. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, en að auki fær efsta parið í butlernum einnig verðlaun.
10.2.2012
Björn og Ţórđur enn efstir í Kópavogi
8.2.2012
Eins kvölds á Suđurnesjum !!
Spilað var eins kvöls tvímennigur vegna þess að spilagjöfin fyrir kvöldið var rugluð og var þess vegna spiluð 24 spil.
Sigurvegarar kvöldsins eru þeir Guðjón Óskarsson og Hafsteinn Ögmundsson með 61,6% skor. Í öðru sæti eru þeir Karl Hermannson og Karl G. Karlsson með 61,3 % skor og Bjarki Dagsson og Garðar Þór Garðarsson í þriðja með 56,3% skor.
Næst heldur Meistaratvímenningurinn áfram og vonum við að spilagjöfin stríði okkur ekki aftur.
8.2.2012
Miđvikudagsklúbburinn: Hanna og Inga Lára efstar međ 61,1%
Hanna Friðriksdóttir og Inga Lára Guðmundsdóttir unnu 22 para tvímenning með 61,1% skor. Í 2. sæti voru Sturlaugur Eyjólfsson og Jón Jóhannsson með 57,7%. Halldóra Magnúsdóttir og Soffía Daníelsdóttir voru í 3. sæti með 57,3%.
8.2.2012
BH: Sveitin ? vann Ađalsveitakeppni félagsins međ 20 stig ađ međatali!
Sveitin ? vann aðalsvetiakeppni BH veturinn 2011-2012 með 260 stig í 13 umferðum. Það jafngildir 20 stigum að meðaltali í leik. Með ? spiluðu Garðar Garðarsson, Svala Pálsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Gunnlaugur Sævarsson, Guðjón Svavar Jensen og Pétur Júlíusson. Í 2. sæti var GSE með 244 stig. Fyrir GSE spiluðu Guðbrandur Sigurbergsson, Friðþjófur Einarsson, Högni Friðþjófsson og Einar Sigurðsson. Í 3. sæti var Úlfurinn með 232 stig. Fyrir Úlfinn spiluðu Ísak Örn Sigurðsson, Helgi Sigurðsson, Halldór Úlfar Halldórsson og Hermann Friðriksson.
Öll úrslit er að finna á heimasíðu BH
Næstu 2 kvöld verða spilaðir einskvölds tvímenningar og síðan byrjar Aðaltvímenningur 27. febrúar.
Allir spilarar eru velkomnir!
7.2.2012
Hrólfur og Oddur eru tvímenningsmeistarar BR 2012
Aðaltvímenningi BR 2012 er lokið með sigri þeirra bræðra, Hrólfs og Odds.
Lokastaðan
A riðill
Oddur Hjaltason - Hrólfur Hjaltason = 55,8%
Björgvin Már Kristinsson - Guðmundur Snorrason= 55,7%
Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson = 54,2%
B riðill
Páll Valdimarsson - Sverrir G Kristinsson = 58,4%
Ólafur Þór Jóhannsson - Pétur Sigurðsson= 57,3%
Baldvin Valdimarsson - Einar Jónsson = 56,9%
Sjá nánar á heimasíðu BR
7.2.2012
Bridgefélag Hafnarfjarđar
Ţá er lokið aðsveitakeppni BH með þátttöku 14 sveita
Sveit suðurnesjamanna ? vann öruggan sigur með 260 stigum eða 20 að meðaltali úr leik sem sem verður að teljast frábær árangur. Í 2 sæti og héldu upp heiðri Hafnfirðinga var sveit GSE með 244 stig eða 18,7 að meðaltali úr leik. í 3 sætu urðu Úlfarnir með 223 stig. Frekari úrslit og butler má sjá http://www.bridge.is/felog/reykjanes/bridgefelag-hafnarfjardar/urslit/
Næsta mánudag hefst 2 kvölda tvímenningu og síðan 4 kvölda Barometer (aðaltvímenningur)
sjá dagskrá vetrarins http://www.bridge.is/felog/reykjanes/bridgefelag-hafnarfjardar/dagskra/
Hvet alla að koma og spila í góðu og þægilegu umhverfi :)
3.2.2012
Briddsfélag Selfoss
Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermansson sigruðu 3ja kvölda butler tvímenning sem lauk síðastliðið fimmtudagskvöld. Næsta mót félagsins er er aðalsveitakeppni félagsins. Mun formaðurinn skipa mönnum í sveitir.
2.2.2012
AĐATVÍMENNINGUR BK: Ţórđur og Björn í forystu eftir fyrsta kvöldiđ
1.2.2012
Meistaratvímenningur 2012 á Suđurnesjum hafinn
Í kvöld hófst Meistaratvímenningur á Suðurnesjum á 8 borðum. Spilin voru mjög fjörug og held ég að á einu kvöldi hafi aldrei verið jafn margar slemmur í spilunum.
Efstir eftir fyrsta kvöld eru þeir Ingimar Sumarliðason og Sigurður Davíðsson með 62,5% skor, Guðni Sigurðsson og Kolbrún Guðveigsdóttir fylgja fast á hæla þeirra með 59,9% og í þriðja sæti eru þau Óli Þór Kjartansson og Sigríður Eyjólfsdóttir 58,9%.
Vonandi verða jafn skemmtileg spil næsta miðvikudag. Öll spil og úrslit eru hér
31.1.2012
Guđjón og Vignir leiđa Ađaltvímenning BR 2012
Guðjón og Vignir leiða Aðaltvímenning BR 2012 með naumindum þó
Að loknum 4 kvöldum af 5 í aðaltvímenningi BR er staðan þessi...
A riðill
1.Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson = 57,1%
2.Ísak Örn Sigurðsson - Helgi Sigurðsson = 56,3%
3.Hlynur Garðarsson - Hrannar Erlingsson = 55%
B riðill
1.Stefán Stefánsson - Bergur Reynisson = 58,6%
2.Guðmundur Baldursson - Steinberg Ríkarðsson = 58,2%
3.Baldvin Valdimarsson - Einar Jónsson = 58,0%
Sjá nánar á heimasíðu BR
26.1.2012
Miđvikudagsklúbburinn: Alheimstvímenningurinn
Linkurinn á Alheimstvímenninginn er hérna:
og muna a velja Miðvikudag :-)
öll úrslit og spil er að finna á heimasíðu:
23.1.2012
Fyrirlestur - Michael Groemuller
Annað kvöld (24. janúar) verður BR með fyrirlestur á Hótel Loftleiðum.
Michael Groemuller verður með fyrirlestur um bridge. Hefst kl. 18:00 og lýkur ca. 18:50.
Fyrirlesturinn er ókeypis og eru allir áhugamenn um bridge hvattir til að mæta og vonandi læra eitthvað gagnlegt í leiðinni.
Kveðja, Stjórnin.
23.1.2012
Alheimstvímenningur í BR
BR spilar á Hótel Loftleiðum á morgun í samstarfi við Bridgehátíðina.
Spilaður verður eins kvölds alheimstvímenningur. Sömu spil um allan heim og hægt að nálgast útreikning á netinu eftir að spilamennsku lýkur.
Hvernig væri nú að sanna hverjir eru bestir í heimi, mæta og rúlla þessu upp !!
Góð verðlaun í boði fyrir efsta sætið !
Sigurvegarinn fær frítt í tvímenning Bridgehátíðarinnar sem hefst á fimmtudaginn. Verðmæti kr. 18.000.-
Tilvalin að hefja Bridgehátíðina með léttri æfingu, vinna alheimstvímenninginn og spila svo frítt á Bridgehátíðinni.
Kveðja, Stjórnin
20.1.2012
Briddsfélag Selfoss
Annað kvöldið af þremur í butler tvímenningi Briddsfélags Selfoss var spilað síðastliðið fimmtudagskvöld. Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson leiða mótið þegar eitt kvöld er eftir.
Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudag 26. janúar vegna briddshátíðar.
19.1.2012
Siggi og Raggi Janúarmeistarar hjá Bridgefélagi Kópavogs
Fyrstu keppni ársins hjá Bridgefélagi Kóopavogs lauk í kvöld en það var þriggja kvölda Janúar-monrad tvímenningur. Hörð keppni var um efstu sæti eins og alltaf í Kóopavogi. Heimir Þór Tryggvason og Árni Már Björnsson náðu besta skori kvöldsins með 59,4% skor en Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson höfðu þó sigur að lokum í heildarkeppninni með 174,8 stig sem er samanlögð prósenta úr kvöldunum þremur. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kóopavogs.
18.1.2012
Ađaltvímenningur BR 2012
Hlynur Garðarsson og Hermann Friðriksson eru með forystu í A- riðli með 58,8% og Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason eru með forystu í B riðli með 61,5%
Sjá nánar á heimasíðu BR
15.1.2012
Tryggingamiđstöđin Suđurlandsmeistarar í sveitakeppni
Tryggingarmiðstöðin varð Suðurlandsmeistari 2012 með 115 stig 23 stig að meðaltali í leik. Í öðru sæti varð sveitin Keppnisstjórasveitin og í þriðja sæti sveit MS. Í sigursveitinni spiluðu þeir Kristján Már Gunnarsson, Helgi Grétar Helgason, Björn Snorrason, Guðmundur Þór Gunnarsson, Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson. Keppnisstjórasveitin keppti ekki um réttinn til að spila á Íslandsmótinu í Sveitakeppni, en auk Tryggingamiðstöðvarinnar og MS þá unnu sér rétt til að spila þar: Skýjaborgin, Tölvustoð og Súperlagnir. Finna má allt um mótið á ţessari síðu.
14.1.2012
Briddsfélag Selfoss
Fimmtudaginn 12. janúar hófst þriggja kvölda tvímenningur hjá Briddsfélagi Selfoss.
13.1.2012
Reykjanesmót í Sveitakeppni 2012
Dagsetning: 14.1.2012 - Staðsetning: Flatahraun 3, Hafnarfirði
Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið dagan 14-15.janúar 2012
Spilað verður í Flatahrauni 3, Hafnarfirði
Tímatafla og uppröðun sveita er tilbúið og er hægt að skoða með því að smella hér
13.1.2012
Jörundur og félagar efstir í Janúar-Monrad BK
10.1.2012
Reykjanesmót í sveitakeppni
Dagsetning: 14.1.2012 - Staðsetning: Flatahraun 3, Hafnarfirði
Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið dagan 14-15.janúar 2012
Spilað verður í Flatahrauni 3, Hafnarfirði
Uppl. gefa Erla s. 659-3013, Garðar s. 893-2974
Loftur s.897-0881
Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 12. janúar. Keppnisgjald 20.000 á sveit
10.1.2012
BSA-úrtökumót í sveitakeppni
Úrtökumót BSA í sveitakeppni var haldið á Egilsstöðum 7.-8. janúar 2012. Þátt tóku 4 sveitir og spiluðu tvöfalda umferð um 2 sæti Austurlands á íslandsmótinu í sveitakeppni.
Úrslitin urðu:
1. Sveit Haustaks. 129 stig.
2. Sveit Brimbergs 94 stig.
3. Sveit Landsbankans Fáskrúðsf. 69 stig.
4. Sveit Slökkvitækjaþjónustu Austurlands. 62 stig.
Í sigurveitinni spiluðu Pálmi, Guttormur og Stefán Kristmannssynir, Þorsteinn Bergsson, Ragnar Hermanssson og Magnús Ásgrímsson.
Í sveit Brimbergs, sem einnig komst áfram voru: Kristinn Valdimarsson, Einar Guðmundsson, Unnar Jósepsson og Jón H Guðmundsson.
- Bridgesamband Austurlands.
10.1.2012
Kvöldfrćđsla hjá Bridgefélagi Reykjavíkur 10/1/2012
Bjarni Einarsson verður með fyrirlestur kl 18 í kvöld þar sem hann ræðir um yfirfærslur eftir 1 lauf.
9.1.2012
Borgarnesmeistarar 2012
Borgarnesmeistarar í Sveitakeppni 2012 er Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar. Í sveitinni spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Steinar Jónsson og Sverrir Ármannsson.
Borgarnesmeistarar í Tvímenningi 2012 eru Gunnlaugur Karlsson og Stefán Jónsson.
Allar nánari upplýsingar er að fá á heimasíðu Bridgefélags Borgarfjarðar
6.1.2012
HSK mót úrslit
Ţeir Sigurður Skagfjörð og Torfi Jónsson sigruðu HSK tvímenning sem haldin var í Tryggvaskála fimmtudagskvöldið 5. janúar. Í öðru sæti urðu Garðar Garðarsson og Gunnar Þórðason og í þriðja sæti með jafn mörg stig en töpuðu innibirðis viðureign voru þeir Kristján Már og Helgi Grétar. Alls tóku 18 pör þátt í mótinu og voru spiluð 44 spil.
Næsta mót hjá Briddsfélagi Selfoss er þriggja kvölda butler tvímenningur.
5.1.2012
Sigurđur og Ragnar tóku forystuna í Janúar-Monrad BK
Fyrsta kvöldið af Þremur í Janúar-Monrad Bridgefélags Koopavogs var spilað í gærkvöldi. Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson náðu þá besta skorinu með 279 stig og 62,3% skor. Öll úrslit má sjá á heimasíðu BK.
5.1.2012
Miđvikudagsklúbburinn: Halldóra og Ţórir efst á nýju ári!
Halldóra Magnúsdóttir og Þórir Sigursteinsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 62,9%. Í 2. sæti voru Jón Bjarki Stefánsson og Guðlaugur Sveinsson með 61,2%.
Öll úrslit og hversu oft fólk hefur mætt í Madeiraleik Miðvikudagsklúbbsins er að finna á úrslitasíðu félagsins:
5.1.2012
Bráđskemmtilegur ţriggja kvölda Monrad-barómeter ađ hefjst í Kópavogi
Hið bráðskemmtilega bridgeár 2012 hefst hjá Bridgefélagi Kópvogs með bráðskemmtilegum þriggja kvölda Monrad-barómeter í kvöld. Spilaðar eru 7 umferðir með 4 spilum eða 28 spil á kvöldi.
Hvernig er hægt að sleppa því tækifæri að spila hjá SKEMMTiLEGASTA bridgefélagi landsins?
Spilastaður er Gjábakki, félagsheimili aldraðra, að Fannborg 8 á bak við Landsbankann við Hamraborg.
Spilað er á fimmtudögum kl. 19:00 Skráning á staðnum.
Dasgrá vetrrins má sjá á heimasíðu BK
4.1.2012
Júlíus og Sveinn leiđa Ađaltvímenning BR 2012
Júlíus og Sveinn leiða Aðaltvímenning BR 2012. Staðan er þessi...
- Júlíus Sigurjónsson - Sveinn Rúnar Eiríksson = 655 stig
- Stefán Jónsson - Jón Ingþórsson = 630 stig
- Egill Darri Brynjólfsson - Gunnar B Helgason = 611 stig
Sjá nánar á heimasíðu BR
2.1.2012
Ađaltvímenningur BR hefst 3.janúar - Rvkmótiđ í svk. í febrúar
Aðaltvímenningur Bridgefélags Reykjavíkur hefst annað kvöld, þriðjudaginn 3. janúar.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni fer fram í febrúar að þessu sinni og hefst helgina 10-12. febrúar(nánari dagskrá síðar)
Sjá vordagskrána hér: http://bridge.is/felog/reykjavik/br/dagskra/vor-2012/
Fimmtudagsdeildin verður næst spiluð fimmtudaginn 16. febrúar, sjá
http://bridge.is/felog/reykjavik/br/urslit/reykjavikur-deildin/
2.1.2012
Bridgefélag Hafnarfjarđar EKKI er spilađ í kvöld hjá okkur Sjáumst nćsta mánudag 9.jan
1.1.2012
HSK mótiđ í tvímenning verđur 5. janúar nk.
HSK mótið í tvímenning verður spilað í Tryggvaskála fimmtudaginn 5. janúar. Byrjað verður að spila kl 18:00. Spiluð verða 42-44 spil og verður spilað um silfurstig. Skráning í mótið er á þessari síðu: Skráning í HSK tvímenning














