Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Félög

27.2.2012

Aðalsveitakeppni BR - Utanlandsferð í 1. verðlaun

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur hefst n.k. þriðjudag 28. febrúar.  Skráning er hafin og má senda póst á br@bridge.is eða hringja í Rúnar í síma 820-4595.  Endilega skrá sig tímanlega þannig að hægt sé að skipuleggja mótið (þarf að panta spilagjöf fyrirfram og ýmislegt fleira). 

Spilaðir verða tveir 16 spila leikir á kvöldi, 6 þriðjudagskvöld og alls 12 umferðir.  Monrad raðað fyrir hverja umferð.  Að sjálfsögðu reiknaður butler og running skor má nálgast á hverju kvöldi, fyrir þá sem sitja heima. 

Sigurvegari í aðalsveitakeppni BR fær síðan flugfargjald fyrir 4 spilara (fram og til baka) á sænska Bridgefestivalið 2012 sem verður haldið í Örebro í ágúst ásamt því að keppnisgjaldi í sveitakeppni mótsins.   

Að sjálfsögðu verða líka verðlaun fyrir 2 og 3 sæti, ásamt því að besta parið í butler samanburðinum fær sérstök aukaverðlaun.

Kveðja, Stjórnin. 


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Spilað er á BBO í kvöld.  KL. 19-20-21-22.     Sjá www.bridgebase.com

Skoða alla daga


Olís

Slóð:

Félög

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS