Félög
28.1.2013
Aðaltvímenningur BR
Góðan daginn ágætu bridgespilarar. Þá er löngu og ströngu upphitunarmóti fyrir aðaltvímenning BR lokið. Vonandi skemmtu sér allir vel. Það er stutt stórra högga á milli og annað kvöld hefst aðaltvímenningur BR. Í ár munum við snúa aftur til fyrra horfs og spila einfaldan barómeter, allir við alla. Mjög gott væri ef að spilarar gætu skráð sig fyrirfram á br@bridge.is eða hringja í Rúnar s: 820-4595, Denna 864-2112 eða Guðjón 846-1511. Það er nauðsynlegt til að keppnisstjóri geti skipulagt mótið, byrjað á réttum tíma, hversu mörg spil á að spila á milli para o.s.frv. Hlökkum til að sjá sem flesta. Kveðja, Stjórnin
Viðburðadagatal
Engin skráður viðburður framundan.