Félög
26.3.2014
Rangæingar -- Tottenhamtröllið og Gylfi
Sl. þriðjudag kom að vanda saman fríður hópur fólks til að leika sér í 3. umferð í Samverkstvímenningsins. Gylfi Sigurðsson fór mikinn í liði Tottenham sl. sunnudag en Tottenhamtröllið okkar átti ekki síður stórleik í 3ju umferðinni með okkar Bergi, okkar ástsæla formanni. Þeir félagshyggju- og Framsóknarforkólfarnir komu í mark á einkar glæsilegu skori, 68,5%, talsvert langt á undan næstu mönnum.
Prestakallarnir eru hins vegar efstir í heildina, þegar 3 kvöldum af 5 er lokið. Eru með samanlagt skor upp á 178,6% og eru til alls líklegir í mótinu, enda báðir hörkuspilarar.
Aðrir urðu neðar þetta kvöldið og eru líka neðar í töflunni eftir 3 kvöld.
Úrslit og spil 3ju umferðar má sjá hér og stöðuna í tvímenningnum eftir 3 kvöld hér
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bf. Kópavogs Spilamennska hefst kl. 19:00 ,Spilað er í Gjabakka, Fannborg 8. 1.hæð
Bf. Selfoss kl. 19:30 - Selið, Íþróttavallarsvæði