Félög
19.3.2016
Rangæingar -- Skipstjóravals
Sl. þirðjudag settumst við Rangæingar að spilum á Heimalandi og lékum 2. umferð í Samverkstvímenningnum. Eins og menn muna voru veitt vegleg bjórverðlaun í 1. umferðinni, viku fyrr. Formaðurinn og Tottenhamtrukkurinn, sem fengu verðskuldað vænan skerf af verðlaunafénu það kvöld, virtust rykaðir fyrir vikið og enduðu 3ju neðstir.
Skipstjórinn bauð hins vegar makker sínum, hænsnabóndanum, upp í dans og stigu þeir félagar hægan skipstjóravals í byrjun en hertu svo á og skiptu yfir í fjörugan polka. Að endingu voru þeir félagar komnir í tjúttið og tjúttuðu í mark á 64,3% skori. Næstir á eftir urðu vertinn og fjárhirðirinn með 60,4% skor.
Spilin og úrsltin má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum eftir 2 kvöld hér
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bridgefélag Reykjavíkur. Síðumúla 37. Byrjar kl 19:00
Bf. Akureyrar, Skipagata 14, 4.hæð kl. 19:00
Bridgefélag Rangæinga, Heimalandi, kl. 19:30
Bf. Hrunamanna, Flúðir kl. 19:30