Félög
9.7.2018
Minningarmót á Borgarfirði-Eystri
Kæru briddsarar nær og fjær.Helgina 25.-26. ágúst ætla Borgfirðingar að heiðra minningu fallins félaga sem kvaddi okkur alltof snemma í vetur. Minningamót Skúla Sveinssonar verður haldið í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri. Að mótinu standa Já Sæll ehf (sem Skúli var einn eiganda að) og Briddssamband Austurlands. Spilaður verður tvímenningur og stefnt er að því að hafa peningaverðlaun en nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar. Sveinn Rúnar Eiríksson verður keppnisstjóri. Við munum spila á laugardegi fram að kvöldverði og minningar/sögustund og svo klárum við mótið tímanlega á sunnudegi svo allir komist með flugi heim um kvöldið.
Viðburðadagatal
27.12.2019
30.12.2019
3.1.2020
4.1.2020
17.1.2020
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 18:30.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.