Félög
9.11.2006
BR - Hermann Friðriksson á toppnum í hraðsveitakeppninni
Aðeins 12 sveitir taka þátt í þriggja kvölda hraðsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur.
Skýrist það m.a. af fjölmennri bridgeferð til Madeira í Portúgal. Sjá má nánar um gengi Íslendinga á Madeira á spjallsvæði bridge.is. Spilarar eru hvattir til að taka þátt í umræðum þar, t.d. segja frá skemmtilegum spilum frá síðasta spilakvöldi í bridgeklúbbnum.
Eftir fyrsta kvöld af þremur í hraðsveitakeppninni er sveit Hermanns Friðrikssonar með ágæta forystu.
1. Hermann Friðriksson +78
2. Garðsapótek +41
3. Aron Þorfinnsson +31
4. Harpa Fold Ingólfsdóttir +28
5. VÍS +13
6. Sölufélag Garðyrkjumanna + 4
Í bötlerútreikningi para eru Ómar Freyr Ómarsson og Örlygur Már Örlygsson efstir með 1,43 impa í spili og fast á hæla þeirra Hermann Friðriksson og Hlynur Angantýsson með 1,31 impa í spili.
Efstu pör föstudaginn 3.nóvember:
1. Magnús Sverrisson - Halldór Þorvaldsson +63
2. Baldur Bjartmarsson - Eggert Bergsson +35
3. Erla Sigurjónsdóttir - Guðni Ingvarsson +29
Nánar á bridge.is/br