Bridgefélag Rangæinga
Dagskrá þessa vetrar má sjá hér.
Verðlaunaafhending og lokakvölds-Barómeter. Að vanda er vetrinum lokað hjá Bridgefélagi Rangæinga með því að félagarnir hittast á miðvikudagskvöldi, fyrir sumardaginn fyrsta, og gera sér glaðan dag. Síðasta miðvikudagskvöld varð engin undantekning á. Menn létu hvorki gos né aðrar yfirlýsingar um náttúruhamfarir halda aftur af sér. Kvöldið hófst með verðlaunaafhendingu en hægt er að sjá úrslit úr keppnum vetrar hér á vefsíðu félagsins og verða þau því ekki endurtekin (öll).
En samt er rétt að nefna það að Sigurður Skagfjörð varð klúbbmeistari, með klækjum (vilja menn meina) þar sem hann taldi makker sínum trú um að mæta ekki eitt kvöldið en fékk í staðin einn besta spilara suðurlands. Magnús, Magnús, Bergur og Sigurjón unnu með glæsibrag sveitakeppnina og að lokum unnu Torfi og Sigurður aðaltvímenning, en þar voru Halldór og Kristján ekki ýkja langt frá.
Eftir verðlaunaafhendinguna var spilaður barómeter og að vanda varð töluverð spenna. Margir voru í skemmri eða lengri stund á toppnum. Meistarar síðastliðinna ára náðu efsta sætinu en skömmu seinna fjaraði undan þeim og þeirra hlutverk varð að fylla upp í miðjan listann. Að lokum voru 2 pör jöfn að stigum og má segja að síðasta spil kvöldsins hafi ráðir úrslitum þar um. Þar var leitað svara við spurningunni: ef menn halda á QJ láta þeir J fyrst eða Q?
Torfi fann rétta svarið en fór ekki eftir því og þar með voru 7NT -1 eða 50 kall út. Menn láta Q frá QJ en gosa ef hann er stakur. Torfi og Ævar urðu jafnir Halldóri og Kristjáni í fyrsta sæti. En þar sem innbyrðiskeppni þeirra á milli hallaði á prestinn fékk hann rauðvínið en bræðurnir bjórinn. Sjá nánari úrslit hér.
Takk fyrir og gleðilegt sumar.
Síðasta spilakvöld og úrslit í meistarakeppninni
Síðasta, formlega, spilakvöld vetrar fór fram nú síðastliðinn þriðjudag og að vanta var engin lognmolla yfir því. Svo mikil voru lætin að mönnum virtist sem svo að hækkað hafi í nærliggjandi sprænu um allt að 50 cm. Það er skemmst frá því að segja að orsakir hamagangsins voru þeir nafnar Magnús. Þeir gjörsigruðu barómeterinn og leiddu keppnina alveg frá því að húsið var opnað. Gárungar telja að þakka beri Ólafi Ólafssyni fyrir sýninguna þar sem hann hafði nafnana tvo í einkatímum í marga áratugi og á félagið því honum þakkir skildar fyrir þann eldmóð og þolinmæði sem hann virðist hafa sýnt við kennsluna sem varð til að skila slíkum árangri.
Meistarakeppnina vann Sigurður Skagfjörð með glæsibrag og gjörsigraði makker sinn með 28 stiga mun. Ekki tekur að nefna muninn á næstu menn, þar sem sú tala er varla prenthæf.
Nánari úrslit má sjá hér.
Aðaltvímenningur 5. og síðasta kvöld
Aðaltvímenningur Rangæinga lauk síðasta þriðjudagskvöld og fullyrða elstu menn að aðaltvímenningurinn hafi aldrei unnist á eins litlum mun og nú varð. Það má segja að úrslitin hafi nánast ráðist á einum Impa og því rétt að hafa í huga að betri er einn Impi á blaði en tveir í orði.
Sigurvegararnir náðu 57.85% þegar 4 af 5 bestu kvöldin eru talin saman en það verða sætaskipti á 1 og 2 sæti ef öll kvöld eru talin saman. Þeir sem enduðu 2. sæti náðu 56.75% heildarskori en 57.60% (4 af 5).
Með sigur af hólmi fóru Sigurður og Torfi, þeir áttu jafnt og gott mót og sigurinn verðskuldaðan. Í öðru sæti urðu Halldór og Kristján, en því miður dugði eldmessan ekki að þessu sinni en full trú er á því að þeir komi fílefldir til leiks að ári. Þessum snillingum er óskað til hamingju með góða spilamennsku og frábæran árangur. Nánari úrslit má sjá hér.
Krappabarómeter 30.3.2010
Eins og nafnið gefur til kynna er það fyrirtækið Krappi sem gefur verðlaunin í þetta mót. Veitt eru verðlaun fyrir 1-3 sæti ásamt neðsta og „Tottenham“ sætinu sem gárungarnir vilja meina að sé næsta fyrir ofan miðju. Þeir félagar Sigurður og Villi P. komu sáu og sigruðu næsta örugglega með skor uppá 232 stig og 74,36%. Næstu menn eru það langt á eftir að þeir hverfa í öskufallið. Gaman er að geta þess að nokkuð var um góða gesti þar sem vinir okkar og nágrannar frá Selfossi lögðu land undir fót og komu við í kaffi og spil. Nánari úrslit má sjá hér.
Aðaltvímenningur 4. kvöld
Spilað undir eldum! Þann 23 síðastliðinn var haldið fjórða og næstsíðasta aðaltvímenningskvöld félagsins. Séra Halldór hélt messu en ólíkt Jóni forðum náði hann ekki að kveða eldana niður en í staðinn færði hann söfnuðinn til hlýðni. Þeir félagar Halldór og Kristján náðu góðum sigri þetta kvöld og voru vel að honum komnir. Kraftur messunnar var þó það mikill að þeir náðu einnig efsta sætinu í heildarkeppninni og hafa nú tæpt prósent í forskot á næstu menn. Nánari úrslit má sjá hér.
Spennan er orðin gríðarleg fyrir síðasta kvöldið það var því ákveðið að hvíla aðaltvímenninginn og taka upp léttan páskabarómeter næsta þriðjudag. Þetta er fyrst og fremst gert til þess að róa menn og minnka líkurnar á íþróttameiðslum.
Gestir eru meira en velkomnir en þeir eru beðnir um að senda póst á spilastjóra og „allt muligt man“ : Sigurdur.S.Ingimarsson„HJÁ“landsbankinn.is og láta vita af þátttöku.
Aðaltvímenningur 3. kvöld
Þriðja kvöld í aðaltvímenningi Rangæinga var haldið nú rétt liðinn þriðjudag. Þrettán pör mættu til leiks og því var yfirsetunni leyft að vera með þetta kvöldið. Svavar og Ólafur stóðu sig með prýði og unnu kvöldið með 138 stigum og 57.5% skori. Í heildarkeppninni er spennan enn að aukast og skipta menn á sætum eftir því hvernig reiknað er. Ef versta kvöldið af þremur er tekið út þá hanga Torfi og Siggi á toppnum með 57.69% en ef öll þrjú eru reiknuð eru Torfi og Ævar efstir með 56.79%. (Sem bendir til og sannar enn og aftur að það sé góð samsetning að nafnar spili saman). Þarna rétt á eftir koma Magnúsarnir, Halldór-Kristján o.fl. Það getur því allt gerst ennþá og menn halda fast í stólanna. En nánari úrslit má sjá hér.
Aðaltvímenningur 2. kvöld
Þá er afstaðið annað kvöld í aðaltvímenningi Rangæinga. Eins og áður sagði telja 4 bestu af 5 og því er mótið að verða hálfnað. Töluverð spenna er að myndast þar sem nokkur pör eru nánast jöfn i fyrstu sætunum og leiða forustusauðirnir aðeins með broti úr prósenti. Því er ljóst að lítið má fara úrskeiðis á næstu kvöldum. Nú síðasta kvöld sannaðist eitt enn máltækið „þeir síðustu verða fyrstir“ því maggarnir komu síðastir en enduðu efstir og unnu ágætan sigur í tvímenningnum. En banka-sláturhússtjórinn leiða heildarkeppnina með naumindum. Nánari úrslit má sjá hér.
Aðaltvímenningur 1. kvöld
Eftir velheppnaða aðalsveitakeppni félagsins voru menn ákafir í að hefjast handa við aðaltvímenninginn þar sem 4 bestu kvöld af 5 telja. Að vanda var góð mæting og spilað á 7 borðum.
Af úrslitum fyrsta kvölds er það að frétta að Siggi og Torfi náðu með herkjum og tolla í efsta sæti með 191 stig eða 61.22% skor, gaman að sjá að þeir séu að ná fornum styrk. Allt bendir því til mikillar spennu næstu fjórar vikurnar. En úrslit má sjá hér.
Aðalsveitakeppni lokakvöld
Síðasta kvöldið í aðalsveitakeppni Bridgefélags Rangæinga fór fram núna á þriðjudaginn. Eins og flestir vita var staðan fyrir kvöldið sú að maggarnir leiddu með 10 stiga mun og var um úrslitaleik að ræða þar sem þeir öttu kappi við þá sveit sem næst kom. Til þess að vinna aðalsveitakeppnina máttu þeir ekki tapa meira en 11-19.
Það er skemmst frá því að segja að þeir félagar Magnús, Magnús, Bergur og Sigurjón settu á laggirnar Bridge skóla og var aðgangseyrir hafður 500 krónur. Þarna voru menn settir á skólabekk og kennt hvernig fullorðnir spila Bridge. Það væri vægt til orða tekið ef sagt væri að maggarnir hafi unnið! Um algjöra rasskellingu var að ræða og segjast menn aldrei hafa séð til sólar og velta fyrir sér hvort réttast væri að leggja fyrir sig útsaum, en vonast til þess að kennslan skili einhverju.
Það var frábært að sjá spilamennskuna á steinabræðrum og ekki voru maggarnir síðri! Augljóst er að um yfirburða sveit var að ræða og þeir áttu sigurinn sannarlega skilið. Sigtryggur vann ekki.. hann slátraði 25-3. Til hamingju strákar!
Eins og mönnum grunar kannski þá fór tvímenningurinn þannig að Magnús/Magnús sigruðu með töluverðum yfirburðum. Úrslit má sjá hér.
Aðalsveitakeppni 6. kvöld
Nú styttist óðum í lok aðalsveitakeppni Bridgefélags Rangæinga. Næstsíðasta kvöldið fór fram nú réttliðinn þriðjudag. Þar áttust við þær sveitir sem voru í 1 og 2 sæti. Í fyrstu virtist sem magnúsarnir hefðu loks mætt ofjörlum sínum þegar steinabræður gáfu út 2000 kall (velkomnir í „Klúbb 2000“) er þeir reyndu 6NTx (einhvern helling niður). En augljóst er nú að úlfar reyndust í sauðagæru. Þeir náðu skjótt vopnum sínum og kváðu við „með fótinn annan fer ég á burt“.
Í lokinn varð 2000 kallinn sem dropi í haf. Lokastaða: 21-9, Sigtryggur vann! Nú hafa magnúsa-steinabræður 10 stiga á næstu sveit en þær tvær munu mætast í hreinum úrlistaleik næstkomandi þriðjudag.
Af tvímenning er það helst að þeir nafnar Magnús urðu hæstir eftir meðferð þeirra á meisturum síðustu ára (jafnvel áratuga). Nánari úrslit má sjá hér.
Aðalsveitakeppni 5. kvöld
Síðastliðinn þriðjudag fór fram 5 kvöld í aðalsveitakeppni hjá Bridgefélagi Rangæinga. Magnúsarnir áttu í höggi við enn eina sveitina sem endaði sem mjúk nautasteik eða jafnvel súkkulaðisoufflé í höndunum á þeim. Í stuttu máli „Sigtryggur vann“. En ekki er öll nótt úti enn þar sem þeir nafnar eiga eftir að keppa við sveitirnar sem eru í 2 og 3 sæti og vonast menn til þess að ekki um algjöra einstefnu verði um að ræða. Í meistarakeppninni er gríðarleg spenna að myndast og allt útlit er fyrir hörku keppni um það hvor þeirra verði fyrri til að forfallast því að Sigurður og Torfi hafa nú uþb. 160 stiga forskot á aðra „áhorfendur“. En að öllu skemmtilegri málefnum þá er rétt að geta þess að nýliðarnir okkar (Tómas-Diddi) eru að standa sig frábærlega og settu mörg gamalreynd pör í íþróttinni fyrir aftan sig. En líklega er enn að bætast í hópinn og virðist áhugi þeirra smitast út í yngri kinnslóðir. Nánari úrslit hér.
Aðalsveitakeppni 4. kvöld
Fjórða kvöldið í aðalsveitakeppni Rangæinga leið hjá núna á þriðjudaginn. Kvöldið var með venjubundnum hætti, fundur settur af spilastjóra, Magnúsarnir unnu sinn leik, Torfi og Siggi urðu hæstir í tvímenningnum og sönnuðu með því málsháttinn „ Máttlaus er kóngur í hendi ef ekki er kunnað með hann að fara“. Aðeins er að skilja á milli í sveitakeppninni og hafa Magnúsar nú 5 stiga forskot á næstu sveit. Nánari úrslit má sjá hér.
Aðalsveitakeppni 3. Kvöld
Þriðji í aðalsveitakeppni Rangæinga leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag. Með nokkuð öruggum sigri í sínum leik náðu Magnúsar og félagar að halda fyrsta sætinu í sveitakeppninni en hinar sveitirnar fylgja fast á eftir. Bræðurnir Svavar og Örn spiluðu eins og kóngar og rúlluðu upp tvímenningnum í þetta sinn. Þeir nældu sér í 62 stig en þeir sem næsti koma skriðu í 50. Hér má sjá nánari úrslit.
Aðalsveitakeppni 2. kvöld
Annað kvöldið í aðalsveitakeppni Rangæinga fór fram síðastliðin þriðjudag þ.e. 19.01. Eins of fyrr eru sveitir allar jafnar og aðeins 12 stig sem skilja efstu sveitina frá þeirri neðstu. Því er ljóst að menn verða halda rétt á stokknum. Af tvímenning er það að frétta að þeir bræður Bergur og Sigurjón stóðu framúr hvað það varðar og voru langt fyrir ofan næstu menn. Nánari úrslit má sjá hér.
Aðalsveitakeppni 1. kvöld
Síðastliðinn þriðjudag, 12.01, hófst aðalsveitakeppni félagsins. Raðað var í sveitir eftir leynilegri formúlu meistara og spilastjóra félagsins og segist hann hafa það að markmiðið að sveitirnar verði sem jafnastar. Eftir fyrsta kvöld eru tvær sveitir jafnar í fyrsta sæti, það eru sveitir Sigurðar og Ævars. Butlerinn er einnig reiknaður sérstaklega og eru það Torfi og Sigurður sem leiða þann lista. Aðrir koma þétt á eftir og stefnir allt í að næstu þriðjudagskvöld verði spennandi Hér má sjá nánari úrslit úr.
TOPP16 - Slátrarabikarinn -05.01.10
Var hinn árlegi TOPP16 einmenning haldin síðastliðinn þriðjudag 05.01.10. Þar er spilað um slátrarabikarinn, farandbikar sem Sláturhús Hellu hf. gaf til mótsins og var nú spilað um hann í þriðja sinn.
Björn Dúason tók forystuna snemma móts, hélt henni til loka og vann að lokum með 61,11% skori. Hann er því nýr einmenningsmeistari félagsins og óskum við honum til hamingju með það! Nánari úrslit hér.
Landsbánkabarómeter - 22.12.09
Landsbankabarómeterinn fór fram síðastliðinn þriðjudag 22.12. Fengu Rangæingar góða gesti í heimssókn því að nokkur pör frá Selfossi lögðu á fáka sína og brunuðu austur fyrir á. Sannast það á úrslitum að Rangæingar eru löngu hættir að höggva menn í herðar niður því að gestirnir skipa 5 af 7 efstu sætunum. En Þeir Sigurður og Torfi sáu enga ástæðu til þess að gefa þeim eftir fyrsta sætið og sitja því eins og límdir væru. Nánari úrslit má sjá hér.
Butler 5. kvöld í "BUTLER-5 kvöld - 4 bestu" 15.12.09
Síðasta kvöld í butler mótaröð Rangæinga fór fram síðastliðið þriðjudagskvöld. Augljóst þótti frá upphafi að reynsluboltanir og meistarar síðustu ára ætluð lítið að gefa eftir og engin hætta væri á íþróttameiðslum í þeirra herbúðum. Lokastaða kvöldsins var sú að Torfi og Sigurður unnu með það stórum mun að elstu menn þekktu varla töluna. Þeir uppskáru 91 stig og 3.25 impa í spili. Þegar úrslit bestu kvölda eru tekin saman þá er eru það eftirtaldir sem skipa 3 efstu sætin. Torfi-Sigurður 1.sæti, Bjössi-Eiríkur 2.sæti og Örn-Svavar í 3.sæti. Nánari úrslit frá síðasta kvöldi eru hér.
Butler 4. kvöld í "BUTLER-5 kvöld - 4 bestu" 08.12.09
Þann 8.12 síðastliðinn var haldið fjórða og næstsíðasta Butler-spilakvöldið í yfirstandandi móti. Spennan er orðin gífurleg og hægt væri að segja að allt gæti gerst. Siggi og Torfi leiða með örlitlum mun og mega ekki misstíga sig á síðast kvöldi. En skemmst er frá því að segja að bræðurnir Ævar og Torfi ákváðu að blanda geði við hinn endann á úrslitablaðinu og unnu síðasta kvöld með töluverðum yfirburðum og uppskáru því 50 stig og 1.9 impa á spil. Nánari úrslit má sjá hér.
Heimsókn til Hrunamanna og Butler 3. kvöld í "BUTLER-5 kvöld - 4 bestu" 01.12.09
Þann 24.11. heimssóttu Rangæingar Hrunamenn. Spilað var í hótelinu á Flúðum og tóku sveitungar vel á móti gestum sínum. Spilað var sveitakeppni á milli 6 sveita og fóru leikar þannig að Rangæingar náðu fram sigri á öllum borðum.
Núna síðastliðin þriðjudag var svo haldið áfram með 5 kvölda Butler mót Rangæinga. Nú eru þremur kvöldum lokið og gömlu brýnin Torfi og Siggi komnir með forustu. Þeir náðu glæsilegum árangri núna síðast. Hér má sjá frekari úrslit.
Butler 2. kvöld í "BUTLER-5 kvöld - 4 bestu" 17.11.09
Annað kvöld af fimm í Butler fór fram hjá Rangæingum núna 17.11. Mjög góð þátttaka var og spilað á átta borðum. Í þetta sinn voru það félagarnir Bjössi og Eiríkur sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins með þó nokkrum yfirburðum 84 stig og 2,8 imp meðaltal pr. spil. En sigurvegarar síðasta kvölds halda enn toppsætinu í heildar keppninni en mjótt er á munum og væntanlega farið að hitna á toppnum. Nánari úrslit má sjá hér.
Samvinnumótið - 06.11.09 og 1 kvöld í "BUTLER-5 kvöld - 4 bestu"
Föstudaginn 6. Nóvember var haldið Samvinnumótið þar sem Rangæingar og Selfyssingar öttu kappi. Að þessu sinni voru það hlutskipti Selfyssinga að leggja land undir fót og heimsækja nágranna sína í austri. Skemmst er frá því að segja að Gunnar og Sigfinnur báur sigur úr bítum með skor uppá 63,66% en nánari úrslit er hægt að sjá hér. Síðasltiðinn þriðjudag þ.e. 10.11.09 fór fram fyrsta kvöld í 5 kvölda Butler þar sem 4 bestu skor telja. Bræðurnir Örn og Svavar komu, sáu og sigruðu og augljóst er að Svavar hefur verið í góðu yfirlæti og hvíld í Svíþjóð og hefur engu gleymt. Hægt er að sjá nánar hér.
Haustbarómeterinn – 04.11.09
Síðasta þriðjudag fór fram haustbarómeter hjá Rangæingum. Hart var barist og mjótt á munum. En að lokum stóðu Guðmundur og Óskar uppi sem sigurvegarar með prósentuskor uppá 57,69%, með sama skor en lakari árangur í innbyrðis „orrustu“ urðu Torfi og Ævar. Hægt er að skoða úrslitin nánar hér.
Upphitunartvímenningur – 20.10.09
Þriðji í upphitunartvímenning hjá Rangæingum var iðkaður nú rétt liðinn þriðjudag. Það má segja að titilvörn meistara síðasta vetrar hafi hafist þar með látum. Sigurður og Torfi voru í miklu stuði og fóru heim með 207 stig eða 66,35 í prósentuskor. Glæsilegur árangur það, hér má sjá öll úrslit.
Upphitunartvímenningur – 13.10.09
Annar í upphitunartvímenningi hjá Rangæingum fór fram síðastliðinn þriðjudag. Það voru þeir Kalli og Bjössi sem báru sigur úr bítum með 142 eða 59,17 í prósentuskor. 13 pör tóku þátt og stefnir allt í að enn bætist í hóp spilara hjá félaginu. Reyndir spilarar taka aftur upp sagnablöðin og spilarar framtíðarinnar að koma inn. . Nánar um úrslitin hér.
Upphitunartvímenningur – 08.10.09
Tvenn pör urðu jöfn í 1-2 sæti á fyrsta spilakvöldi Rangæinga, sem fór fram síðasta þriðjudag 06.10. Það voru þeir Guðmundur Benediktsson-Óskar Pálsson og Örn Hauksson- Árni Þorgilsson með prósentuskor uppá 59,55%. Sjá frekari úrslit hér.
Næstkomandi þriðjudag þ.e. 6.október verða spilin dregin fram að nýju hjá Rangæingum. Kvöldið hefst að venju með snörpum aðalfundi og að honum loknum er gert ráð fyrir að setjast niður í allar áttir og spila fyrsta tvímenning þessa vetrar.