Fréttir
28.11.2008
Íslandsmót í parasveitakeppni
Íslandsmótið í parasveitakeppni hefst á morgun kl. 11:00
14 sveitir eru skráðartil leiks og verður fyrirkomulagið 8 spila leikir allir við alla
Góða skemmtun !
19.11.2008
ÍSLANDSMÓT Í PARASVEITAKEPPNI 2008
ÍSLANDSMÓT Í PARASVEITAKEPPNI 2008
Íslandsmótið í parasveitakeppni fer fram í Síðumúla 37 Reykjavík helgina 29.og 30. nóvember n.k.. Byrjað verður að spila kl. 11:00 báða dagana. Keppnisgjald er 12.000 á sveit. Hægt að skrá sig í keppnina hér www.bridge.is, á skrifstofu BSÍ í síma 587-9360, eða í tölvupósti bridge@bridge.is Núverandi meistarar eru; Hrund Einarsdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, Dröfn Guðmundsdóttir og Ásgeir Ásbjörnsson
Létt og skemmtileg stemning.
17.11.2008
Icelandexpress Deildakeppnin
Sveit Eyktar eru deildameistarar 1.deildar 2008. Þeir voru með 273 stig, næsta sveit á eftir endaði
með 235 stig og var það sveit Grant Thornton og í þriðja sæti varð sveit Guðmundar Sv. Hermannssonar með 218 stig.
Í svet Eyktar spiluðu þeir - Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson, Bjarni H. Einarsson og Steinar Jónsson. Til hamingju strákar.
Deildameistarar 2.deildar varð sveit Landmannahellis með 265 stig í þeirri sveit spiluðu þeir- Kristinn Þórisson, Daníel Már Sigurðsson, Björgvin Már Kristinsson, Aron Þorfinnsson, Guðmundur Snorrason og Ómar F. Ómarsson.
Í öðru sæti varð sveit Gamla Landmannahellis með 239 stig og í þriðja sæti varð sveit Sparisjóðs Keflavíkur með 229 stig- Til hamingju allir
Öll úrslit og böttler
14.11.2008
Icelandexpress Deildakeppnin
Á morgun hefst seinni umferði Icelandexpress Deildakeppninnar.
Í 1.deild leiðir sveit Grant Thornton með 135 stig í öðru sæti er sveit Eyktar með 127 stig og þriðja
sæti er sveit SFG með 105 stig.
Í 2.deild er sveit Sparisj. Keflavíkur með 130 stig, í öðru sæti er sveit Nýja Landmannahellis með 119
stig og í þriðja er sveit Landmannahellis með 118 stig og sveit Gamla Landmannahellis er í fjórða með 117 stig.
Búið er að draga í töfluröð í 1.deild sjá hér
9.11.2008
Madeira 2008: Islenskur sigur i sveitakeppninni!
Islensk sveit undir nafninu The Red Devils vann sveitakeppnina i Madeira 2008.
Þeir voru i 2. sæti fyrir siðasta leik og spiluðu vid efstu sveitina. Fyrirkomulagið var Monrad sveitakeppni og Dansku monrad i sidustu umferd.
Leikurinn var i beinni a BBO og gerdu Þrostur Ingimarsson, Hermann Larusson, Omar Olgeirsson og Julius Sigurjonsson sér litid fyrir og unnu leikinn 40-6, eda 25-4 i vinningsstigum. Þeir þurftu að vinna 23-7 til að vinna motið !
Til hamingju Þröstur, Hermann, Omar og Julius!
7.11.2008
Champions Cup-Amsterdam
Eyktar menn unnu Rússa í gærkvöldi 18-12,
Núna stendur yfir leikur milli þeirra og Frakka -
Eyktarmenn unnu Frakka 21-9
Næsti leikur er við vini okkar Norðmenn kl. 13:15,
Jafntefli við Norðmenn 14-16, kl. 16:25 spilum við við Hollendinga
Fylgist með á BBO eða hér fyrir neðan
Hér má sjá allt um MEISTARADEILDINA
7.11.2008
Madeira
Runólfur Jónsson og Gunnlaugur Sævarsson sigruðu 96 para tvímenninginn örugglega, þeir enduðu með 61,77% skor-Til hamingju strákar. Í kvöld hefst síðan sveitakeppnin.
Sveitakeppnin verður sýnd á BBO og hefst kl. 21:30 í kvöld og á morgun kl. 15:30
Heimasida motsins med urslitum
6.11.2008
Champions Cup-Amsterdam
Strákarnir okkur töpuðu fyrir Ítölum í fyrsta leik í dag 21-9, næsti leikur við Rússa hefst kl. 19:30
Fylgist með á BBO-einnig er hægt að sjá running skor hér fyrir neðan
Hér má sjá allt um MEISTARADEILDINA
6.11.2008
The European Champions’ Cup 6-9.nóv
Í morgun héldu Íslandmeistarar í sveitakeppni frá 2007, þ.e sveit Eytktar til Amsterdam til að spila í Meistaradeild Evrópu. 12 sveitir taka þátt og hefst spilamennska í dag kl. 15:00. Fyrsti leikur Eyktar verður á móti Ítölum.
Þeir sem spila í sveit Eyktar eru: Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni H. Einarsson, Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson og Þorlákur Jónsson.
Hægt verður að fylgjast með þessu móti á BBO og hér fyrir neðan.
Hér má sjá allt um MEISTARADEILDINA
6.11.2008
Madeira
Runólfur Jónsson og Gunnlaugur Sævarsson leiða ennþá tvímenningin á Madeira eftir 2 lotu í gær með 65,21% skor
3ja og síðasta lotan hefst kl. 16:30
5.11.2008
Madeira
Runólfur Jónsson og Gunnlaugur Sævarsson er efstir með 72,22% skor eftir 1.lotu á Madeira í 96 para tvímenning. Næsta lota hefst kl.16:30 í dag, 5.nóv. Fylgist með okkar fólki hér fyrir neðan.
Heimasida motsins med urslitum
4.11.2008
Madeira
Hópur Íslenskra Bridgespilara hélt til Portugólsku eyjunnar Madeira í gær eins og svo oft áður.
Hægt verður að fylgjast með okkar fólki hér fyrir neðan.
Heimasida motsins med urslitum
1.11.2008
Íslandsmót eldri spilara 50 ára +
Arnar Geir Hinriksson og Björn Theodórsson eru Íslandsmeistarar eldri spilara í tvímenning 2008. Þeir skutust á toppinn í 3ju síðustu umferð og litu ekki um bak síðan.
Til hamingju Arnar Geir og Björn!
Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson enduðu í 2. sæti jafnir Friðþjófi Einarssyni og Guðbrandi Sigurbergssyni. Guðlaugur og Magnús unnu innbyrðis viðureign og teljast í 2. sæti.
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Spilað er á BBO í kvöld. kl 19-20-21-22. Sjá www.bridgebase.com














