Fréttir
29.9.2008
Bridgefélag Siglufjarðar 70 ára
Bridgefélag Siglufjarðar heldur veglegt afmælismót á Siglufirði dagana 1. og 2. nóvember n.k.
Hér má sjá dagskrá mótsins.
24.9.2008
Icelandexpressdeildin
Hin vinsæla Deildakeppni, Icelandexpressdeidlin verður í ár spiluð 25. og 26.október og 15.og 16.nóvember eins og á síðasta ári verður spilað í tveim deildum. Keppnisgjald verður 28.000 krónur á sveit, Spilað verður frá klukkan 11:00 á laugardag og frá klukkan 10:00 á sunnudag. Spilarar eru hvattir til þess að vera með í þessari skemmtilegu keppni og vonast BSÍ eftir góðri þátttöku. Núverandi sigurvegari fyrstu deildar er sveit Karls Sigurhjartar. Skráning í keppnina er á vef BSÍ, bridge.is eða í síma BSÍ 587 9360.
23.9.2008
Hausttvímmenningur í Kópavogi
3ja kvölda hausttvímenningur Bridgfélags Kópavogs hefst á fimmtudaginn; 25.september.
15.9.2008
ÚRSLITALEIKUR BIKARKEPPNI BSÍ
Sveit Eyktar vann glæsilegan sigur 198 - 161 á sveit Breka í 64 spila bikarúrslitaleik sem háður var 14. september.

Spilarar í sveit Eyktar voru Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson og Þorlákur Jónsson. Þorsteinn Berg afhenti verðlaun í mótslok
Við óskum þessum herrum innilega til hamingju með sigurinn
Úrslitaleikurinn á Bridgebase:
Undanúrslit Eykt - Grant Thorton á Bridgebase
Athugið að ef ekki gengur að opna beint þá þarf að hægrismella og "save as"...svo kveikja á Bridgebase og "Open movie from your computer" en ekki logga sig inn.
11.9.2008
Bikarkeppnin um helgina- Undanúrslit / Úrslit
Undanúrlist í Bikarkeppni sumarsins verður laugardaginn 13.september í Síðumúlanum og hefst kl. 11:00
Þeir sem í undanúrslitunum eru:
Staðan 1 2 3 4
Breki jarðverk - VÍS 27-19 71-34 122-47 (gefið)
Grant Thornton - Eykt 18-37 40-77 66-109 115-125
Úrslitaleikur kl. 10 sunnudaginn 14.sept. Áhorfendur velkomnir, leikurinn sýndur á BBO
Staðan 1 2 3 4
Eykt - Breki jarðverk 55-26 106-48 180-105 198-161
Til hamingju Eyktarmenn!
Einnig hvetjum við ághugafólk að koma í Síðumúlann og fylgjast með.
Tímatafla:
1. leikur 11:00 - 12:42
2. leikur 12:52 - 14:35
matarhlé ca. 30 mín
3. leikur 15:15 - 16:57
4. leikur 17:07 - 18:49
Úrslitin verða síðan sunnudaginn 14.september og hefjast kl. 10:00
En hverjir etja kappi saman í úrslitum er ekki gott að segja
Tímatafla:
Úrslitaleikurinn verður einnig sendur út á BBO
6.9.2008
Lokamót Sumarbridge
Björn Friðriksson og Sverrir Þórisson unnu lokamótiið í Sumarbridge með 90 stig
2. Aðalsteinn Jörgensen-Sverrir Ármannsson með 77 stig
3. Hermann Friðriksson-Jón Ingþórsson með 60 stig
4. Guðný Guðjónsdóttir-Soffía Daníelsdóttir með 36 stig
5. Björn Eysteinsson-Jón Baldursson með 32 stig
6. Hjálmar S. Pálsson-Jörundur Þórðarson með 28 stig
3.9.2008
Búið að draga í undanúrslitum Bikarkeppni 2008
Það var dregið í undanúrslitum Bikarkeppni 2008 á spilakvöldi Sumarbridge.
Sveitirnar sem drógust saman eru:
Breki jarðverk - VÍS
Grant Thornton - Eykt
Undanúrslitin fara fram laugardaginn 13. september og verða spiluð 48 spil. Hefst kl. 11:00
Úrslit fara fram sunnudaginn 14. september og verða spiluð 64 spil. Spilamennska hefst kl. 10:00
1.9.2008
Silfurstigamót-Sumarbridge
Laugardaginn 6.september verður lokamót í Sumarbridge 2008 - Silfurstigamót
Spilaður verður Buttler-tvímenningur og hefst spilamennska kl: 11:00
1. verðl. 30.000
2. verðl. 20.000
3. verðl. 10.000
Spilagjaldið er 2.000 á mann
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bf. Hafnarfjarðar, Flatahrauni 3, hefst kl. 19:00
B. Dalvíkur og Ólafsfj. Mímisbrunni, hefst kl.19:30
Bridgedeild Sjálfsbjargar, Hátúni 12, kl. 19:00














