Fréttir
25.5.2009
Bikar 2009
Bikarkeppni Bridgesambandsins fer að venju fram í sumar og búið er að draga í fyrstu 2 umferðirnar. Alls skráðu 33 sveitir sig til leiks. Tveir leikir fara fram í 1. umferð.
Frestur til að ljúka umferðum er þannig
1. umferð 7. júní
2. umferð 28. júní
3. umferð 9. ágúst
4. umferð 6. september
Undanúrslit og úrslit 12. og 13. september
Bikarkeppni heimasíða
23.5.2009
Kjördæmamót 2009 á Eskifirði
Reykjavík vann öruggan sigur á Kjördæmamótinu 2009. Liðið var með næstum 100 stiga forystu fyrir síðustu umferð en þá tóku Vestfirðingar verðandi meistara í bakaríið!!
Til hamingju Reykjavík!!
15.5.2009
Bikarkeppnin sumarið 2009
Skráning í Bikarkeppni sumarsins 2009 er hafin og eru keppendur beðnir um að skrá sig fyrir 20.maí
Dregið verður að venju á Kjördæmamótinu 24.maí n.k. á Eskifirði
Hægt er að skrá sig á bridge.is eða í síma 5879360
Hér má sjá skráningarlista
15.5.2009
Kjördæmamót 2009
Kjördæmamót í Brigde.
Haldið á Eskifirði dagana 23-24 maí 2009
Boðið er uppá gistingu á Eskifirði og Reyðarfirði.
Spilað verður í Grunnskóla Eskifjarðar og er Félagsheimilið Valhöll við hliðina
Hádegismatur verður í Valhöll Eskifirði á laugardag og sunnudag
Hátíðarkvöldverður á sama stað á Laugardagskvöld.
Gisting er í eins og tveggja manna herbergjum með eða án baðs með morgunverði og í 4-6 manna smáhýsum og íbúðum með morgunverði .
Þar sem allt gistirými staðanna er nýtt í þennan viðburð er nauðsynlegt að selja einungis báðar næturnar og er eitt verð kr 12000 fyrir gistinguna og eru þá innifaldar rútuferðir fyrir þá sem gista á Reyðarfirði.
Maturinn í Valhöll kostar 1300 kr hádegismatur og 4500 kr Kvöldverður á Laugardeginum.
Boðið er upp á pakkaverð sem er kr 18000 og er þá innifalið skoðunarferð á föstudagskvöldið í Randullfssjóhús á Eskifirði ásamt hákarli og snafsi auk sundmiða í glæsilega útisundlaug á Eskifirði.
Rúsínan í pylsuendanum er svo ball með Upplyftingu á laugardagskvöldið í Valhöll þar sem matargestir fá miðann á kr 1500.
Nauðsynleg er að fyrirliðar sveitanna láti vita hverslags pakka þeir hyggjast taka í síðasta lagi 10 maí. á netfangið kaffihusid@tandraberg.is .
Einnig er nauðsynlegt að vita komutíma á Egilsstaði svo hægt sé að tryggja ferðir niður á Eskifjörð og Reyðarfjörð og til baka á Sunnudeginum. Rútuferðir kosta kr 1000.
Einnig þarf að fá nafnalista frá hverri sveit þar sem merkt er hverjir gætu deilt herbergjum. Það er nauðsynlegt svo innritanir gangi vandræðalaust fyrir sig. Upplýsingar um gististaði og hverjir verða hvar verða svo sendar til viðkomandi liðstjóra.
Nánari upplýsingar veitir Einar Birgir í síma 8921208.
Kjördæmin eru beðin um að senda skráningarlista til BSÍ fyrir fimmtudaginn 15.maí n.k.
Tímatafla
laugardagur sunnudagur
upphaf lok upphaf lok
Setning 10:15 6. umferð 10:00 11:30
1. umferð 10:30 12.00 7. umferð 11:40 13:10
matur 12:00 12:40 matur 13:10 13:50
2. umferð 12:40 14:10 8. umferð 13:50 15:20
3. umferð 14:20 15:50 9.umferð 15:30 17:10
4. umferð 16:00 17:30
5. umferð 17:40 19:10
Kvöldverður o.fl.
14.5.2009
Sumarbridge
Sumarbridge hefst mánudaginn 18.maí n.k.
Spilað verður í á mánudögum og miðvikudögum í sumar og verða hinir "knáu og smáu" keppnistjórar okkur til halds og trausts í allt sumar - Sveinn og Björgvin -
Spilamennska hefst báða dagana kl. 19:00
Sjáumst í sumarskapi
7.5.2009
Íslandsmót í paratvímenning
Brynja Dýrborgardóttir og Björgvin Már Kristinsson eru Íslandsmeistarar í Paratvímenning 2009. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill hjá báðum og voru þau vel að honum komin. Þau háðu mikla keppni við Hrund Einarsdóttir og Hrólf Hjaltason sem gáfu eftir á lokasprettinum og enduðu í 2. sæti , 0,4 stigum á undan Vigdísi Sigurjónsdóttur og Ólafi Lárussyni.
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Spilað er á BBO í kvöld. kl 19-20-21-22. Sjá www.bridgebase.com














