Fréttir
31.1.2010
Sveit Iceland Express sigurvegarar
Sænsku meðlimirnir sem spiluðu í boði Iceland Express sigruðu sveitakeppnina.
Peter Berthau, Arvid Wikner, P.G. Eliasson og Thomas Magnusson eru Bridghátíðar meistarar.
Butlermeistarar urðu Selfyssingarnir Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrison með 2,15 að meðaltali í spili
en þeir spiluðu með sveit Tryggingamiðstöðvarinnar.
Matthías Imsland forstjóri Iceland Express afhenti verðulaunin í mótslok
Lokastaðan
1. Iceland Express 191
2. Karl Sigurhjartar 190
3. Grant Thornton 183
4. H F Verðbréf 182
Hauge, Noregur 182
6. Símon Símonarson 181
7. Sweden /USA 180
8. Tryggingamiðstöðin 179
9. Júlíus Sigurjónsson 175
10.Expressferðir 173
Ţessi Bridgehátíð heppnaðist eins og endra nær frábærlega.
BSÍ óskar vinningshöfum til hamingju og öllum keppendum fyrir frábæra hátíð
Heimasíða mótsins
30.1.2010
Iceland Express sveitin efst fyrir loka umferđina
29.1.2010
Sćnskur sigur í tvímenning Bridgehátíđar
Fyrir skömmu lauk keppni í tvímenning á Bridgehátíð, mikil baráttar er búin að vera um toppsætin
Eftir harða keppni urðu þeir Peter Fredin og Gary Gottlieb með 57,1 % skor. efstir
Júlíus Sigurjónsson og Þröstur Ingimarsson höfnuðu í 2 sæti eftir að hafa leitt mótið
lungað úr deginum með 56,2 % skor. Í 3ja sæti urðu einnig sænskir spilrarar þeir
Johan Upmark og Frederic Wrang með 55,7 % skor
Hægt er að sjá öll úrslit hér
28.1.2010
Iceland Express Reykjavík Bridgefestival
Bridgehátíð 2010 var sett á Hótel Loftleiðum klukkan 19:00 í kvöld.
Mótið setti Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, með skemmtilegri innsetningarræðu
og að lokum meldaði hann fyrstu sögnina fyrir Jón Baldursson, sem var pass
Bein útsending er á BBO og hægt að fylgjast með lifandi skori hér
25.1.2010
ICELAND EXPRESS REYKJAVÍK BRIDGEFESTIVAL
Bridgehátíð 2010 verður haldin dagana 28.-31. janúar á Hótel Loftleiðum.
Skráning er þegar hafin og er í fullum gangi, hægt er að skrá sig síma 587-9360
og hér í tvímenninginn 28-29.jan. og sveitakeppnina 30-31.jan.
Keppnisgjald í tvím. er kr. 17.000 og í sveitake. 34.000 Tímatafla
Stjörnustríð verður miðvikudagskvöldið 27.janúar að Hótel Loftleiðum.
Keppnisgjald í Star Wars er kr. 20.000
Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í sveitakeppninni
og einnig 3 efstu sætin í bötlertvímenning
Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds. Best er að þeir sem hyggja á þátttöku millifæri keppnisgjaldið áður en þátttaka er hafin, til að minnka álag á innheimtu á spilastað. Hægt er að leggja keppnisgjald inn á banka 0115 - 26 - 5431 og koma þarf skýrt fram fyrir hvað er greitt og hver framkvæmir greiðsluna. Kennitala BSÍ er 480169 4769.
Viđburđadagatal
Flýtileiđir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Spilað er á BBO í kvöld. kl 19-20-21-22. Sjá www.bridgebase.com














