Fréttir
24.2.2010
Íslandsmótiđ í tvímenning á Hótel Loftleiđum
Íslandsmótið í tvimenning verður haldið dagana 6. og 7.mars n.k.
Mótið er opið öllum að þessu sinni og verður spilað á Hótel Loftleiðum
Keppnisgjald er 10.000 á parið
Hægt er að skrá sig hér og í síma 587-9360
Skráningu lýkur kl. 14:00 föstudaginn 5.mars
Íslandsmeistarar frá 2009 eru þeir félagar Ómar Olgeirsson og Júlíus Sigurjónsson
Hótel Loftleiðir býður upp á gistingu
Einsmanns herbergi: 9.900,-
Tveggja manna herbergi: 12.200,-
Morgunverður aukalega 1.350,- kr
22.2.2010
Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni 2010
Sveit Vinkvenna urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 2010
Ţær skoruðu 168 stig aðeins einu stigi meira en sveitin DEMB sem skoraði 167 stig.

Í sigursveitinni spiluðu þær stöllur Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir
Hjördís Sigurjónsdóttir og Ragnheiður Nielsen.
Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum fyrir þátttökuna.
Hægt að sjá lokastöðuna hér
8.2.2010
Iceland Express sveitakeppnin-undanúrlist
7.2.2010
Keppnisstjóranámskeiđ Evrópusambandsins í bridge 2010
Vigfús Pálsson og Sveinn Rúnar Eiríksson voru á keppnisstjóranámskeiði hjá Evrópusambandinu í bridge dagana 1. febrúar til 5. febrúar. Þarna voru staddir 100 af bestu keppnisstjórum í Evrópu og voru 86 látnir þreyta próf til að fá gráðu til að geta stjórnað á Evrópu og/eða Heimsmeistaramótum.
Sveinn Rúnar náði að skella sér í topp 10 með góðu lokaprófi og fær núna gráðuna: "NBO International TD" hjá Evrópusambandinu sem gefur honum áðurnefnd réttindi.
Vigfús endaði um miðju þátttakenda og kemur heim reynslunni ríkari og betur í stakk búinn til að bæði miðla af reynslu sinni og stjórna bridgemótum á Íslandi.
Viđburđadagatal
Flýtileiđir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Spilað er á BBO í kvöld. kl 19-20-21-22. Sjá www.bridgebase.com














