Fréttir
24.5.2010
Bikarkeppni 2010: Búiđ ađ draga í 1. og 2. umferđ
Dregið var í 1. og 2. umferð í Bikarkeppni Iceland Express og BSÍ 2010. Hægt er að nálgast dráttinn á heimasíðu mótins:
20.5.2010
Bođsmót á herragarđi í Onstein
Landsliðið í opna flokki hélt til Hollands í morgun á boðsmót í Onstein.
Fullt af góðum spilurum ásamt okkar mönnum verða á staðnum m.a. Zia, ítalarnir Nunes og Fantoni o.fl.
Hægt verður að fylgjast með á bridge.nl
og einnig verður sýnt frá leikjum á BBO
Ţeir sem eru í opna flokknum eru þeir, Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson,
Júlíus Sigurjónsson, Þröstur Ingimarsson, Sigurbjörn Haraldsson og Magnús Magnússon
Íslenska liðið spilaði 2x 16 spila leiki á 3 borðum við Hollenska landsliðið. Fyrstu 16 spilin voru Magnús og Sigurbjörn á tvöfalda borðinu og unnu þeir 21-18 með Jóni og Þorláki en töpuðu 17-68 með Júlíusi og Þresti.
Júlíus og Þröstur voru næst á tvöfalda borðinu og töpuðu þeir 11-16 með Magnúsi og Sigurbirni og 6-27 með Jóni og Þorláki.
18.5.2010
Bikarkeppni 2010
Dregið verður í sumarbridge mánudaginn 24.maí.
Allir hjartanlega velkomnir að taka þátt.
Hægt er að skrá sig hér og í síma 587 9360
Heimasíða bikarsins 2010
12.5.2010
Bonn Cup
ţeir Júlíus Sigurjónsson, Þröstur Ingimarsson, Magnús E. Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson
héldu til Bonn í æfingaferð í gær og átti spilamennska að hefjast kl.13:00 í dag.
Hægt er að fyrlgjast með mótinu á BBO og einnig hér
11.5.2010
Sumarbridge hefst 12.maí
Spilað verður 2 daga vikunnar, mánudaag og miðvikudaga.
Spilamennska hefst kl. 19:00 og verður spilaður Barómeter tvímenningur öll kvöld..
Hægt verður að fylgjast með úrslitum á textavarpinu á síðu 327 auk þess sem úrslitin
verða uppfærð á heimasíðu BSÍ www.bridge.is/sumar
Sigurvegar fá frítt að spila í Sumarbridge 2010
Keppnisstjóri verður Sveinn Eiríksson..
Allir Velkomnir
10.5.2010
Til hamingju Suđurland
Sunnlendingar sigruðu Kjördæmamótið sem haldið var á Flúðum 8 og 9.maí
Fyrir síðustu umferð skildu 3 stig á milli Austfirðinga og Sunnlendinga og náðu Austfirðingar
að minnka muninn um 2 stig. Suðurland vann því með 1 stigi.
Sunnlendingar kampakátir með sigurinn sinn.. Til haimingju
Við þökkum keppendum fyrir skemmtilegt mót.
Heimasíða mótsins
Viđburđadagatal
Flýtileiđir
Hverjir spila í dag
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Spilað er á BBO í kvöld. kl 19-20-21-22. Sjá www.bridgebase.com














