Fréttir
2.1.2006
Reykjavíkurmót í sveitakeppni
Ef 16 sveitir tilkynna þátttöku verður spilað þannig:
10. janúar 1-2 umferð
12. janúar 3-4 umferð
14. janúar 5-7 umferð
15. janúar 8-10 umferð
17. janúar 11-12 umferð
21. janúar 13-15 umferð
Ef 18 sveitir, þá verða spilaðar 4 umferðir 14. og 21. janúar. Ef 20 sveitir (19) þá bætist við spiladagurinn 18. janúar en þá verða spilaðar 2 umferðir.
Keppnisgjald er krónur 26.000 á sveit. Hægt að skrá sig í keppnina á heimasíðu BR, bridgefelag.is eða heimasíðu Bridgesambands Íslands bridge.is . Keppnisstjóri er Björgvin Már Kristinsson.
Sérstök athygli er vakin á því að tekin hefur verið ákvörðun um að spilamennska hefjist virka daga klukkan 19:00, en ekki 19:30. Þessi ákvörðun var tekin vegna þess að spilaðir eru tveir 16 spila leikir á kvöldi og ef byrjað væri klukkan 19:30, myndi spilamennsku og uppgjöri síðar leiks ekki ljúka fyrr en eftir miðnætti.










