Fréttir
12.2.2007
LANDSLEIKUR VIÐ ZIA Í BRIDGE!!
Fimmtudaginn 15. febrúar á milli klukkan 14-17 verður háður landsleikur í bridge í húsi Orkuveitunnar á milli sveitar Zia Mahmood og íslenska landsliðins. Leikurinn verður 24 spil, tveir 12 spila hálfleikir. Lið Zia verður skipað auk hans, Jacek Pszczola, Sam Lev og Reese Milner, en þeir etja kappi við Jón Baldursson, Þorlák Jónsson, Sigurbjörn Haraldsson, Bjarna Einarsson, Matthías Þorvaldsson og Magnús Magnússon. Leiknum verður lýst á Bridgebase.com og því hægt að fylgjast með honum þar og einnig eru áhorfendur í hús Orkuveitunnar velkomnir ef þeir vilja fylgjast með leiknum með eigin augum.
Viðburðadagatal
Engin skráður viðburður framundan.