Fréttir
16.2.2007
LETTAR Í FORYSTU
Nú er lokið 10 umferðum af 23 í tvímenningskeppni Bridgehátíðar og í síðustu umferð fyrsta spiladagsins náðu Lettarnir Ivars Rubenis og Ugis Jansons forystunni. Að öðru leyti er hörð barátta um efstu sætin, en það vekur athygli að útlendingar skipa fjögur efstu sætin og norsku félagarnir Eric Sælensminde og Boye Brogeland eru í öðru og þriðja sæti. Stað efstu para er þannig að loknum 10 umferðum:
1. Ivars Rubenis - Ugis Jansons 60,41%
2. Jan Petter Svendsen - Eric Sælensminde 59,81%
3. Simon Gillis - Boye Brogeland 59,71%
4. Sam Lev - Reese Milner 59,60%
5. Bjarni Einarsson - Sigurbjörn Haraldsson 58,86%
6. Andrew McIntosh - Graham Orsmond 58,35%
7. Ómar Olgeirsson - Kristján Blöndal 58,00%
8. Björn Friðriksson - Björn G. Friðriksson 57,78%
Fyrr um daginn var spilaður 16 spila leikur milli sveitar Zia Mahmood og Íslenska landsliðsins og þar mátti sigur Zia varla verið naumari, því leikurinn endaði með þriggja impa sigri sveitar Zia, 41-38. Um tíma blés þó ekki byrlega fyrir Íslenska landsliðinu, því um tíma náði Zia 30-0 impa forystu. Leikurinn var sýndur beint á Bridgebase og áhorfendur þar að vonum óvenjumargir.
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Miðvikudagsklúbburinn
Síðumúla 37 - kl: 19:00
Einskvölds tvímenningar - ALLIR velkomnir