Fréttir
4.3.2007
SR-GROUP MEÐ ÖRUGGAN SIGUR Á ÍSLM. KV. Í SVK. 2007
Sveit SR-Group vann öruggan sigur á Íslandsmóti kvenna í sveitakeppni sem fram fór helgina 3.-4. mars. Sveit SR-Group var með forystu allan tímann og þegar upp var staðið, var sveitin með 26 stiga forystu á annað sætið. Spilarar í sveit SR-Group, sem jafnframt unnu sér rétt til að skipa kvennalandslið Íslands á NM í sumar, voru Ragnheiður Nielsen, Hjördís Sigurjónsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Anna Ívarsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir. Lokastaðan í mótinu varð þannig:
1. SR-Group 181
2. Umbúðamiðlun ehf. 155
3. Plastprent hf. 155
4. Conis 150
5. Smárinn 144
6. Sparisjóður Kópavogs 137
7. Guðnú Guðjónsdóttir 121
8. Bryndís Þorsteinsdóttir 102
9. Sigurrós 81
Heimasíða Íslandsmóts kvenna í sveitakeppni 2007
Af þeim sem spiluðu alla leikina, enduðu Ragnheiður-Hjördís og Arngunnur Jónsdóttir-Guðrún Kr. Jóhannesdóttir efstar með +1,13 impa skoraðan í spili, en Ljósbrá endaði efst með 4 spilaða leiki af 9 með 1,43 impa í spili.
Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni 2007:
Ragnheiður Nielsen, Hjördís Sigurjónsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir,
Guðrún Óskarsdóttir ásamt Guðmundi Baldurssyni forseta BSÍ.
Einnig spilaði Anna Ívarsdóttir í sveitinni.
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Miðvikudagsklúbburinn
Síðumúla 37 - kl: 19:00
Einskvölds tvímenningar - ALLIR velkomnir