Fréttir
5.3.2007
ÍSLANDSMÓT Í SVK - UNDANK. OG ÚRSLIT
Fjölmargar sveitir víðsvegar að af landinu taka þátt í undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni sem haldið verður á Hótel Loftleiðum. Undankeppni verður haldin dagana 23.-25. mars og úrslitin 4.-7. apríl.
Hér má sjá styrkleikaröðun sveita og meistarastig+5ára stig spilara í öllum sveitum
Dregið var í riðla í hádeginu föstudaginn 9.mars
Riðlaskipting
Heimasíða - Undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni 2007
Fróðlegt verður að sjá hver verður "spútniksveitin" í ár!
Undankeppni: Spilað verði í fjórum 10 sveita riðlum, raðkeppni níu 20 spila leikir án hálfleiks. Spilað án skerma. Styrkleikaraðað verður í riðla(meistarastig+5 ára stig). Þrjár efstu sveitir úr hverjum riðli vinna sér rétt til úrslita.
Úrslit: Í úrslitum spila 12 sveitir. Spiluð er raðkeppni, 16 spila leikir án hálfleiks. Spilað með skermum. Einföld umferð er spiluð miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Að því loknu halda 4 efstu sveitirnar áfram, stig haldast, og spila raðkeppni á laugardegi, 16 spila leiki.
Tímatafla undankeppni:
fö 14:00 – 16:30
fo 16:50 – 19:20
fö 20:30 – 23:00
lau 11:00 – 13:30
lau 13:50 – 16:20
lau 16:40 – 19:10
lau 20:30 – 23:00
su 11:00 – 13:30
su 13:50 – 16:20
DAGSKRÁ: | ||||
Fyrirliðafundur föstudaginn | 23.mars | kl. 13:00 | ||
1. umferð | föstudaginn | 23.mars | kl. 14:00 - 16:30 | |
2. umferð | föstudaginn | 23.mars | kl. 16:50 - 19:20 | |
3. umferð | föstudaginn | 23.mars | kl. 20:30 - 23:00 | |
4. umferð | laugardaginn | 24.mars | kl. 11:00 - 13:30 | |
5. umferð | laugardaginn | 24.mars | kl. 13:50 - 16:20 | |
6. umferð | laugardaginn | 24.mars | kl. 16:40 - 19:10 | |
7. umferð | laugardaginn | 24.mars | kl. 20:30 - 23:00 | |
8.umferð | sunnudaginn | 25.mars | kl. 11:00 - 13:30 | |
9.umferð | sunnudaginn | 25.mars | kl. 13:50 - 16:20 | |
Tímatafla úrslit:
mi 16:00 – 18:15
mi 19:00 – 21:15
mi 21:35 – 23:50
fi 11:00 – 13:15
fi 13:45 – 16:00
fi 16:30 – 18:45
fi 20:00 – 22:15
fö 11:00 – 13:15
fö 13:45 – 16:00
fö 16:30 – 18:45
fö 20:00 – 22:15
lau 11:00 – 13:15
lau 13:45 – 16:00
lau 16:30 – 18:45
Undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni verður haldin á Hótel Loftleiðum og í tengslum við það, býður hótelið 35% afslátt af gistingu á hótelinu. Þeir sem hafi hug á að nýta sér tilboð hótelsins, panti herbergi með því að hringja í 444 4000 eða senda tölvupóst á icehotels@icehotels.is og taki það fram að herbergjapöntunin sé vegna mótsins.