Fréttir
23.4.2007
ÆSISPENNANDI LOKASPRETTUR Á ISLM. Í TVÍM. 2007
Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson unnu sigur á Íslandsmótinu í tvímenningi sem haldið var helgina 20.-21. apríl eftir æsispennandi lokasetu. Jón Baldursson varð Íslandsmeistari í tvímenningi 4 ár í röð en 21 ár eru síðan hann vann til þessa titils síðast. Fyrir lokaumferðina munaði aðeins 0.5% skori á fimm efstu pörunum og öll þau pör komu til greina sem Íslandsmeistarar. Jón og Þorlákur náðu góðum árangri í lokasetunni sem dugði þeim í efsta sætið en Ómar Olgeirsson og Kristján Blöndal hrepptu annað sætið, einnig eftir góða lokaumferð. Lokastaða efstu para varð þannig:
1. Jón Baldursson - Þorlákur Jónsson 315,2
2. Ómar Olgeirsson - Kristján Blöndal 296,4
3. Ásmundur Pálsson - Guðm. Páll Arnarson 280,3
4. Guðmundur Halldórsson - Hermann Friðriksson 265,9
5. Daníel M. Sigurðsson - Erlendur Jónsson 259,2
Verðlaunahafar sáttir eftir æsispennandi lokabaráttu
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bf. Kópavogs Spilamennska hefst kl. 19:00 ,Spilað er í Gjabakka, Fannborg 8. 1.hæð
Bf. Selfoss kl. 19:30 - Selið, Íþróttavallarsvæði