Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Madeira Open 2006

Madeira mótið fer fram dagana 6. - 12. nóvember 2006. Íslenskir hópar hafa farið undanfarin 3 ár og haft mikið gaman. Skemmst er að minnast fyrsta árið þegar Bjarni Einarsson og Ragnar S. Magnússon unnu tvímenninginn og fengu RISAstóra ávísun í verðlaun.

Heimasíða mótsins er www.bridge-madeira.com

Undanfarin ár hefur hver og einn þurft að panta flugið og hótelið sér en nú er komin á samband við konu sem vinnur á ferðaskrifstofu á Madeira og er hægt að panta allann pakkann hjá henni án neins aukakostnaðar.

Hún er þegar komin með fyrsta pakkatilboðið:

Farið út 3. nóvember og komið heim 13.

Flogið til Frankfurt-Lissabon-Madeira

Verðið er 943,80 evrur og innifalið í því er:

Flugfar fram og tilbaka
Hótelgistin miðað við 2 í tveggja manna herbergi
Keppnisgjal í tvímenning og sveitakeppni
Traditional Folklore dinner í miðjum tvímenningnum
Stórglæsilegur kvöldverður í Lokahófinu
Skoðunarferð
Rútuferðir frá og til flugvallarins á Madeira

Þetta er verðið ef spilarar panta strax því þetta miðast við ódýrustu sæti og er framboðið af þeim mjög takmarkað.

Konan sem býður pakkana heitir Mafalda Mendonça og tölvupóstfangið hennar er:

madeira.groups.incentives@topatlantico.pt

Ef einhverjir eru í vandræðum með ensku, vilja aðrar dagsetningar en boðið er upp á eða treysta sér ekki til að panta sjálfir þá geta þeir haft sambande við Svein Rúnar Eiríksson í síma 899-0928 eða sent tölvupóst á svenni@islandia.is

Þeir sem hafa pantað:

Enginn hefur pantað ennþá.........


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Spilað er á BBO í kvöld.  KL. 19-20-21-22.     Sjá www.bridgebase.com

Skoða alla daga


Olís

Slóð:

Mót » Erlend mót » 2006 » Madeira-2006

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS