Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Icelandair Open 2007

Bridgehátíð 2007 fer fram á Hótel Loftleiðum 15.-18. febrúar.

Sjá má "lifandi"úrslit hér á Swangames.com

Hér er hægt að skoða alla Bridgehátíðina á Bridgebase

Flest bendir til þess að Bridgehátíð í ár verði sérlega glæsileg.
Tvímenningur 15.-16. febrúar
Sveitakeppni  17.-18. febrúar
Boðið er tveimur sveitum, önnur er í forsvari Zia Mahmood og sveitarfélagar hans eru Jacek Pszczola, Sam Lev og Reese Milner. Hin boðssveitin er skipuð George Mittelman, Arno Hobart, Boris Baran og John Carruthers. Fjölmargir útlendingar koma á eigin vegum og má þar nefna til dæmis Boye Brogeland, Tony Forrester, Curtis Cheek, Justin Hackett, Kasper Konow, Mikael Askgaard, Peter Fredin, Doris Fischer, P.O.Sundelin og margir fleiri. Fyrstu tvo dagana er spiluð tvímenningskeppni sem hefst klukkan 19:00 á fimmtudag. Skráning er þegar hafin og þátttaka takmörkuð við 130 pör, því húsrúm leyfir ekki meira. Sveitakeppnin er spiluð síðari tvo dagana, hefst klukkan 11:00 á laugardagsmorgun og lýkur  laust fyrir klukkan 18:00 sunnudaginn 18. febrúar. Skráning er einnig hafin í þessa keppni og takmörkuð við 70 sveitir.

Stjörnusveitakeppni Bridgehátíðar Icelandair

Daginn áður en Bridgehátíð byrjar, 14. febrúar verður haldið Stjörnustríð, nánar tiltekið Stjörnu-hraðsveitakeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur. Skráning er hafin í þessa keppni, en þátttaka er takmörkuð. Bridgehátíðarnefnd velur úr hópi umsækjenda ef áhugi fer fram úr vonum.
Lokafrestur til að skrá sig er til 7. febrúar. Skráning fer fram í pörum og er þátttökugjaldið 30.000 krónur á parið, en innifalið í því gjaldi eru sveitarfélagar á heimsmælikvarða sem valdir eru af Bridgehátíðarnefnd.
Setningarathöfn þessa móts er klukkan 18:00, spiluð verða um það bil 30 spil og spilamennska hefst um klukkan 19:00.
Þátttakendur draga sér sveitarfélaga úr hópi valinna para í upphafi móts og einnig verður boðið upp á veitingar. Ef pör útvega sér styrktaraðila, spilar sveitin undir hans nafni.
Bæði verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og bötlerárangur para.

Landsleikur í Orkuveitunni: Zia - Ísland

Fimmtudaginn 15. febrúar á milli klukkan 14-17 verður háður landsleikur í bridge í húsi Orkuveitunnar á milli sveitar Zia Mahmood og íslenska landsliðins. Leikurinn verður 24 spil, tveir 12 spila hálfleikir. Lið Zia verður skipað auk hans, Jacek  Pszczola, Sam Lev og Reese Milner, en þeir etja kappi við Jón Baldursson, Þorlák Jónsson, Sigurbjörn Haraldsson, Bjarna Einarsson, Matthías Þorvaldsson og Magnús Magnússon. Leiknum verður lýst á Bridgebase.com og því hægt að fylgjast með honum þar og einnig eru áhorfendur í hús Orkuveitunnar velkomnir ef þeir vilja fylgjast með leiknum með eigin augum.

Minnt er einnig á að skráning í keppnir Bridgehátíðar er hafin af fullum krafti. Hægt að skrá sig með því að hafa samband við skrifstofu BSÍ, s: 587-9360 og einnig með því að fylla út í skráningareyðublöð hér

Minnt er á að allir viðburðir verða sýndir á Bridgebase.com og er hægt að sækja forritið hér

Hér er hægt að sjá hverjir hafa nú þegar skráð sig

Keppnisgjald í tvímenning: 12.000 á parið
Keppnisgjald í sveitakeppni: 26.000 á sveitina

Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds. Best er að þeir sem hyggja á þátttöku millifæri keppnisgjaldið áður en þátttaka er hafin, til að minnka álag á innheimtu á spilastað. Hægt er að leggja keppnisgjald inn á banka 0115, höfuðbók 26 og reikning 5431 og koma þarf skýrt fram fyrir hvað er greitt og hver framkvæmir greiðsluna. Kennitala BSÍ er 480169 4769. Keppendur sem millfæra, sendi afrit eða staðfestingu þess á BSÍ  að greiðsla keppnisgjalds hafi verið innt af hendi.

Tímatafla
Verðlaun
Úrslit 2006

enski


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Spilað er á BBO í kvöld.  KL. 19-20-21-22.     Sjá www.bridgebase.com

Skoða alla daga


Olís

Slóð:

Mót » Icelandair Open 2007

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS