Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Fundargerðir

9.1.2002

9. janúar 2002

Stjórnarfundur BSÍ 09. janúar 2002

Mættir á fundinn: Ísak Örn Sigurðsson, Anton Haraldsson, Ólafur Steinason, Birkir J. Jónsson, Sigtryggur Sigurðsson, Erla Sigurjónsdóttir, Matthías Þorvaldsson, Elín Jóhannsdóttir og Stefanía Skarphéðinsdóttir

1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Félagaforritið verður ekki tilbúið fyrr en í lok janúar. Það verður fyrst prufukeyrt hjá Bf. Akraness og Bf. Selfoss í ca. 2 vikur og síðan dreift til allra félaga.
Landsliðin í opnum flokki og kvenna flokki verða ekki tilkynnt fyrr en í lok janúar, en Guðmundur Páll er byrjaður með undirbúningsfundi.
2. Síðumúli 37
Við fengum lyklavöldin 27.desember. Framkvæmdir hófust strax og ganga að mestu skv. áætlun. Ýmilegt sem veldur aukakostnaði hefur komið í ljós þegar
farið var að rífa aðallega í sambandi við rafmagn, en vinna við raflagnir verður miklu meiri og dýrari en áætlað var.
Húsið verður tekið í notkun 1.febrúar. Matthías, Ísak, Birkir og Stefanía sjá um að skipuleggja opnunina.
Arnar og Sólveig eru tilbúin að sjá um veitingasöluna fram á vorið, stjórnin samþykkir að framlengja samning við þau.
3. Íslandsmót í tvímenningi
Samþykkt að færa mótið til vors.
4. Íslandsmót í sveitakeppni, undanúrslit 2002
Tilboð hefur borist frá Bs. Vesturlands, Hótel Borgarnesi og Búnaðarbankanum, Borgarnesi. Þessir aðilar bjóða húsnæði endurgjaldslaust ásamt því að greiða hluta af kostnaði við mótshaldið. Einnig er tilboðspakki í gistingu og mat.
Stefanía og nokkrir stjórnarmenn skoðuðu aðstæður á Hótel Borgarnesi og telja að vel sé hægt að halda mótið þar.
Við getum líka fengið inn í Fjölbrautarskólanum við Ármúla, en Stefanía og Anton skoðuðu aðstæður þar.
Að lokinni umræðu um þessa möguleika, var gengið til atkvæða og samþykkt að ganga að tilboði Bs. Vesturlands og spila í Borgarnesi 8.-10.mars nk.
Litið er á samþykktina sem skammtímalausn, vegna þess hve lítill tími er til stefnu.
Stjórnarmenn hvattir til að huga sem fyrst að framkvæmd næsta Íslandsmóts.
5. Önnur mál
Matthías gaf skýrslu um störf fræðslunefndar, sem eru í góðum farvegi.

Fundi slitið kl. 19.00 og farið í vettvangskönnun í Síðumúlann.


Viðburðadagatal

Engin skráður viðburður framundan.

Hverjir spila í dag

Skoða alla daga

Bridgefélag Reykjavíkur.   Síðumúla 37.  Byrjar kl 19:00
Bf. Akureyrar, Skipagata 14, 4.hæð kl. 19:00
Bridgefélag Rangæinga, Heimalandi, kl. 19:30
Bf. Hrunamanna, Flúðir kl. 19:30


Olís

Slóð:

Sambandið » Fundargerðir

Myndir


Auglýsing