Fundargerðir
16.11.2000
16. nóvember 2000
Stjórnarfundur BSÍ 16. nóvember 2000
Mættir á fundinn: Guðmundur Ágústsson, Ólafur Steinason, Ísak Örn Sigurðsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Erla Sigurjónsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Anton Haraldsson, Sigtryggur Sigurðsson, Kristján Örn Kristjánsson og Stefanía Skarphéðinsdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar. Samþykkt. |
2. Skýrsla framkvæmdastjóra A) Zia er búinn að staðfesta þátttöku á næstu Bridgehátíð. B) Bréf frá sænska bridgesambandinu. Óska eftir að lið skipuð yngri en 20 ára fái að taka þátt í NM yngri spilara á næsta ári, þrátt fyrir samþykkt NBU í sumar. BSÍ gerir ekki athugasemd við það. C) Bridgekvöld bridsskólans og BSÍ á mánudögum undir stjórn Hjálmtýs B. byrja vel. D) Töskubridge farinn af stað. 1.500 kr. kostar að leigja sér tösku með 24 spilum, hvert mót tekur 2 mánuði. E) Vegna hækkunar borðagjalda þarf að endurskoða greiðslu fyrir silfurstigamót. Vísað til mótanefndar. F) Verið er að aðlaga danska meistarastigaforritið að okkar þörfum. Reiknað með að forritið verði tilbúið til notkunar um áramót. |
3. Dómnefnd - mótanefnd. Jón Baldursson óskar eftir að hætta í mótanefnd. Runólfur Jónsson kosinn í hans stað. Dómnefnd: Guðmundur Páll Arnarson, formaður Ásgeir Ásbjörnsson Erla Sigurjónsdóttir Gylfi Baldursson Hermann Lárusson Jón Hjaltason Jónas P. Erlingsson Páll Bergsson Örn Arnþórsson |
4. Framkvæmdaráð. Guðmundur Ágústsson Ólafur Steinason Stefán Garðarsson |
5. Minningarsjóður Alfreðs Alfreðssonar. Einar Jónsson, formaður Guðmundur Ágústsson Stefanía Skarphéðinsdóttir |
6. Landsliðmál. Kvennalandslið. Ljósbrá og Erla víkja af fundi. Samþykkt að Guðmundur, Anton og Ljósbrá vinni að tillögum sem verði lagðar fyrir næsta fund. |
7. Önnur mál. Þar sem bridge er orðin Ólympíuíþrótt styttist í að BSÍ verði aðili að ÍSÍ og Ólympíunefndinni. Ákveðið að Guðmundur ræði við Ellert Schram og fái upplýsingar um kosti og galla þess að ganga í ÍSÍ. |
Viðburðadagatal
Engin skráður viðburður framundan.