Fundargerðir
13.1.1999
13. janúar 1999
Stjórnarfundur BSÍ 13. janúar 1999
Mættir á fundinn: Ljósbrá Baldursdóttir, Sigtryggur Sigurðsson, Guðmundur Ágústsson, Ísak Örn Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ragnar Magnússon, Kristján Kristjánsson, Þorsteinn Berg og Stefanía Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra. Ísak Örn lagði fram skýrslu vegna ferðarinnar. Kristján lýsti ánægju sinni með ferð unglingalandsliðsins á boðsmótið í Hollandi og færði fyrirliða og spilurunum bestu þakkir fyrir frammistöðuna, en sveitin endaði í 6. Sæti af 24 þjóðum. Liðið var þannig skipað: Fyrirliði Ísak Örn Sigurðsson, Sigurbjörn Haraldsson, Guðmundur Halldórsson, Frímann Stefánsson og Páll Þórsson. Ísak lýsti ánægju sinni með ferðina og árangurinn og sagði að spilararnir hefðu verið landi og þjóð til sóma. |
2. NM - Yngri spilarar 1999 Mótið verður haldið 10.-16.júlí í Reykjavík |
3. Landsliðkeppni. Tillaga undirbúningsnefndar samþykkt. Sigtryggur telur að betra hefði verið að spila undankeppnina í pörum með sveitakeppnisútreikningi. |
4. Bridgehátíð Ítalska landsliðið, Alan Sontag, Kyle Larsen og Christian Mari hafa staðfest þátttöku. Beðið er eftir staðfestingu frá Zia o.fl. |
5. Dómnefnd BSÍ 1998-1999 Guðmundur Ágústsson, formaður Anton Haraldsson Ásgeir Ásbjörnsson Erla Sigurjónsdóttir Guðjón Bragason Gylfi Baldursson Hermann Lárusson Jakob Kristinsson Jónas P. Erlingsson |
6. Námskeiðahald Lagt fram bréf frá Jakobi Kristinssyni varðandi námskeiðahald. Kristjáni, Þorláki og Þorsteini falið að ræða við Jakob. |
7. Bréf Lagt fram bréf undirritað af Jónínu Pálsdóttur f.h. "bridgekvenna". |
Viðburðadagatal
Engin skráður viðburður framundan.