Fundargerðir
23.3.2020
Stjórnarfundur 11.mars
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands
Mætt eru Jafet, Gunnar Björn, Ingimundur, Sigurður Páll og Pétur
- 1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti fundinn.Fundargerð síðasta fundar var send út og er á vefnum.
- 2. Corona. Farið yfir stöðuna, sprittið, handþvottinn og annað. Ákveðið að fresta mótum næstu 2 helgar. Ákvörðun um önnur mót í apríl og maí tekin í lok mars mánaðar. Húsnæði Bridgesambandsins lokað fyrir spilamennsku, en skrifstofan opin eftir þörfum
- 3. Evrópumótið. Mikil umræða hefur átt sér stað um Evrópumótið og þá hvort það verður haldið á réttum tíma eður ei. Búið að aflýsa stjórnarfundi í Evrópska Bridgesambandinu og verður SKYPE fundur í staðinn fyrstu vikuna í apríl. Ákvörðun um mótið verður tekin fyrir 15. Apríl. Áformað að tilkynna val á landliðinu í Opna flokknum 20. Mars og yrir kvennalandsliðið fyrir 10. Apríl.
- 4. Fundur 17.mars. Ákveðið að fresta honum ekki að svo komnu máli, staðan tekin þegar nær dregur.
- 5. Fundi slitið kl. 18.20
Viðburðadagatal
Engin skráður viðburður framundan.
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Miðvikudagsklúbburinn
Síðumúla 37 - kl: 19:00
Einskvölds tvímenningar - ALLIR velkomnir