Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Fundargerðir

4.9.2008

4.september

  13. stjórnarfundur 4.sept. 2008  Allir mættir

 

  1.       Uppgjör vegna Evrópumóts í opnum flokki

   Ólöf fór yfir kostnað vegna þátttöku í opna flokknum EM.  Ekki er búið að ganga frá öllum kostnaðarliðum en þetta verður allt komið á næsta fundi.

 

  2        Þorsteinn: Björn Eysteinsson hefur valið 3 pör til að keppa í opnum flokki  á Olympíumótinu í Kína: Jón Baldursson, Björn Eysteinsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson, Hrannar Erlingsson og Sveinn Rúnar Eiríksson,  áætlaður kostnaður ca. 2 milljónir

Páll: Í liði yngri spilara eru Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Freyr Kristinsson, Gabríel Gíslason, Jóhann Sigurðarson , Örvar Óskarsson og Gunnar Björn Helgason.  Gísli Steingrímsson fer með sem liðsstjóri en Páll og Ómar sem hafa þjálfað liðið komast ekki.

 

  3.       Landsliðsnefnd, (tilgangur, umboð, markmið): Stjórnin leggur til að skipuð verði landsliðsnefnd. Vísað til næstu stjórnar

 

  4.       Champion cup, fyrirspurn. Jón Baldursson Eykt spurði um styrk vegna Champions Cup í Amsterdam. Samþykkt að spilarar leggi fram kostnaðaráætlun þegar sótt er um styrk.

 

  5.       Keppnisstjóramál  (Sveinn).  Vigfús Pálsson tilbúinn að taka að sér keppnisstjórn í vetur – byrjar á deildakeppni.  Þórður ætlar að sjá um lokamótið í Sumarbridge.

 

  6.       Sumarbridge  (Sveinn). Góð þátttaka er í sumarbridge, 24 pör að meðaltali, kemur ágætlega út fjárhagslega.

 

  7.       Markaðssetning á brids  og upplýsingastreymi. Jón Baldursson og Gunnlaugur Karlsson telja mikilvægt að Ólympíumótið fái góða umfjöllun í fjölmiðlum, jafnvel að ráða mann til að sjá um þetta. Samþykkt.

 

  8..Önnur mál

Ársþing

Sjoppa – ætlar BSÍ að reka sjoppuna? Ólöfu falið að finna einhvern til að reka sjoppuna

Á að byrja aftur með bridge á föstudögum?


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.

Skoða alla daga


Olís

Slóð:

Sambandið » Fundargerðir

Myndir


Auglýsing