quote:
Tilvitnun: Djarflyndur
Það er sennilega hárrétt greining hjá Palla Þórs að Svenni Sterki og Djarflyndur eru með þrasgjarnari mönnum hér inni. Hvort að það teljist jákvætt eða neikvætt læt ég algjörlega liggja milli hluta en það sýnir þó að smá lífsmark er á spjallinu og kannski þess vegna er ekki búið að loka búllunni. Rétt eins og Svenni þá hefur Djarflyndur töluvert þrek gagnvart aðfinnslum enda er hann sjálfur aðfinnslusamur í meira lagi og fer ekki í manngreiningarálit á þeim vettvangi. En hann fyrirgefur þó seint að vera kenndur við dæmda níðingsmenn eins og Borgarnesmeistarinn gerði hér á dögunum sem varð þeim hinum sama til ævarandi minnkunar. Adminarnir sáu enga ástæðu til að grípa inní spjallið á þeim tímapunkti svo ég spyr einfaldlega hvar þeir setja mörkin??
Það getur vel verið að ég sé þrasgjarn og hafi ekki gaman af því að skipta um skoðun. Hinsvegar ákvað ég að gera spjallið ekki að persónulegu spjalli og reyni eftir bestu eða langbestu getu að sleppa því að blanda saman skoðanir annarra og andlegri heilsu þeirra. Þar fyrir utan sleppi ég líka að líka að uppnefna menn og er líklega frægasta uppnefningin Forsprakki Dómnefndar gott dæmi um þegar að menn eru að lítillækka og gera lítið úr störfum annarra, án þess kannski að fara yfir strikið. Ég held að allir viti hver á heiðurinn af þeirri uppnefningu eða á ég að segja upphafningu? Hér er verið að tala um menn sem eru í sjálfboðavinnu að gera sitt besta og fá oft ekki frið meðan á mótum stendur og hvað þá á barnum eftir að mótum lýkur.
Mér finnst menn oft gleyma hér á spjallinu að flestir eru að gera sitt besta í því hlutverki sem þeir fá hverju sinni. Það á ekki að gera lítið úr mönnum, uppnefna þá eða velta fyrir sér andlegri heilsu þeirra þó að þeir valdi því ekki eða fari öðruvísi með hlutverkið en menn vilja. Lausnin er miklu frekar að finna hæfari aðila og skipta um....
Af eigin reynslu ætla ég að staðhæfa það hér á spjallinu að ég er nokkuð viss um að þeir sem eru að vinna í sjálfboðavinnu fyrir BSÍ, svæðasambönd eða bridgefélög eru allir tilbúnir að hætta ef hæfari aðili gefur sig fram og er til í að sinna starfinu. Oft er nóg að finna bara aðila sem er til í að sinna starfinu....
Ég skal viðurkenna að mér finnst að þeir sem skjóta verða að vera því viðbúnir að það sé skotið tilbaka. Enda hef ég ekkert verið að brjálast mikið þó að menn skjóti tilbaka á mig. Ég setti nú líka broskall fyrir aftan þegar ég mæltist til með að Djarflyndur fengi áminningu... Enda var lítil alvara að baki. Ólafur sem betur fer notaði tækifærið og setti upp þennan þráð hér svo að menn gætu rætt þetta almennt.... Enda mundi ég gefa mönnum aðeins meira svigrúm þegar þeir eru að svara Djarflyndi heldur en öðrum  . En líka bara aðeins meira svigrúm.
_____________________________
quote:
Tilvitnun Math609 (Bridgebase)
As I've alredy stadet: Further conversation with you is usless. Try to respect that...
Change your opinion with someone else, I'm totally def when you speak. Sorry.
|