Glæsileg afgreiðsla, vel gert hjá Láka að gefa try með 3 spöðum á drottninguna blanka. Einnig verð ég að hrósa strákunum fyrir að koma til baka eftir að 6. sætið var út úr myndinni og klára sætið með sæmd! :)
< Skilaboðum breytt af Gunnar -- 23/6/2012 1:34:57 PM >
Glæsilegur endasprettur hjá liðinu sem segja má að hafi bjargað andlitinu í lokin. Væntingar manna stóðu jú til sætis á Bermuda Bowl. NB á móti andstæðingum sem hafa að meðaltali átt að teljast erfiðari en andstæðingarnir fram að því því þetta voru níu efstu þjóðirnar í hinum riðlinum... Bjarni & Aðalsteinn fá mörg prik fyrir karakterinn sem felst í því að fara úr hópi lægstu para í bötler í fyrri hlutanum og verða með þeim efstu í seinni hlutanum!