Var að fá póst varðandi val á liði á World Bridge Games sem við Ragnar Magnússon vorum búnir að gera okkur miklar vonir um að komast í, m.a. eftir gott gengi á æfingamóti um daginn.
Pósturinn fór reyndar á Ragnar Hermannsson, sem sýnir kannski ágætlega hversu vel þessi landsliðsnefnd fylgist með bridge!
Minni á frétt frá 7.maí þar sem talað um að velja 3ja par fyrir 15. júní: http://bridge.is/forsida/frettir/nr/2301/
Þessi óvissa með að vita þetta svona seint er búin að setja strik í reikninginn með plön sumarsins...hefði nú ekki verið betra 7. maí að tilkynna bara þessi 2 pör og málið dautt!
Er ástæðan að allt í einu ákveðið að senda bara 2 pör peningaskortur eða að Sveinn og Júlíus stóðu sig ekki nægilega vel á undirbúningsmótum?... Gæti sagt óþægilega mikið hér því alveg sótillur en læt þetta duga í bili...Show must go on...
_____________________________________________
Sælir, Landsliðsnefnd í Bridge hittist í dag með Sveini, þar var ákveðið að senda tvö pör á Olympíumótið í Lille, þ.e. Aðalsteinn og Bjarni og síðan Magnús og Þröstur.. með kveðju, Jafet S. Ólafsson