Umræðuborð Bridgesambands Íslands

Umræðuborð  Nýskráning  Innskráning  Prófíll  Pósthólfið  Póstfangaskrá  Þín áskrift  Mín spjallborð 

Myndaalbúm  Notendalisti  Leita  Dagatöl  FAQ  Útskráning

Ólym(píu)leikarnir

 
Skráður inn sem: Guest
  Prenthæf útgáfa
Allir efnisflokkar >> [Brids] >> Almennar umræður >> Ólym(píu)leikarnir Bls: [1]
Nafn:
Innihald << Eldri bréf   Nýrri bréf >>
Ólym(píu)leikarnir - 26/7/2012 12:08:44 AM   
Sporðdreki

 

Svör: 25
Notandi síðan: 28/6/2011
Tengdur: Nei

Mér skilst að yngsti og jafnframt myndarlegasti Ólympíufarinn kætist mikið þessa dagana og rauli gamla Steve Harley slagarann af mikilli áfergju: ,,Do what you want, run on wild,, Þótt þessi inngangur gæti hæft tónlistarlegri fræðigrein þá er það ekki tilefnið.

Fréttir herma nefnilega að dreifa eigi 150.000 smokkum til lausbeislaðara og spólgraðra Ólympíufara. Kynlíf út um allar trissur, segja þeir á mbl.is – konur og karlar að læðast milli herbergja í leit að villtum ástríðum. Ekki skrítið að hinir bráðmyndarlegu spilarar Raggi – Ómar séu súrir á svip um þessar mundir. En í alvöru talað, er ekki nauðsynlegt að létta mönnum róðurinn á hótelinu í Lille? Það er ekki hægt að ætlast til þess að menn komi örþreyttir upp á hótelherbergi með allt vaðandi af kvenfólki, jafnvel á Evuklæðunum einum. Menn verða að gá að því að það er aðeins farið að slá í suma spilarana og þeir eru tæpast upp á marga fiska á rúmstokknum eftir linnulausa spilamennsku yfir daginn. Svo eru menn að spá í einhvern Bötler-útreikninga hér heima varðandi valið á liðinu sem á taka þátt í orgíunni þarna úti...Jafet og hans menn eru bara ekki með ,,fulle fem,,

En eins og áður sagði þá hlakkar í yngsta spilaranum og þeim þolmesta. Þegar hann frétti af smokkadreifingu Ólympíunefndarinnar þá henti hann fram eftirfarandi stöku sem hann kallaði ,,Æfing á þverslá,,

Kona ein í feykna formi

fetaði dyggðarinnar línu

en andartak eitt stóð hún of gleitt

og tapaði gullinu sínu.

Mér skilst að Alli hafi nú haft smá húmor fyrir þessum kveðskap, en hinir tveir sátu hljóðir á eftir og sneru sér snarlega að næstu sagnæfingu. Stuttu síðar heyrðist: Notum við örugglega ekki ,,durex,, til að sýna að við séum tilbúnir í slaginn...fyrirgefðu ég meinti ,,drury,,

Skilaboð #: 1
RE: Ólym(píu)leikarnir - 27/7/2012 11:38:07 PM   
Eastwood30

 

Svör: 278
Notandi síðan: 19/8/2010
Tengdur: Nei
Stutt frá Lille til London með Eurostar. Annars held ég að þessi 2 glæsilegu pör sem skipa landsliðið á þessu móti séu lítið að pæla í því og endi bara í foursome.

(Svar við bréfi frá: Sporðdreki)
Skilaboð #: 2
RE: Ólym(píu)leikarnir - 30/7/2012 2:22:10 PM   
Stebbi Vill

 

Svör: 23
Notandi síðan: 9/4/2008
Tengdur: Nei

Rétt er hún svona, hin fornfræga limra eftir Hákon Aðalsteinsson frá Vaðbrekku um fimleikastúlkuna sem stóð of gleitt í lendingu og missti þar með af gullinu að áliti Bjarna Fel.:

 

Stúlka í formi fínu

fetaði dyggðanna línu,

en stundarkorn eitt

stóð hún of gleitt

og glataði gullinu sínu.


(Svar við bréfi frá: Eastwood30)
Skilaboð #: 3
RE: Ólym(píu)leikarnir - 5/8/2012 10:38:16 PM   
Palli Þórsson

 

Svör: 203
Notandi síðan: 22/10/2005
Tengdur: Nei
hehe. Hákon var flottur, algjört "legend" á sínu sviði.

(Svar við bréfi frá: Stebbi Vill)
Skilaboð #: 4
Bls:   [1]
Allir efnisflokkar >> [Brids] >> Almennar umræður >> Ólym(píu)leikarnir Bls: [1]
Hoppa á:





Ný skilaboð Engin ný skilaboð
Vinsælt efni m/ nýjum skilaboðum Vinsælt efni án/ nýrra skilaboða
Læst m/ nýjum skilaboðum Læst án/ nýrra skilaboða
 Senda inn nýtt bréf
 Svara bréfi
 Skrá nýja könnun
 Senda atkvæði
 Eyða mínu eigin bréfi
 Eyða mínum eigin þræði
 Gefa einkunn



0.125