|
Erfitt að átta sig á því hvað makker er að meina. Fyrst þarf maður að gera upp við sig hvort makker vilji mögulega spila sinn eigin lit vitandi að mögulega eigum við láglitina að örðum kosti hlýtur hann að vera að bjóða upp á slemmu. Hvers konar hendi gæti makker átt þegar hann passar í annari hendi en vill allt í einu spila þann lit frekar en að styðja í betri láglitnum sínum? Mögulega xxx DGxxxxx xx x, margir myndu ekki vilja koma inn á á þessa hendi á hættunni. Augljóslega væri pass þá rétti kosturinn í þessari stöðu. Það er jafnvel hugsanlegt að makker eigi tígulásinn og þá stendur slemma en mér finnst það ólíklegra en áslausa hendin þar sem margir hefðu þá meldað 3 inn á spaðaopnunina.
Ef makker meinar þetta sem slamtry í lit okkar hvers konar spil á hann þá fyrir meldingunni og hvers vegna notar hann ekki 5 til að lenda í fitti á 6 leveli? Er líklegt að hann sé með stutt ? og ef svo er þá á hann lengd í láglitunum en hvers konar spil getur hann átt sem hann meldar ekki inn á 1 með en eru skyndilega nógu góð til að þrýsta okkur upp í slemmu eftir 4NT úttekt í 2 liti? Ég á satt best að segja erfitt með að teikna upp þá hendi.
Mín niðurstaða er því að makker sé með veika hendi með langt hjarta og þótt slemma sé ekki útilokuð þá tel ég 11 slagi líklegri niðurstöðu og passa því.
Verð samt að viðurkenna að ég er mjög óviss um þessa stöðu og get seint kallað neitt sjálfgefið eins og Djarflyndur. Væri gaman að heyra hverju Djarfi svarar um fyrri hluta spurningarinnar sem var Hvað á makker fyrir 5 en svarið við því ætti augljóslega að ráða því hvað við viljum melda.
(Svar við bréfi frá: Örvar)
|