Umræðuborð Bridgesambands Íslands

Umræðuborð  Nýskráning  Innskráning  Prófíll  Pósthólfið  Póstfangaskrá  Þín áskrift  Mín spjallborð 

Myndaalbúm  Notendalisti  Leita  Dagatöl  FAQ  Útskráning

áskorun-uppástunga-herkvaðning.

 
Skráður inn sem: Guest
  Prenthæf útgáfa
Allir efnisflokkar >> [Brids] >> Almennar umræður >> áskorun-uppástunga-herkvaðning. Bls: [1]
Nafn:
Innihald << Eldri bréf   Nýrri bréf >>
áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 21/8/2012 12:23:17 PM   
darkman

 

Svör: 217
Notandi síðan: 3/4/2009
Tengdur: Nei
Geri það hér með að tillögu minni að haldið verði málþing. Til umræðu staða briddsins-horft til framtíðar og lært af sögunni. Það er löngu orðið tímabært að menn setjist niður og skoði þróun mála. Hvað hefur verið vel gert og hvað illa. Hvert á að stefna og hvernig. Kv. Raggi Hermanns.
Skilaboð #: 1
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 21/8/2012 12:46:02 PM   
Vigfús Pálsson

 

Svör: 526
Notandi síðan: 19/2/2008
Tengdur: Nei
ég mæti

(Svar við bréfi frá: darkman)
Skilaboð #: 2
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 21/8/2012 1:42:24 PM   
Jónhalldor

 

Svör: 144
Notandi síðan: 11/3/2010
Hvar býrðu?: Seyðisfirði
Tengdur: Nei
Mjög góð hugmynd. Færivel á að þetta þing væri hluti að ársþingi Bridgesambands íslands?

(Svar við bréfi frá: Vigfús Pálsson)
Skilaboð #: 3
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 21/8/2012 5:48:45 PM   
Vigfús Pálsson

 

Svör: 526
Notandi síðan: 19/2/2008
Tengdur: Nei

Ársþing BSÍ er að öllu jöfnu þétt skipuð dagskrá samkvæmt lögum BSÍ.

Ég sting upp á laugardeginum 22. september kl. 11 - 15.  í Síðumúla 37

Síðan létt sveitakeppni eða tvímenningur eða einmenningur frá 15-19


(Svar við bréfi frá: Jónhalldor)
Skilaboð #: 4
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 22/8/2012 1:55:20 PM   
Jörgi gamli

 

Svör: 433
Notandi síðan: 4/4/2010
Tengdur: Nei

Mér finnst gaman að geta þess hér, að einn af okkar toppspilurum hér á klakanum, Hr. Magnús Eiður Magnússon, sem hefur stundum ( að mínu mati ) virkað áhugalítill gagnvart bridsinum, sýndi mér algerlega nýja hlið á sér, á Ólympíumótinu. Hann geislaði af ástríðu fyrir spilinu og var tíðrætt um þá vegferð sem íslenski bridsinn þyrfti að fara í til að standa sig í samkeppni við þann erlenda. Hann nefndi til sögunnar ný vinnubrögð og sá fyrir sér einhvers konar ,, akademíu,, þar sem menn myndu skiptast á kerfishugmyndum og gagnrýnin hugsun á kerfi hvers annars væri leifð. Enginn tæki gagnrýni sem einhverri persónulegri árás, heldur sem aðferð til framþróunar. Við værum jú allir félagar í sama skipsplássinu. 

 

Maggi er ótrúlega útpældur í kerfum og er að viðra hugmyndir um kerfisstöður sem ég hef aldrei heyrt fyrr. Hans framlag gæti verið ótrúlega mikilvægt og hreinlega skipt sköpum.  

 

Ég skora á Magga að tjá sig um þetta hér spjallinu.

 

Hann er nú búinn að fá ,, herkvaðningu! ,,


(Svar við bréfi frá: Vigfús Pálsson)
Skilaboð #: 5
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 22/8/2012 1:57:30 PM   
Palli Þórsson

 

Svör: 203
Notandi síðan: 22/10/2005
Tengdur: Nei
Like.

(Svar við bréfi frá: Jörgi gamli)
Skilaboð #: 6
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 22/8/2012 2:00:39 PM   
Vigfús Pálsson

 

Svör: 526
Notandi síðan: 19/2/2008
Tengdur: Nei

Ég hef fengið athugasemdir um að laugardagur væri óheppilegur, m.a. fjölskyldumál og fríhelgar.

Helst er rætt um fimmtudag.  Ég er að vinna betur í málunum varðandi dagsetningu.


(Svar við bréfi frá: Palli Þórsson)
Skilaboð #: 7
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 22/8/2012 3:01:43 PM   
Ómar Olgeirsson


Svör: 928
Notandi síðan: 20/10/2005
Hvar býrðu?: Reykjavík
Tengdur: Nei

Gaman að heyra þetta Jörgi, líst vel á þetta hjá Magga! Félagar hans í sænska liðinu eru nú að rúlla yfir Pólverja í úrslitaleik á Olympíumótinu, og höfðu áður slegið út Mónakó.

Nokkuð viss um að Svíarnir hafa einmitt verið duglegir að skiptast á hugmyndum og að þróa sig áfram.

 

Útgangspunkturinn í umræðunni gæti verið Hvað skiptir máli í bridge?. Hvað ættu pör að leggja áherslu á í framþróun sinni, spilamennsku, sagnkerfið, stíllinn, baráttustöður, varnaræfingar ofl.?

Hér heima hefur kannski verið of mikil áhersla á sagnkerfið daginn út og inn (ótruflaðar sagnir) en minna stúderað sagnbaráttan og stíll parsins(bylgjulengd). Og spilamennskan sjálf hefur kannski líka verið vanmetin. Það er nauðsynlegt að standa og hnekkja viðkvæmum samningum oftar en (flestir) aðrir.

Hvernig geta menn bætt sig sem einstaklingar í bridge, einbeiting, sigurvilji, dugnaður, kurteisi ofl.

Það þurfa ekki allir að finna upp hjólið, einmitt að skiptast á skoðunum og hugmyndum, t.d. hægt að fá mikið af hugmyndum með því að horfa(t.d. í endursýningu ef náðir ekki beinu útsendingunni) á stórleiki á BBO. Með áherslu á að fylgjast með pörum með líkt kerfi/stíl.


(Svar við bréfi frá: Vigfús Pálsson)
Skilaboð #: 8
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 23/8/2012 1:55:20 AM   
Bessman

 

Svör: 852
Notandi síðan: 19/4/2007
Tengdur: Nei
Hvaða kerfisstöður voru það Jörgi? Annars er gaman hvað Maggi er vakandi fyrir og hefur gaman af að prófa nýja hluti og hef ég aldrei neitað honum vilji hann breyta einhverju eða taka eitthvað nýtt upp... Aftur á móti hefur það komið upp oftar en einu sinni að ég sting uppá einhverju og hann segir.. Æi nei, ég get ekki munað þetta allt saman, eða eitthvað í þeim dúr.. svo kannski 6 mánuðum seinna sér hann einhverja spila þetta sama og stingur svo uppá því við mig

< Skilaboðum breytt af Bessman -- 23/8/2012 1:58:00 AM >

(Svar við bréfi frá: Ómar Olgeirsson)
Skilaboð #: 9
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 23/8/2012 2:44:48 AM   
Jörgi gamli

 

Svör: 433
Notandi síðan: 4/4/2010
Tengdur: Nei

Hehe, þú rétt náðir mér Bessi.  Kallinn var á leið í koju, enda Rjúpnavellir framundan hér í morgunsárið.

 

Það má vel vera að þeir hlutir sem Maggi ræddi um, séu að einhverju leyti frá þér komnir. En allavega það sem var nýtt fyrir mér voru hlutir eins og yfirfærslur eftir dobl makkers á 3 laufum. Það var líka í umræðunni hvort þetta sama lögmál gilti eftir dobl á einu og tveimur laufum. Önnur staða sem yfirfærslur eru án efa betri en venjulegar sagnir kemur upp þegar Stayman er doblaður. Á þar að nota yfirfærslur strax, án tillits hvort grandarinn á stopper. Strúktur eftir grandopnun, var líka ræddur. Framhald í sterku laufakerfi og svo framvegis.

 

Ég get svo sem ekki komið með einhverja tæmandi lýsingu á þessu hér og nú, en margt var rætt og að sjálfsögðu oft í tengslum við spil sem poppuðu upp.

 

Fyrst þú stakkst hausnum inn í þennan þráð Bessi, þá er þér hér með birt ,, herkvaðning! ,,


(Svar við bréfi frá: Bessman)
Skilaboð #: 10
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 23/8/2012 4:23:19 AM   
Bessman

 

Svör: 852
Notandi síðan: 19/4/2007
Tengdur: Nei
Yfirfærslur eftir 3c-dbl kom frá Magga og upprunalega Kokish og er mjög góð hugmynd finnst mér þó ekki hafi mikið reynt á þá convention hingað til, Maggi hefur vonandi munað að taka fram að transferin detta út við rdbl En ég skal koma með eitt sem ég nýlega las á Bridgebase í pistli frá Joe Grue. Dæmi: (2s)-3h-(p), eða 1m-(2s)-3h-(p) hérna eru sagnir mjög aðþrengdar og 3s meira en lítið loðin sögn, er hún spurning um stopp eða slamish með hjarta eða annað hvort ?? Sjálfur hef ég túlkað 3s sem annað hvort hingað til, og ef mar á slamish með hjarta þá vonast mar eftir 3N til að geta kjúað næst.. En hvað ef makker meldar t.d. 4h og þú ekki búinn að koma þínu til skila, eða bara 4m og þá eru 4h hjá þér ekki slamish heldur preference, þá þarf að giska, passa og missa hugsanlega slemmu eða melda meira og enda hugsanlega overboard... Joe leysir þessar stöður svona: 3s er annað hvort spurning um stop eða Nat 4c melding, 4c setur hjarta...Elegant og einfalt... Annað sniðugt sá ég fyrst þegar ég var að horfa á bridgebase vugraph og er þegar andstaðan kemur inná sýnandi 2 ákveðna liti, núna er almenna reglan lægri cue fyrir lægri lit osfrv.. Dæmi: 1h-(2N) núna spila allir 3c sem hjartareis invit+ og 3d sem GF með spaða ekki satt ?..Þetta er kolrangt því vitanlega á að spila það öfugt því í öruggu fitti þarf minna rými, en móti 5+s GF er gott að hafa aukarýmið til könnunar ekki satt...

< Skilaboðum breytt af Bessman -- 23/8/2012 4:28:15 AM >

(Svar við bréfi frá: Jörgi gamli)
Skilaboð #: 11
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 23/8/2012 9:49:40 AM   
Þröstur

 

Svör: 634
Notandi síðan: 14/3/2006
Tengdur: Nei
quote:

Joe leysir þessar stöður svona: 3s er annað hvort spurning um stop eða Nat 4c melding, 4c setur hjarta...Elegant og einfalt...
Jon&Láki spiluðu þetta á EM og kannski eitthvað fyrr. Kölluðu bara Grue!

(Svar við bréfi frá: Bessman)
Skilaboð #: 12
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 23/8/2012 12:48:17 PM   
Vigfús Pálsson

 

Svör: 526
Notandi síðan: 19/2/2008
Tengdur: Nei

Fundur verður haldinn fimmtudaginn 6. september 2012.  Fundarstaður er Síðumúli 37.  Tímasetning er 19:00 - 22:00

Allir spilarar eru hvattir til að mæta og tjá sig um hver þau málefni sem þeim liggur á hjarta.  Öll Bridge málefni eru gild.  Allar skoðanir eru vel þegnar.

Jafet Ólafsson og Björn Eysteinsson hafa boðað komu sína á þennan fund.

Spilarar sem sem ekki teljast til stórlaxa eru hvattir til að mæta.

Æskilegt er að áhugasamir hafi samband við mig i síma 693-1061 varðandi málefni sem þeir vilja að séu formlega á dagskrá.


(Svar við bréfi frá: darkman)
Skilaboð #: 13
RE: áskorun-uppástunga-herkvaðning. - 6/9/2012 2:50:27 PM   
Sigvil

 

Svör: 308
Notandi síðan: 28/4/2007
Tengdur: Nei
quote:

Tilvitnun: Vigfús Pálsson
quote:

Fundur verður haldinn fimmtudaginn 6. september 2012.  Fundarstaður er Síðumúli 37.  Tímasetning er 19:00 - 22:00 Allir spilarar eru hvattir til að mæta og tjá sig um hver þau málefni sem þeim liggur á hjarta.  Öll Bridge málefni eru gild.  Allar skoðanir eru vel þegnar. Jafet Ólafsson og Björn Eysteinsson hafa boðað komu sína á þennan fund. Spilarar sem sem ekki teljast til stórlaxa eru hvattir til að mæta. Æskilegt er að áhugasamir hafi samband við mig i síma 693-1061 varðandi málefni sem þeir vilja að séu formlega á dagskrá.
Ég er nú ekki alveg að fatta þetta fundarboð á spjallvef(!) BSÍ. Er fundurinn aðeins fyrir þá sem liggja yfir eldgömlum spjallþráðum? + þá sem fá persónulegt fundarboð frá Vigfúsi? Þar sem smálaxar eru hvattir til að mæta!? Á forsíðu BSÍ er ennþá linkur í Ólympímótið en þessarar merku ráðstefnu hvergi getið. Ekki þýðir að athuga fundargerðir BSÍ því fundur virðist síðast hafa verið haldinn í maí. Hvaða brandari er í gangi?

(Svar við bréfi frá: Vigfús Pálsson)
Skilaboð #: 14
Bls:   [1]
Allir efnisflokkar >> [Brids] >> Almennar umræður >> áskorun-uppástunga-herkvaðning. Bls: [1]
Hoppa á:





Ný skilaboð Engin ný skilaboð
Vinsælt efni m/ nýjum skilaboðum Vinsælt efni án/ nýrra skilaboða
Læst m/ nýjum skilaboðum Læst án/ nýrra skilaboða
 Senda inn nýtt bréf
 Svara bréfi
 Skrá nýja könnun
 Senda atkvæði
 Eyða mínu eigin bréfi
 Eyða mínum eigin þræði
 Gefa einkunn



0.125