|
Hahahahahaha.......þetta var nú bara grín með það hvernig ég ætla að taka Magga, enda myndi það aldrei heppnast
Ég held að það sé enginn meginmunur á því Bessi hvort þú kemur strax inná á 4 eða passar fyrst. Bæði er austur búinn að boxa sig inn með 3 og vestur er nokkuð afmarkaður líka þar sem þeir spila precision(erfiðara ef þeir myndu spila standardkerfi). Þegar vestur passar 4 (vitandi að makker er með 10-12 punkta) þá er ljóst að hann á ekki mikla vörn í spaða og þarf af leiðandi ætti austur alltaf að melda 4NT með það fyrir augum að standa samning á 5. sagnþrepi eða mögulega að fórna í spilinu. Samt er doblið ekkert út í hött í ljósi þess að stundum fara báðir samningar niður og það má alveg gambla á það eins og hvað annað.
Einnig er ég ekki alveg sammála að eftir áskorun sé 100% komin geimkrafa í spilið. Hvar liggja þá mörk þeirrar reglu? Hvað með t.d. 1 -1 (inná) - 2 (makker, ígildi áskorunar í það minnsta) 3 næsti(gott reis)// 4 (ég) - pass- pass 4 . Mér finnst þetta ekki vera hrein kröfupass staða og að það mætti passa spilið út þó það sé búið að gefa einhverja áskorun og fara í geim í kjölfarið.
Önnur staða sem er mjög sambærileg við umrætt spil: 1 - pass 3 (bergen raise, ca.9-11 punktar). 3 hjá næsta - 4 . Nú melda hinir 4 , ég er ekki á því að þetta sé kröfupass staða heldur. Passið þýðir óneitanlega að þú eigir ekkert í spaða en að þú viljir heldur ekki melda sjálfur áfram en ég held að það megi passa þetta út. Bakhöndin(sá sem meldar síðastur) ætti samt að dobla þetta í flestum tilfellum, nema hann hafi sterka tilfinningu fyrir því að spilið standi.
Annars eru þessar kröfupass stöður erfiðar. T.d. finnst mér skipta máli hvort þeir eru komnir í 4 eða á 5. level. Eða hvað? T.d. 1 - 2 - 3 - 4 // 4 - 5 ?, Þetta ætti frekar að vera kröfupass enda auknar líkur á því að þeir séu komnir í samning sem fer niður, eða hvað?? Svo getur þetta líka stjórnast eftir hættum, ef hinir fara í 5 á öfugum hættum er það oft sagt til vinnings.
Ef menn eru hrifnir að svona skilgreiningum þá mætti e.t.v. setja einhverja svona reglu: Pass er alltaf forcing eftir að við sýnum a.m.k. geimstyrk í PUNKTUM(opnun á móti opnun eða meira). Pass er forcing eftir opnun okkar og áskorun makkers í geim ef þeir melda á 5. þrepi eða ofar. Er ekki ágætt að setja einhverjar reglur til að styðjast við?
< Skilaboðum breytt af Bjarni -- 29/7/2010 4:51:56 PM >
|