|
Þetta eru líflegar og skemmtilegar umræður hérna á spjallinu. Ég persónulega er nokkuð ósammála mörgum sjónarmiðum sem koma hér fram út frá taktískum sjónarmiðum og langar því að koma með nokkrar föðurlegar ráðlegginar
Þegar menn eru sífellt hræddir við að opna og að melda af því að það gæti farið illa, þeir gætu farið niður, þeir gætu verið doblaðir o.s.frv..........þá eru þeir á rangri braut. Ég hugsaði svona á mínum yngri árum þegar ég var að spila og vildi alltaf eiga góðan 6 lit og opnun til að koma inná á 2. sagnþrepi. Eftir að hafa farið í nokkrar kennslustundir hjá Tona bróður fór mér mikið fram. Hann kenndi mér m.a. að maður græddi mun oftar á því að melda heldur en melda ekki og að það gæti líka verið áhætta að segja pass!!! Nú langar mig að nefna nokkra punkta varðandi umræðuna sem hefur verið hérna vegna þessa spils. Eftirfarandi skrif miðast við almenna taktík, ekki bara utan gegn á eins og í þessu spili heldur líka ef allir eru á hættu eða allir utan. Ef maður er utan gegn á er ennþá meiri ástæða til að opna.
1. Það er svo hættulegt að opna á 1 því þá getur makker spilað vitlaust út. Best að segja pass. Þetta er mikil rökvilla. Í fyrsta lagi er orðið a.m.k. 50% líklegt að ég eða makker verðum sagnhafar ef ég opna. b)Í hinum 50% sem andstaðan spilar spilið þá á ég út í helming tilfella!! c) Þá eru 25% eftir þar sem makker á út, og þá er oft rétt að koma út með hjarta, t.d. ef andstaðan er að spila grand eða spaðasamning. Auk þess getur makker spilað út laufi og gefið slag þar ef við pössum í upphafi. NIÐURSTAÐA: Það er mjög óskynsamlegt að miða opnun í fyrstu hönd út frá því hverju þú vilt að makker spili út því þú veist ekkert um það hver verður sagnhafi og hvað er rétt að gera! GRUNDVALLARATRIÐI Í MELDINGUM ER AÐ FINNA FITT! EKKI BENDA Á ÚTSPIL!!!
2. Ég vil ekki opna á 1 af því liturinn er svo lélegur. Við gætum lent í 2 í 5-3 fitti. Betra að opna á 1 eða 1 . Nú spyr ég, hvað er að því að spila 2 á 8 spila fitt í tvímenningi? Er það reynsla manna að þeir komi yfirleitt betur út úr því að spila 1NT? Það er ekki reynsla mín. Makker á oftast 1-3 spaða í þessum tilfellum og þá held ég að það sé betra að spila 2 . Jafnvel þótt makker eigi Kxx eða eitthvað álíka í trompinu. Það er glæpur að reyna að týna hjartafittinu þegar við eigum fjórlit til hliðar. Það væri e.t.v. allt í lagi með 5-3-3-2 skiptingu en ekki með 5-4 skiptingu því þá er nánast alltaf betra að spila 2 ef við eigum fitt.
3. Ég vil ekki opna af því að ég gæti farið niður í spilinu. Best að segja pass. Það er í góðu lagi ef menn komast að samkomulagi um það að opna bara þegar þeir eiga a.m.k. 12 punkta. Ekkert að því og besta mál. En þeir sem opna stundum á 11 punkta ættu ekki að sleppa því hér. Það gæti alveg gerst að við færum 2 niður í tvímenningi á hættunni og fengið -200, gott og vel. En ef við pössum og leyfum hinum að spila 1NT eða 2 og standa það þegar við eigum hálitabút þá er það líka -200 fyrir okkur . Þar af leiðandi er passið síður en svo áhættulaust. Og hvað ætla menn að gera eftir að sagnir ganga Pass - 1T(á vinstri hönd) - pass - 1spaði / - pass(ég) - 2T(vinstri hönd) - Pass - Pass??? Ég held það sé ennþá meiri áhætta að melda núna.
Annað atriði. Það er deginum ljósara að maður græðir ekki á því in the long run að vera þægilegur andstæðingur sem segir alltaf pass og leyfir hinum að melda í rólegheitunum. Ef við opnum í spilinu erum við um leið búnir að gera andstæðingunum mun erfiðara fyrir með að finna sitt fitt og komast í sinn samning. Kannski fáum við bara að spila 1NT, 2 eða 2 í rólegheitunum þegar þeir eiga bút í spilinu. Kannski fara þeir í vitlausan samning í kjölfarið?
4. Mér líst svo illa á hjartalitinn að ég ætla að opna á 1 eða 1 . Varðandi opnun á 1 þá kom ég aðeins inná það áðan að það er alla jafna betra að spila 2 en 1NT þar sem við eigum skiptingu til hliðar. 1 er síður en svo áhættulaus opnun. Makker berst stundum í 2 á tvílit í sagnbaráttu. Hann reisir oft í 2 á þrílit(sem mig langar ekkert sérstaklega að spila á hættunni), og hann stekkur oft í 3 með fjórlit. Ofan í þetta þá erum við búin að stela fittinu frá andstæðingunum ef þeir eiga 8 spila spaðafitt. Það er ekki svo óalgengt þannig séð.
Það kemur frekar til greina að opna á 1 í þriðju hönd því þá er orðið mun líklegra að þið munið verjast í spilinu og þá skiptir útspilið meira máli. Í þriðju hönd er makker líka meira á varðbergi um að þú sért að opna létt og hefur vaðið fyrir neðan sig. Þriðja hönd er eina staðan þar sem mér finnst koma til greina að opna útspilsvísandi, t.d. á góðan fjórlit.
5. Ég spila kröfugrand og má ekki passa 1NT hjá makker. Ef menn spila svona sagnvenjur þá kemur miklu frekar til greina að passa í upphafi. Ég hef aldrei skilið sagnvenju sem er þannig uppbyggð að maður er nánast þvingaður á 2. sagnstig ef maður opnar á 1 í hálit. Maður getur sagt margar sagnir með geimkröfuhendur og hvers vegna þarf að taka 1NT undir það líka? Sjálfseyðingarsagnvenja sem ég held að allir ættu að taka út úr sínu kerfi. 1NT á bara að sýna í mesta lagi áskorun í geim(allt að 12 punktar) sem opnari getur passað með 11-12 jafnskipta punkta.
AÐ LOKUM: Það eru eflaust margir ósammála mér í einhverju sem er bara besta mál. Mig langar samt að benda á þá staðreynd að topp-bridge í heiminum hefur þróast þannig undanfarin ár að þeir sem spila varkáran stíl og eiga alltaf fyrir sínu eru að verða undir í baráttunni, en þeir sem spila taktíkst, melda oft og reyna að koma sínum spilum að sem fyrst eru að ná yfirhöndinni. Það er alls ekki skrýtið því eins og GPA segir, þá er fyrsta sögnin mikilvægust!
< Skilaboðum breytt af Bjarni -- 29/7/2010 1:37:01 AM >
|