Það kemur sko engum briddsáhugamanninum neitt á óvart! Þeir spila alltaf hvorn annan upp á góðan hátt. Þeir rífast aldrei um enska boltann alvarlega. Spila alltaf út fjórða hæsta, nema þeir eigi sexlit. Taka alla slagi í dobluðum samning með bros á vör. Fara aldrei dán ef það er í boði. Veiða yfirslagi með langri stöng. Stressast aldrei nema þeir séu með flensu. Þetta eru hreinræktaðir ofurmenn.