Fréttir
31.12.2016
Landsliðskeppni
Eitt mikilvægt verkefni býður landsliðsins í opnum - og kvennaflokki á næsta ári Norðurlandsmeistaramótið sem haldið verður í Horsens í Danmörku dagana 2 og 3 júní. Ákveðið hefur verið að fara með 2 pör í hvorum flokki og verður keppt um þessi landsliðssæti öll á tveimur helgum 7 og 8. janúar og síðan 4 og 5. mars. Áformað er að spila frá kl. 10.00-17.00 báða dagana, og verða peningaverðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin. Tvö efstu pörin eftir þessar tvær spilahelgar skipa landslið Íslands. Verið getur að farið verði með 3 pör á mótið sérstaklega ef Beltnesku löndin verða með. Landsliðsnefnd velur þá þriðja parið. Stjórn Bridgesambandsins fær boð um þátttöku á nokkrum mótum, landsliðsnefnd mun velja pör til þeirrar þátttöku ef og þegar af verður. Evrópumótið verður í júní 2018 og hefst undirbúningur upp úr miðju næsta ári. Fyrirkomulag við val á landsliðum fyrir Evrópumótið verður tilkynnt síðar.
skráning í s. 587 9360 og á bridge@bridge.is
Viðburðadagatal
Flýtileiðir
Hverjir spila í dag
Bf. Kópavogs Spilamennska hefst kl. 19:00 ,Spilað er í Gjabakka, Fannborg 8. 1.hæð
Bf. Selfoss kl. 19:30 - Selið, Íþróttavallarsvæði