- Guðmundur Páll Arnarson
3.800 kr.
Grundvallarrit um nútímalegt sagnkerfi eftir Guðmund Pál Arnarson. Bókin lýsir Standard-sagnkerfinu eins og það er spilað í dag og fer skipulega í gegnum opnanir, svör, gagnsagnir og framhaldssagnir.
Efnið er sett fram á skýran og aðgengilegan hátt með fjölda dæma úr raunverulegum spilum.
Kjörin bók fyrir spilara sem vilja færa sagntækni sína í nútímalegt horf og byggja upp öruggan sameiginlegan grunn með spilafélaga sínum.
Bókina má kaupa og fá afhenta hjá Bridgesambandi Íslands, Síðumúla 37.