Bridgesamband Íslands

Merki BSÍBridgesamband Íslands var stofnað 26.apríl 1948. Á stofnfundinn, sem haldinn var í Reykjavík, mættu 25 fulltrúar frá 6 bridgefélögum: Bf. Akureyrar, Bf. Siglufjarðar, Bf. Selfoss, Bf. Vestmannaeyja, Bf. Hafnarfjarðar og Bf. Reykjavíkur.

Fyrsti forseti BSÍ var Lárus Fjeldsted hrl. Eftir fundinn var haldin bæjarkeppni milli þessara 6 félaga. Bf. Reykjavíkur vann þessa keppni, sem kannski mætti kalla fyrsta Íslandsmótið.

Í dag eru starfandi 28 bridgefélög í öllum landshlutum.
Um 1000 manns spila reglulega keppnisbridge í félögum innan BSÍ, auk mikils fjölda fólks sem
spilar sér til skemmtunar í heimahúsum og á vinnustöðum.

BSÍ heldur Íslandsmót í Opnum flokki, Kvenna flokki, Öldungaflokki (eldri en 63 ára), flokki Yngri spilara (25 ára og yngri) og Paraflokki (karl og kona spila saman).

Bridgesamband Íslands er aðili að Nordisk Bridge Union (NBU), European Bridge League (EBL) og World Bridge Federation (WBF) og sendir landslið til keppni í mótum á þeirra vegum.

Skrifstofan er opin 11-16 alla virka daga 

Úrslit móta

Hafa samband