- Viðar Jónsson
700 kr.
Handhæg bók um Precision-sagnkerfið eftir Viðar Jónsson, með inngangsorðum eftir Guðmund Pál Arnarson.
Precision byggir á sterkri 1♣-opnun og nákvæmum punktabilum sem gera sagnir markvissari og upplýsingaríkari en í hefðbundnum kerfum. Bókin lýsir opnunum kerfisins, svörum og framhaldssögnum á skýran hátt.
Góður inngangur fyrir spilara sem vilja kynna sér eitt vinsælasta stórklúbbakerfi heims og prófa nýja nálgun í sögnum.
Bókina má kaupa og fá afhenta hjá Bridgesambandi Íslands, Síðumúla 37.