Mánudaginn 14. september hefst vetrarstarf BOS, Bridgefélag Oddfellowa.
Spilaður er tvímenningur alla mánudaga samkvæmt dagskrá fram til 17. maí á næsta ári. Yfir veturinn er keppt um tvo farandbikara, Oddfellow-skálina og Gesta-skálina. Besti árangur 21 kvöld er lagður saman og hæsta skor vinnur viðkomandi skál sem og eignarbikar. Sigurvegari kvöldsins spilar frítt næst þegar hann mætir.
Spilað er í Síðumúla 37, 3. hæð, og alltaf byrjað kl. 18:30
Alltaf spiluð 24 spil.
Mánudaginn 14. september hefst vetrarstarf BOS
sunnudagur, 13. september 2026